Akranes - 01.01.1952, Blaðsíða 10
Engu blaði er skyld-
ara að minnasl herra
Sveins Björnssonar for-
seta en þessu blaði, svo
mjög sem hann hafði
það i hávegum, greiddi
götu þess og viðhafði
sterk orð um efni þess,
takmark og tilgang. —
Vinátta hins látna for-
seta í garð blaðsins var
því ekki aðeins heiður
þess, heldur hafði hún
auðvitað mikilvæga
þýðingu fyrir álit þess
og vinsældir.
Hér vil ég minnast
þessa merka mannvin-
ar með þeim orðum,
sem ég minntist hans
á fundi í Rotaryklúbb
Akraness, sem bar upp
á dánardag forsetans:
„Sagan geymir sitt,
en fyrirfram vitum við
lítið um gang hennar,
og eftir á virðist okkur
sem ýmislegt falli þar
á annan veg en okkur
finnst eðlilegt, eða við
vildum vera láta.
Okkur finnst það ef
til vill einkennilegt, að
hinn fyrsti forseti lýð-
veldisins skuli ekki
vera fæddur á Islandi,
heldur í sambands-
landinu, og að hin
fyrsta íslenzka forseta-
frú skyldi vera dóttir
þeirrar þjóðar, sem
frelsisstríð stóð við um
margir aldir.
Sveinn Bjömsson
gekk þegar í „háskóla“
í heimahúsum, á trú-
ræknu fyrirmyndar-
heimili á gamla góða
íslenzka vísu. Á heim-
ili, þar sem þjóðholl-
usta, jafnréttiskennd og vöm fyrir hina
veiku og lítilmagnann, var grunntónninn,
sprottið af rótgróinni feðratrú í marga ætt-
liðu. Þarf ekki lengi að fletta Isafold gamla
Björns til þess að sannfærast um þennan
megin tilgang.
Raunvemlega hefur Sveinn Björnsson
lífsstarf sitt með nýrri öld, því að hann
varð stúdent árið 1900. Hann er því full-
aiaarmnar. v íó
SVEINN BJORNSSON
FORSETI ISLANDS
Fæddur 27. febrúar 1881. — Dáinn 21. janúar 1952.
tiðamaður þegar frelsisbarátta þjóðarinnar
stendur sem hæst. Þegar frelsi og fyrir-
heit krístallast með nokkru millibili í fjör-
kippum þjóðarinnar allrar á hinum verk-
legu sviðum, fjár- og félagsmála.
I þessu ljósi skiljum við betur en ella
frumkvæði Sveins sjálfs, markvissa og
mikilvæga þátttöku í ýmsum framfaramál-
um þjóðarinnar á þessum fyrra lielmingi
merkilegu innlendu
nytja- og framfara-
tæki verður nafn
Sveins Björnssonar ó-
hjákvæmilega tengt:
Eimskipafélag Islands,
Brunabótafél. Islands,
Sjóvátryggingarfél. Is-
lands, Vélsm. Hamar,
Bifreiðafélag Islands,
Hið ísl. flugfélag. Við
hinar fyrstu ísl. kvik-
mynda sýni n gar, sem
Islendingar gengust
fyrir, og Rauða Kross
Islands, svo aðeins
nokkuð sé nefnt.
Þá er þó ótalið það,
sem ekki hefur haft
minnsta þýðingu út á
við, því að það fer ekki
milli mála, að Sveinn
Björnsson hefur bein-
linis lagt grundvöll að
allri utanríkisþjónustu
landsins. Sem fyrsti
sendiherra hennar,
meðan þjóðin var enn
í tengslum við Dani.
Með rikisstjórastarf-
inu, þegar landið varð
viðskila við Dani, og
með forsetadæminu,
eftir að sambandinu
var slitið, er Sam-
bandslagasamningur-
inn var útrunninn.
öll þessi störf hins
látna, mikilhæfa for-
seta mótuðust af
mannást, mildi og
næmri réttlætiskennd,
þar sem trúin á lífið
og ódauðleikann var
mælisnúra og kærleik-
urinn, sem er eilífrar
ættar og uppspretta
allra gæða.
Við þökkum honum
hin mikilvægu störf í þágu lands og þjóð-
ar. störf sem áreiðanlega voru unnin fyrir
augliti Guðs. Við samhryggjumst honu
hans, börnum, og ástvinum öllum, og
biðjum Guð að blessa þau öll, sem og
þjóðina í heild.
Blessuð sé minning herra Sveins Björns-
sonar.“
Ól. B. Björnsson.
10
B
AKRANES
J