Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Page 19
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
59
Fyllsti vilji var til að leita leiða, en í framhaldi af þvi kynnti
Steinunn þann árangur, sem fengist hefði af samtölum hennar og
bréf til fjárveitinganefndar alþingis, að stéttartalinu hefði verið
úthlutað kr. 400.000,00 gamlar krónur og mátti þá þegar vitja
þeirra fjármuna. Á sama fundi kynnti hún ennfremur gjöf frá
Magneu Guðnadóttur yfirljósmóður í Vernesborg í Svíþjóð, sem
var að upphæð 800 sænskar krónur. Og síst má gleyma 20 þúsund
kr. gjöf frá heiðursfélaga okkar, Jensínu Óladóttur.
Björg Einarsdóttir ritstjóri mætti á fundinn og var hún beðin að
segja frá stöðu verksins og liklegum útgáfutíma. Björg taldi að
mikið hefði unnist þann mánuð, þ.e.a.s. júlimánuð, en um út-
gáfudag sagði hún ekki vilja tjá sig. Fram kom á fundinum að rit-
nefnd vill mikið til vinna að útgáfan geti tekist á árinu, og var rætt
um að reyna að finna starfsmann Björgu til aðstoðar, en þá voru í
starfi auk Bjargar vélritari og tvær aðrar stúlkur í hlutastarfi.
Björg lagði mikla áherslu á mikilvægi þess að hugsanlegur aðstoð-
armaður væri vanur hliðstæðum störfum og gæti unnið sjálf-
stætt. Ennfremur tók hún fram, að hún teldi óverjandi að slaka á
kröfu um vönduð vinnubrögð til þess að flýta verkinu. Það kom
fram sem ávallt, að ritnefnd stefnir að vönduðu verki, en það ætti
sín takmörk og útgáfan mætti ekki dragast endalaust.
Þá segir frá ritnefndarfundi 1. okt. sl. ár, og enn er fundarefnið
staða stéttartalsins og fjáröflun. í umræðu um stöðu stéttartalsins
kom fram að litlar eða engar líkur séu á útgáfu fyrir jól. Tillaga
kom fram um að ráða Helgu Þórarinsdóttur til aðstoðar Björgu,
ekki sist með myndaröðun í huga, sem Helga kvaðst fús til, og rit-
stjóri fagnaði að mega kalla hana til, þegar þurfa þætti. En þessi
fundur afgreiddi fjáröflunarmálið á þann veg, að leitað skyldi
eftir samvinnu við fjáröflunarnefnd féalgsisn um sameiginelga
fjáröflunm, og leyfi stjórnar um að ágóði renni til stéttartalsins.
Var það auðsótt og fór fjáröflun fram í torgsölu 5. des. og skilaði
tæplega 700 þús. gkr., sem sjá má í reikningum stéttartalsins.
Timinn leið og upp rann herrans árið 1981. Á ritnefndarfundi
20. jan. með ritstjóra, útgáfustjóra og ritnefnd, var kynnt og
gengið frá ráðningu nýs starfsmanns, Guðbjargar Magnúsdóttur,
skal hún skila hálfs dags vinnu í aðstoðarstörfum við samantekt á
æviskrám stéttartalsins.
Ritstjóri fagnaði þessari ráðstöfun og kynnti fyrir Guðbjörgu