Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 8
48
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
í sjúkrasögum úr fæðingarbók Þórunnar ljósmóður segir frá
augnbólgu nýfæddra (lekandabólgu). í kafla bókarinnar um
börnin segir hún:
,,Augnbólgu í nýfæðingum sá ég fyrst í Kbh. 1890. Fyrst eftir að eg
kom heim varð eg hennar ekki vör hér, enda hélt eg og vonaði að
blessað landið mitt væri og yrði laust við þann ófögnuð. En rétt
fyrir aldamótin komst eg að raun um, að búið var að flytja hingað
líka þennan skæða sjúkdóm. Þá varð eg sár og hrædd um litlu
augun. Eg fór þvi strax til Björns Ólafssonar augnlæknis og spurði
hann, hvort ekki myndi réttast að dreypa lapis í augu nýfæðinga,
fyrst þessi andstygð væri komin hingað. Hann sagði það vera, því
þó það væri ekki óyggandi, væri alltaf hægara að komast fyrir
veikina, ef strax væri dreypt í augun. Ennfremur sagði læknirinn:
,,Eg er einmitt að skrifa um þennan sjúkdóm núna, til þess að láta
það koma i „Eir”. Hann læknaði augu þessa barns fljótt og vel og
annarra, sem höfðu fengið snert af þessum sama sjúkdómi. En
síðan hefi ég dreypt í augu nýfæðinganna minna, því „maður veit
aldrei hvar slíkt er”, sagði læknir við mig. Að líkindum hefir þetta
meðal ekki verið notað hér á landi fyrr en þetta, þar sem Björn
heitinn læknir vissi ekki af þessum sjúkdómi hér fyrr.”
Þess skal getið að Credé byrjaði árið 1884 að dreypa silfurnitr-
atdropum i augu ungbarna til að forðast lekandabólgu í augum. í
sjúkradagbókum Björns Ólafssonar, fyrsta augnlæknisins á ís-
landi segir frá nokkrum börnum með lekandabólgu í augum, enda
fann hann lekandasýkla í smásjá úr graftarútferð úr augum. Mér
vitanlega hefur engin blindast hér á landi af völdum lekanda-
bólgu, en slikur kvilli var algengasta orsök blindu i blindraskólum
í Danmörku og Englandi á fyrstu ár-atugum þessarar aldar.
Algengasti kvilli í augum nýfæddra er slímhimnubólga eða ert-
ing af völdum silfurnitrat dropanna. Talið er að um 6% barna fái
slíkan þrota i augun. Roðinn gerir vart við sig eftir 1—2 daga frá
fæðingu og hverfur skjótt án meðferðar.
Smitist slímhimna augans i fæðingu af völdum graftarsýkla,
koma einkenni fram eftir 4—5 daga með roða og graftarkenndri
útferð. Þessi tegund slímhimubólgu læknast fljótt með oculentum
chloramphenicoli, sem þarf að bera í augun 4 sinnum á dag uns
útferð er hætt og augun orðin hvít. Tekur slík meðferð aðeins
nokkra daga.