Akranes - 01.01.1952, Page 32
Lýsissamlag
íslenzkra
botnvörpunga
REYKJAVÍK
Sími 7616 (2 línur)
STÆRSTA OG FULLKOMN-
ASTA KALDHREINSUNAR-
STÖÐ A ÍSLANDI.
* * * * * *
Lýsissamlagi'ð selur lyfsölum,
kaupmönnum og kaupfélögum
fyrsta flokks kaldhreinsaS méö-
alalýsi, sem er framleitt við hin
allra beztu skilyrÖi.
+ + + + * +
líðandi menn í milljónatali. Til hughreyst-
ingar og andlegrar lækningar þeim, sem
óttinn og vonleysið hefur yfirbugað og
rænt allri trú og trausti á Guð og menn.
Hér er um óþrjótandi verkefni að ræða.
Verk, sem verða ekki unnin nema með
persónulegum sigrum þeirra, sem hafa
einhvern boðskap að flytja með eigin þjón-
ustu, og fyrir traust skipulag þeirra sam-
taka, er margfalda þessa iðju, sem efla
þarf og auka í öllum klúbbum, sem lönd
og álfur tengja saman, hvaða trú eða kyn-
flokki, sem félagar þeirra krmna að til-
heyra.
Ef vér höfum ekki trú á tilgangi eða
takmarki þessa merka alheimsfélagsskap-
ar. ættum vér ekki að láta telja oss til hans,
því að þá erum vér sem'dauðir félagar,
lík, sem mengar lífsloftið fyrir þeim,
sem annars hafa skilyrði til að lyfta merk-
inu hátt, og láta gott af sér leiða á óteljandi
vegu. Og þess er nú full þörf í þeim heimi,
sem er friðlaus og flakandi í sárum, en
með daglegu framferði sinu ákallar sífellt
meiri eymd yfir réttláta sem rangláta, yf-
ir rika sem snauða, sjúka og heilbrigða,
yfir aldraða sem ómálga böm.
Ég held, að vér hér í fámenninu, ættum
að hafa enn betri aðstöðu til áhrifa en
ýmsir aðrir, ef vér erum vakandi yfir
hinum réttu tækifæmm, og þá fyrst og
fremst með því að rækja sem bezt hinar
fáu félagsskyldur. Ef til vill getum vér
lika lært mikið af hverjum klúbb fyrir
sig með nánari skipulagðri samvinnu.
Með því að sækja fundi hver hjá öðrum
eftir því sem færi gefst. Með því að láta
ekki dragast úr hömlu að senda mánaðar-
bréf, helzt jafnóðum. Þann veg verður
efnið ferskara og meira lifandi, og ef það er
dregið mikið saman, kemst það ekki að
í dagsskránni og verður daufara og líflaus-
ara. Hin fersku mánaðarbréf og aðrar
fréttir geta einmitt orðið klúbbunum bæði
til hvatningar og eftirbreytni og þannig
ein af þeim mikilvægu skyldum, sem
rækja þarf. Þá er það áreiðanlega til að
auka félagsþroska og samheldni að syngja
a. m. k. i fundarlok, og þurfa klúbbamir
helzt að eignast sinar eigin söngbækur og
syngja mikið. Einnig hefur húsnæðið, mat-
ur, og öll umgengni mikið að segja, og
þurfa klúbbarnir að vera nokkuð kröfu-
harðir við sjálfa sig um þetta atriði. Þá
hefur það að sjálfsögðu mikið að segja, að
fundarstörf séu vel rækt og fari vel fram,
svo og að félagar komi sér ekki hjá því
um of, að flytja erindi, — t. d. starfsgrein-
arerindi, — og bjóða í klúbbana efnilegum
ungum mönnum, eins og ég hefi minnzt
á áður.
í heimsmálunum eru veður válynd, það
er því rík þörf á, að allir menn og félags-
samtök, — eigi síður Rotary-félagar en
aðrir, — séu sér þess meðvitandi, að hver
einstaklingur, hver klúbbur, hvert land
32
AKRANES