Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Qupperneq 24
64
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Á síðasta áratug hefur fleygt fram tækni við gerð monitora.
Jafnhliða hafa hrannast upp lífeðlisfræðilegar upplýsingar um
fóstur og móður, bæði fyrir og í fæðingu.
Það er nú samdóma álit að samdráttur legsins valdi skertum
blóðskiptum móður og fósturs.
Sú skoðun er og í gildi að áður en óafturkræfar fósturskemmdir
verði, hljóti fóstrið fyrst að vera útsett fyrir einhverju álagi og sé
þessu álagi leyft að aukast umfram það sem fóstrið geti umborið,
leiði það til varanlegra skemmda á fóstrinu, eða jafnvel dauða
þess. Því miður hefur enn ekki tekist að finna nákvæmlega þá
stund þegar svo er gengið á varabirgðir fóstursins að það ræður
ekki lengur við álagið og kemst í hættu (foetal distress).
Rétt er að undirstrika að samdrættir eru endurtekið álag, sem
öll fóstur eru útsett fyrir, en áhættufóstur (high risk) með lítið
álagsþol (reserve) vegna ýmisskonar meðgöngusjúkdóma móður-
innar, fylgjuþurrðar, Iyfjaáhrifa eða breytinga á blóðþrðystingi,
eru þá þegar undir talsverðu álagi, svo aukinn samdráttur í hríð-
um og fæðingu er það aukaálag, sem setur fóstrin í áðurnefnda
hættu (distress).
Ennþá greinir menn á um hvernig túlka eigi ýmisleg séreinkenni
í ritum, en reynsla hefur fengist með því að skoða niðurstöðurnar
út frá sameiginlegri útkomu úr ritunum, ástandi barnsins eftir
fæðingu, þekktum sjúkdómum móðurinnar á meðgöngu og útliti
fylgju eftir fæðingu. Einnig hafa verið gerðar margvíslegar dýra-
tilraunir, en auðvitað er ekki hægt að leggja út i rannsóknir með
móður og barn til þess að sannprófa hvort álit okkar á ritunum sé
rétt.
Orsakir fósturálags (Foetal distress)
í allt að 25% fæðinga er naflastrengur vafinn einhvers staðar
utan um líkamann. Þar sem fóstrið er í afmörkuðu þröngu um-
hverfi, einkum og sér í lagi þegar vatnið er farið, aukast líkur á því
að naflastrengur komist í klemmu. Nú þekkja menn ákveðin
mynstur í fósturhjartsláttarriti, sem tengd eru þrýstingi eða
klemmu á naflastreng.
Önnur orsök fyrir fósturálagi (distress) er fylgjuþurrð (insuffi-
cientia placentae). Þetta hugtak felur í sér að öndunar- og næring-
arþörf fósturs sé ekki fullnægt. Þar sem góð loftskipti og blóð-