Ljósmæðrablaðið - 15.04.2002, Qupperneq 21
Líkindamat
meb tilliti til litningagalla
fósturs eftir hnakkaþykktarmælingu
Krístín Rut Haraldsdóttir ljósmóðir
Hugbúnaðurinn sem notaður er á
Fósturgreiningadeild Kvennadeildar til að
reikna út tölfræðilegar líkur fyrir
litningaþrístæðum 21, og 13 eða 18 hjá fóstri
er frá Fetal Medicine Foundation í London.
Byggt er á gögnum frá yfir eitthundrað þúsund
mælingum á fóstrum við 11-14 vikna
meðgöngu. Stöðugt bætist við þennan fjölda
og í dag tökum við á Fósturgreiningadeild
Kvennadeildar þátt í gagnasöfnun ásamt
mörgum öðrum þjóðum og aukum þannig
reynslu okkar og þekkingu.
Til þess að fá afnot af hugbúnaðinum þarf að
sækja námskeið hjá Fetal Medicine Foundation,
taka skriflegt próf og senda inn 50 myndir sem
sýna mælingar á hnakkaþykkt fósturs.
Myndirnar eru yfirfarnar af sérfræðingum
Fetal
Medicine Foundation. Ef viðkomandi stenst
þessi próf fær hann leyfi til að nota
hugbúnaðinn og skuldbindur sig jafnframt til
þess að senda yfirlit á sex mánaða fresti sem
fer inn í gagnabankann. Einu sinni á ári sendir
hver skoðandi inn fimm myndir til að sýna að
mælingar séu framkvæmdar á viðeigandi hátt.
Notkun þessa hugbúnaðar er því ströngum
skilyrðum háð til að tryggja gæði upplýsinga
sem fara í gagnabankann.
Við skráningu í tölvuforritið er sett nafn
verðandi móður og fæðingardagur. Ef konan
hefur áður átt fóstur/barn með þrístæðu eru
þær upplýsingar skráðar. Þá er sett inn haus-daus
lengd fóstur og niðurstaða hnakkaþykktarmælingar.
Eftir það reiknar forritið tölfræðilegar líkur á
litningagalla fósturs út frá aldri og sögu verðandi
móður annars vegar og mælingum á hnakkaþykkt,
lengd fósturs og höfuðmáli hins vegar. Forsendur
líkindamats er að fósturstærð sé á bilinu 45 - 84
mm.
í eftirfarandi dæmum er sýnt hvernig líkindamat
er háð aldri verðandi móður, fyrri sögu og
hnakkaþykktarmælingu.
Hér er sýnt hvemig hnakkaþykktarmæling getur
haft áhrif á líkindamat með tilliti til limingagalla
fósturs. Líkur geta minnkað eins og sýnt er í dæmi
eitt eða aukist eins og sýnt er í dæmi tvö. Mikilvægt
er að verðandi foreldrar geri sér grein fyrir að um
líkindamat er að ræða, en ekki endanlega
niðurstöðu um litningagerð fósturs eins og fæst
við legvatnsástungu eða fylgjusýni. Líkindamat
getui' hjálpað verðandi foreldmm að taka ákvörðun
varðandi legvatnsástungu, annað hvort að hætta
við ástungu ef líkur á litningagalla fósturs em litlar
eða réttlætt áhættuna ef líkur á litningagalla eru
auknar.
Kristín Rut Haraldsdóttir
ljósmóðir Fósturgreiningadeild
Kvennadeildar Landspítalans.
First Trimester Risk of Trisomies
Matemal age: 38 years, gestational age: 11W + 1D, fetus 1
Background risk of trisomy 21 Using 0 First trimester NT
1 : 46 Background risk of trisomy 13 or 18 1 : 155
Adjusted risk of trisomy 21 1 : 3 Adjusted risk of trisomy 13 or 18 1 : 6
Mynd 1:
Kona fædd 1962 með enga fyrrí sögu um litningagalla fósturs. Fósturútlit var eðlilegt og
mælingar í samræmi við meðgöngulengd. Hnakkaþykkt mældist 1,3 mm. Líkur á þrístæðu
21 út frá aldrí móður eingöngu eru 1:129 en eftir hnakkaþykktarmælingu 1:592. Einnig hafa
líkur á þrístæðu 13 og 18 minnkað.
First Trimester Risk of Trisomies
Matemal age: 37 years, gestational age: 11W + 1D, fetus 1
Background risk of trisomy 21 1 : 129 Background risk of trisomy 13 or 18 1 : 214
Using 0 First trimester NT
Adjusted risk of trisomy 21 1 : 592 Adjusted risk of trisomy 13 or 18 1 : 986
Mynd 2:
Kona fædd 1961 sem fyrír átti fóstur/barn með þrístæðu 21. Mælingar fósturs voru í
samræmi við meðgöngulengd. Hnakkaþykkt mældist 3,3 mm. Líkur á þrístæðu 21 út
frá aldri og fyrri sögu eru 1:46 en eftir hnakkaþykktarmælingu 1:3. Einnig hafa líkur
á þrístæðu 13 og 18 aukist. Petta fóstur reyndist vera með þrístæðu 18.