Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 15

Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 15
en Ingvar sagði, „að hann væri nú bráð- um orðinn góður“. „Hvað er þetta!“ segir Isólfur, „geng- ur þeim svona seint, læknunum, að lækna kal, að það tekur 8—9 vikur? — Ég held að það megi lækna að fullu á jafnmörg- mn dögum“. Varð ég þá undrandi nokkuð og spyr: „Á 8—9 dögum? Hefir þér tekizt það, eða hefirðu reynslu fyrir þessu?“ „Já, ég hefi talsverða reynslu fyrir þvi: Það eru ekki nema fáir dagar, síðan konan hans Wilhelms gamla Schram fékk fulla bót við fúasári á fæti, er hún hafði haft um mörg ár, og er hún þó öldruð orðin. En er Eyvindur ekki ungur maður?“ „Fúasár?“ spyr ég, „en er það ek.ki allt annað en kal?“ „Jú, að vísu, en lækningin við hvoru tveggja getur verið hin sama“. „Hvers konar lækning er það, og er hún ekki vandasöm?“ „Nei, auðveld mjög, ef rétt er að farið, og það geta allir gert“. „Hvaða meðöl eða ráð hefir þú notað?“ „Það er að hafa amicu tínetur, og blanda hana rétt, því sé hún of sterk, brennir hún, en sé hún of veik, feygir hún“. „Þú segir, að þetta geti allir; ekki kynni ég að blanda þetta svo, að rétt væri, en ef mér tækist það, hvað ætti ég svo að gera?“ „Þú gætir fengið rétta tilsögn um þetta hjá þeim sem kann það, siðan hellir þú arnicu tínetrmni í sárið og sverfir alabast- mrsstein, sem þú lætur einnig í sárið og bindur um. Að 7—8 dögum liðnum á ég von á, að allt sé vel gróið. Svona hefir mér reynzt það og einnig nú við frú Schram: Sárið, sem var á fæti hennar fyrir rúmri viku síðan og hún hefir enga bót við feng- ið áður um fjölda mörg ár, er nú gróið svo, að þar sjást þess engin merki að neitt sár hafi verið“. „Hvaðan fær maður alabasturstein?“ spurði ég. „Hann má víða fá, ég fæ hann oftast ágætan frá Vestmannaeyjum og nota hann mikið við fúa- og kalsár, og það gefst mér nú svona“. „Hví nota læknar ekki þessi ráð, eða gera þeir það?“ „Nei, ég veit það reyndar ekki, en gjöri ráð fyrir, að þeir þekki þau ekki, og noti sín meðöl og sínar aðferðir við þessu sem öðru og gefst eflaust vel, en það er sein- virkt og dugar stundum ekki til neins gagns". Þannig var samtal okkar um þetta at- riði, en þau voru mörg, sem hann fræddi mig um, of mörg til þess að ég muni þau öll, eða telji þörf á að geta þeirra frekar. En öll voru þau þannig, að ég sannfærðist um það æ hetur, hversu hér var um ó- venjulegan mann að ræða, einnig á þess- um sviðum: gjörathugulan, hugvitssamam og hugsandi ávallt um að hjálpa með ráð- um og dáðum, ekki sökum eigingirni, met- orða eða með miklu fjasi, þvi allt var þetta ísólfi fjarri skapi, enda mátti segja, að hann gæfi meðöl sín og ráð, en seldi e"kki. Hann tók oftast 1 eða 2 krónur fyrir glas- ið og fékkst lítt um hvort borgað var eða ekki. Hitt gekk homnn nær, að fjöldi manma leitaði til hans og fengu góðan bata við það og oftast fullan, án þess að þeir létu á sér heyra eða skilja hvort þeim þætti betur eða verr, hvað þá að þeir hin- ir sömu greiddu lionum einn eyri hvað þá meira. En sárast famns honum, þótt sjald- an hefði hann orð á því, að mernn þessir höfðu oft leitað lækna áður en þeir komu til Isólfs, án þess að þeir geti nokkuð að gert, en þökkuðu þeim, læknunum það einum, að þaðam hefðu þeir fengið lækn- imgxma, en alls ekki frá honum. Það var þvi eigi að undra, að þvilíkur maður, sem ísólfur var, viðkvæmur í lund og velvilj- AKRANES 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.