Akranes - 01.01.1959, Qupperneq 12

Akranes - 01.01.1959, Qupperneq 12
yfir 40 stiga hita, tvö eða þrjú undanfarin dægur. Frúin kom með meðölin, lyfsalinn leit á þau og hvíslaði því að konu sinni, að eina tegundina ætti ég að fá enn og væri hama að fá í lyfjabúðinni niðri. Fór hún svo þangað með listann og ég á eftir henni um sömu dyr sem ég kom. Kvaddi þennan góða vin minn og bjóst ekki við að sjá hann aftur í þessu lífi. Kona hans hafði farið úr stofunni fram í lyfjabúðina og lokið erindi sínu. Þótti mér leitt að geta ekki kvatt hana og þakkað henni. — Með- an ég beið þarna eftir afgreiðslu, sé að við hlið mér stendur Sigurjón Jónsson, sem þá hafði verið með mér um nokkurra vikna skeið í Landshankanum. Hann bjó við Skólavörðustíg 6 (?) og var nú að leggja af stað heim til sín. „Við getum orðið samferða“, sagði ég, „því að ég fer sömu leið. Hver er veikur hjá yður og hvaða lyf eruð þér að sækja?“ „Svefnmeðöl handa konunni minni. Hún hefir ekki getað sofnað eitt einasta augnablik nú í 5 dægur; þetta er 6. dægr- ið og ef þessi meðöl ekki duga í nótt, ætlar læknirinn að sprauta hana með svefnlyfi". Ég þekkti árangurinn af þessum spraut- irm og sagði við Sigurjón í leiðinni upp eftir: „Viljið þér nú ekki verða mér samferða til hans Isólfs bróður míns og heyra hvað hann segir um veikindi konu yðar. Hann hefir einmitt hjálpað mörgum, sem feng- ið hafa langvarandi svefnleysi og læknarn- ir hafa verið komnir á fremsta hlunn með að sprauta. Ég verð yður svo samferða niður eftir aftur og þarf ekki að standa neitt við; aðeins skila meðölunum“. Sigurjón var tregur til þess að fara lengra upp eftir Skólavörðustígnum en heim til sín, en harst eins og í leiðslu og ósjálfrátt unz við vorum komnir svo langt, að hann sá að litlu munaði. Við komum inn til Isólfs. Hann var að ljúka við að afgreiða mann einn og konu. Klukkan var þá 10 minútur gengin í tólf. Ég skilaði lyfjunum og sagði: „Jæja, héma koma nú glösin", (og sagði honum með fám orðum hvemig mér hefði gengið). Var hann þá fljótur til að segja: „Fékkstu þau öll?“ (þ. e. meðölin), og sagði ég að svo væri. Varð hann þá glaður við og sagði: „Það var gott! Mig hefir vant- að þau mjög bagalega“. „Jæja“, sagði ég, „en það er nú maður með mér, sem mig langar til að hafi tal af þér. Hann var mér samferða neðan úr Apóteki og var að fá svefnlyf handa kon- xmni sinni, því hún hefir ekki getað blund- að í 5 dægur; það er 6. dægrið í nótt“. Tekur Isólfur þessu fálega og segir: „Það er þýðingarlaust fyrir hann að tala við mig, ég get ekki hjálpað kcnunni, þvi mín meðöl eiga enga samstöðu með lyfj- um læknanna; það verða að líða a. m. k. tveir dagar frá því að menn hætta að nota þau þangað til mín meðöl geta „verkað“ nokkuð. Hann verður að nota þau sem hann er með“. „Jæja, en viltu samt ekki tala við mann- inn, ég dró hann hingað með mér!“ „Það hefðirðu ekki átt að gera. — Ég tala ekkert við hann!“ Sá ég þá, að ísólfur fór að föndra við tvö glös og staldraði ég því við fáein augna- blik, þótt ég sæi, að hann mundi ekki sinna Sigurjóni, sem beið framm í forstofunni. Varð ísólfur svo samferða mér þangað, snýr sér að Sigurjóni og segir: „Eruð það þér, sem fylgdust með homnn Jóni hingað“. Sigurjón kvað já við því. „Jæja, hann (Jón) var að biðja mig um meðöl handa konunni yðar, en segir, að þér séuð með svefnmeðöl handa henni frá lækni. Hér eru nú tvö glös, sem ég læt yður fá fyrir beiðni Jóns, en ef þér notið þau, þá tek ég það fram við yður — og bið 12 AKRANES
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Akranes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.