Vera - 01.04.2004, Page 45
Þingflokkur Alþýðubandalagsins 1974. Svava eina konan, eins og hún var löngum þau átta ár sem hún sat á þingi. Mynd: Þjóðviljinn.
sínu jafnframt vinnu utan heimilis."
Þetta er kunnugleg umræða enn í dag.
Svava sagði í blaðaviðtali löngu síðar að hún
) hafi orðið að berjast fyrir fjármagni fyrir Jafn-
réttisráð svo að það fengi starfsmann og
skrifstofu, því þingmönnum hafi þótt jafn-
réttið ágætt, það mátti bara ekki kosta neitt.
Yfirráð yfir líkömum og lífi kvenna
Á árunum 1973-1975 urðu geisiharðar deilur
um frjálsar fóstureyðingar sem voru eitt af
meginbaráttumálum kvennahreyfingarinnar
upp úr 1970. Löggjöfin var forn og töluvert
um ferðir kvenna til annarra landa í fóstur-
eyðingar. Svava talaði fyrir sjálfsákvörðunar-
rétti kvenna og flutti áhrifamikla ræðu þar
sem hún rakti aldagömul viðhorf til kvenna,
allt frá Gyðingum og Grikkjum til þeirra
lækna og þingmanna sem töldu sig hafa
meiri rétt en konur til að ákveða hvað væri
þeim fyrir bestu. Svava byrjaði á því að ræða
um þá ráðstöfun þáverandi heilbrigðisráð-
herra að setja þrjá karla í nefnd til að endur-
skoða það frumvarp sem lagt hafði verið
fram af Magnúsi Kjartanssyni en rauðsokkur
höfðu átt sinn fulltrúa við vinnslu þess. Nú
fengu konur ekki að koma nærri þessu máli
sem snérist um yfirráð yfir líkömum og lífi
kvenna. Karlanefndin tók sjálfsákvörðunar-
rétt kvenna út úr frumvarpinu en hann var
helsti ásteitingasteinninn. Svava rakti and-
stöðuna m.a. til sögunnar og sagði: „Menn
óttast að sé endanlegt ákvörðunarvald fært
konunni sjálfri í hendur, þá muni gerast ann-
að hvort: Að hið synduga eðli hennar nái yfir-
höndinni, konur muni sækjast eftir fóstur-
eyðingu af léttúð, hætta að nota getnaðar-
varnir og lausung eflast í landinu - og ef ekki
þetta, þá af hvötum sem stafa af hinni kenn-
ingunni um konuna, að hana skorti þroska,
þrek, dómgreind og siðgæðisvitund og því
sé þessi örlagaríka ákvörðun best komin í
höndum karlmanna."
Þá gagnrýndi Svava stofnanir eins og
kirkjuna sem lögðust hart gegn frjálsum fóst-
ureyðingum en voru ekki reiðubúnar að
styðja félagslegar aðgerðir til stuðnings for-
eldrum og börnum. Ræða Svövu endur-
speglar þá hörðu umræðu sem átti sér stað
og þau fornaldarrök og kvenfyrirlitningu sem
kom fram hjá andstæðingum frjálsra fóstur-
eyðinga. Þeir drógu dómgreind kvenna í efa,
rétt eins og þingmenn gerðu þegar þarist var
fyrir kosningarétti kvenna svo sem 60 árum
áður. Það var beðið um aukið vald konum til
handa og það kostaði mikil átök að fá kynja-
kerfið til að láta þó ekki nema hluta þess af
hendi.
Leitaði róta karlavaldsins
Svava var ein þeirra kvenna sem steig á svið á
Lækartorgi á kvennafrídaginn 24. október
1975 en þar hvöttu tvær þingkonur til auk-
innar stjórnmálaþátttöku kvenna. Af öðrum
málum sem voru Svövu hugleikin má nefna
ógn kjarnorkuvopna en barátta gegn þeim
var henni ofarlega i huga, eins og leikrit
hennar Lokaæfing ber vott um. Það voru þó
jafnréttismálin sem hún sinnti hvað lengst,
síðast í jafnréttisnefnd Norðurlandaráðs sem
verður 30 ára á þessu ári.
Svava var sannarlega bandamaður rauð-
sokka og ötull liðsmaður kvennabaráttunnar
alla tíð. Eitt allra merkasta framlag hennar var
að mínum dómi Gunnlaðar saga en þar leit-
aði hún róta (karla)valdsins og máttar vopn-
anna andspænis menningu kvenna (gyðj-
anna) sem voru rændar áhrifum og völdum í
árdaga. Svava fylgdist vel með i baráttunni
meðan hún hafði þrek til og skildi vel það
sem konur voru að gera með kvennafram-
boðum og kvennalistum á níunda áratugn-
um. Eins og Svövu var tamt sá hún þessa að-
gerð kvenna í víðu samhengi og sagði í við-
tali að ef menn vildu forðast slíkar aðgerðir
yrðu þeir bara að standa sig í að koma á jafn-
rétti kynjanna og tryggja eðlilegan hlut
kvenna.
Svava var ein merkasta baráttukona rauð-
sokkatímabilsins. Hennar verður lengi
minnst sem þeirrar þingkonu sem kom jafn-
réttismálunum á dagskrá Alþingis. Síðast en
ekki síst eru sögur hennar óþrjótandi upp-
spretta umræðna um stöðu kvenna og þann
kynjaða heim sem gengur svo hægt að
breyta. Minningu Svövu verður best sómi
sýndur með því að halda verki hennar áfram,
greina, ræða, krefjast, bylta og velta um stól-
um hvar sem því verður við komið. Þökk sé
Svövu fyrir framlag hennar til kvennabarátt-
unnar. X
vera / 2. tbl. / 2004 / 45