Vera - 01.04.2004, Side 49
/ TÓNLIST
I haca rlo Cola9af nýverið út aðra plötu
LIICX Jd UC JCIdsína eftir sex ára hlé frá út-
komu þeirrarfyrstu, La Llorona. Persónuleg og áhrifamik-
il túlkun hennar á fyrstu plötunni, bæði á mexíkönskum
þjóðlögum og eigin lögum, snertu þau sem á hlýddu -
svo mikið að það kom söngkonunni sjálfri á óvart. Platan
rokseldist og langar og strangar tónleikaferðir tóku við.
Eftir tvö ár á vegum úti var úr henni allur máttur, hún dró
sig í hlé og lét sig hverfa inn í annan heim um nokkurra ára
skeið, heim fjölleikahússins. Lhasa gekk til liðs við systur
sínar sem reka lítinn sirkus í Marseilles í Frakklandi. ( því
umhverfi fann hún sjálfa sig aftur og fór að sinna tónlist-
inni á ný. Nú er Lhasa komin fram á sjónarsviðið með tón-
list og texta á plötunni The Living Road, þar sem hún
syngur hásri og áleitinni röddu. Lögin eru ný en hljómur
þeirra framandi og kunnuglegur í senn.
Æskuheimili hinnar fíngerðu og píreygu Lhösu var
skólabíll sem foreldrar hennar höfðu breytt í heimili á hjól-
um fyrir sig og fjórar dætur sínar. Lhasa heitir í höfuðið á
borginni Lhasa í Tíbet, en móðir hennar var að lesa bók
um trúarbrögð þar þegar yfirvöld kröfðu hana um nafn á
I barnið. Faðir Lhösu er mexíkanskur bókmenntafræðingur
en bandarísk móðir hennar er leikkona og Ijósmyndari.
Þau bjuggu í kommúnu í Woodstock um tíma en tóku svo
strikið á bílnum til Mexíkó þar sem þau flökkuðu um Gu-
adalajara og Baja Califomia i átta ár. Bílnum var ýmist lagt
við sjávarsíðuna, fjallsrætur eða í útjaðri eyðimerkur,
Lhasa man eftir stórkostlegum náttúruupplifunum frá
þessum árum. Til að sjá fyrir fjölskyldunni kenndi faðir
hennar ensku Mexíkómegin við landamærin og spænsku
Ameríkumegin, en ekki var alltaf úr miklu að spila. Foreldr-
arnir sáu um að kenna börnum sínum fyrstu árin, sjónvarp
var ekki í bílnum en tónlist hljómaði þar stöðugt, alls kyns
tónlist. Foreldrarnir spiluðu bæði á hljóðfæri og áttu plöt-
ur og snældur með tónlist úr öllum áttum. Heilu haugarn-
ir af bókum fylgdu fjölskyldunni á flakkinu og persónur í
ævintýrum voru heimilisvinir systranna í gamla skólabiln-
um.
Eftir bernsku á þjóðvegunum settist Lhasa að í San
Francisco um tíma, síðan lá leiðin til Montreal í Kanada og
þar má segja að söngvaskáldið Lhasa hafi orðið til fyrir al-
vöru. Flún hóf að koma fram sem djasssöngkona á kaffi-
húsum í Montreal en tók svo upp samstarf við aðra tónlist-
^ armenn í borginni sem sumir vinna með henni enn í dag.
Lhasa segir sögur og dregur upp myndir, tónlist hennar
og textar eru full af stemningum sem fjölbreyttar útsetn-
ingarnar undirstrika með vísunum í alls kyns tónlistar-
stefnur. Sögurnar sem Lhasa segir eru persónulegar og
einlægar, stundum sárar, myndirnar eru oft myrkar og
dularfullar. Angurværð og rótleysi koma upp, ástin er ekki
alltaf til staðar, ferðalagið heldur áfram. Á nýju plötunni
syngur hún jöfnum höndum á frönsku, ensku eða
LHASA SEGIR SÖGUR OG DREGUR UPP MYNDIR, TÓNLIST HENN-
AR OG TEXTAR ERU FULL AF STEMNINGUM SEM FJÖLBREYTTAR
ÚTSETNINGARNAR UNDIRSTRIKA MEÐ VÍSUNUM í ALLS KYNS
TÓNLISTARSTEFNUR
spænsku, flakkið milli tungumála gefur enn meiri tilfinn-
ingu fyrir því að Lhasa er ferðalangur í þessum heimi og er
á stöðugri hreyfingu fram og tilbaka um menningarleg
landamæri.
Lila Downs og Lhasa de Sela eru báðar sagnakonur,
hvor á sinn hátt, og sögur þeirra hafa víða skírskotun. í
meðförum þeirra verður hið persónulega almennt, og það
sem er þjóðlegt verður alþjóðlegt, þær minna á að við eig-
um heima í heiminum og tilheyrum mannkyninu.
Plötur Lhösu de Sela:
• La Llorona (Tot ou tard, 1997)
• The Living Road (Tot ou tard, 2003)
Fleimasíður: www.lhasadesela.ca/
http://mapage.noos.fr/weblhasa/
vera / 2. tbl. / 2004 / 49