Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 14
54
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Margrét Þórhallsdóttir tók til máls og ræddi um stéttartalið,
taldi hún það orðið feimnismál hve útgáfa ritsins hefði dregist og
sagði að erfitt væri orðið að afsaka þennan drátt, við hina fjöl-
mörgu áskrifendur stéttartalsins á Akureyri og víðar.
Tóku ljósmæður almennt undir þenan málflutning.
Kristin Tómasdóttir sagði að þó illa gangi með útgáfuna, vildi
hún þakka ritnefnd og útgáfustjóra, góð störf við fjáröflun og
áhuga við að þoka verkinu áfram.
Kristín Tómasdóttir gerði grein fyrir minningarsjóði Þuríðar
Bárðardóttur, í fjarveru Jóhönnu Þorsteinsdóttur sem í fjölda ára
hefur haft vörslu sjóðsins.
Að venju var viðurkenning veitt einni ljósmóður á árinu, Her-
dísi Jónsdóttur ljósmóður í Hveragerði.
Herdís tók ljósmóðurpróf 1931 og hún hefur stundað ljósmóð-
urstörf i 43 ár.
í 1. tbl. Ljósmæðrablaðsins 1981 er grein eftir Herdísi sem
nefnist „Minningabrot”. Vísa ég hér til þeirrar ágætu frásagnar
Herdísar.
Dýrfinna Sigurjónsdóttir gerði grein fyrir minningasjóði ljós-
mæðra. Minningaspjöld voru seld fyrir gkr. 561.473,00. Reikn-
ingur birtist með öðrum reikningum félagsins.
í fundarhléi sýndi Kristín Tómasdóttir finnskar litskyggnur um
foreldrafræðslu, eðlilega fæðingu inni á fæðingadeild og þátttöku
föðurins við fæðinguna.
Formaður ræddi endurskoðun á lögum Ljósmæðraskóla Is-
lands frá 1964. Nefnd til þess að endurskoða lögin var skipuð 21.
okt. 1980, að tilhlutan heilbrigðisráðuneytisins.
í nefndinni eru tveir fulltrúar frá LMFÍ, þær Vilborg Einars-
dóttir formaður félagsins og Eva Einarsdóttir kennari við Ljós-
mæðraskólans. Tveir fulltrúar Ljósmæðraskóla íslands, þau
Kristín Tómasdóttir yfirljósmóðir og prófessor Sigurður S.
Magnússon skólastjóri Ljósmæðraskólans. Einn fulltrúi frá heil-
brigðisráðuneytinu, Ingibjörg R. Magnúsdóttir deildarstjóri sem
var formaður nefndarinnar.
Nefndin vann að endurskoðun laga Ljósmæðraskólans og jafn-
framt að því að Ljósmæðraskóli íslands yrði fluttur milli ráðu-
neyta og skuli skólinn heyra undir menntamálaráðuneytið.
Var þeirri málaleitan vel tekið af viðkomandi ráðherrum, og