Akranes - 01.01.1959, Page 16

Akranes - 01.01.1959, Page 16
aður, finndi vanþakklætisvott í þessu og ranglæti, einkum þegar hann vissi, að svo herfilega var brotið á móti sannleik- anum og reynslu maxmanna sjálfra, sem einnig vissu, engu síður en hann, að hjálp- in kom frá honum en ekki læknunum. Hins má aftur á móti með sanni geta, að margir — já, ótal margir — voru Isólfi þakklátir mjög og sáu það við hann. Þeir elskuðu hann og virtu. Svo var um mig, og mitt heimili, að þótt ég hefði engan skyldleika við hann haft — en ég var nú bróðir hans — þá notaði ég sjaldam annan lækni en hann, nema um mikil meiðsl og þvi um líkt væri að ræða. Ég og heim- ih mitt allt eigum því, eins og margir aðr- ir, um sárt að binda að hafa misst hann og fá eigi framar að njóta manngæzku hans og mörgu góðu ráða við sérhverju því, er að veikindum laut alla þá tíð, er hans naut við, og þykist ég aldrei hafa goldið honum að fullu, þótt ég hins vegar viti, að aðrir hafi eigi betur við hann gert, enda var hann ávallt þakklátur mér, þótt fá orð hefði hann um það. 1 sambandi við þetta vil ég geta þess, að kona ísólfs var honum góð kona, sem virti hann og elskaði að maklegleikum, þrátt fyrir það, þótt hann væri eigi opin- skárri um hugsanir sinar og fyrirætlanir við hana en aðra. Hann var of dulur i skapi, oftast sokkinn niðm- í eigin hugsan- ir, sem honum mun eigi aðrir hafa getað bætt um. ísólfur var þó, þrátt fyrir það, hversu dulur hann var og fáskiptinn, alls eng- inn þumbari né vanstillingamaður; hann var glaðlega sinnaður, hóflega gamansam- ur og glaðlegur, fróður um fjölmargt það, er aðrir vissu lítil deili á, því hann las mikið og mundi vel og svo hugsandi um það og annað er fyrir augu bar, að liann virtist oft annars hugar. Væri á hann yrt, var það oft svo sem hann „kæmi af fjöllum", og hefði ekki áttað .sig á því sem um var að vera eða ræða í það og það skiptið. Einkenni þessi höfðu fylgt honum alla hans ævi og frá bamæsku, enda leið hann mikið sem barn, vegna höfuðveiki, svo að blóð og vessar gengu út úr eyrum hans og var hann þvi ávallt heyrnarsljór, en augu hafði hann og sjón í bezta lagi. Meðal annars þess, er ísólfur sökkti sér niður í, var sönglistin, og samdi hann, einkum eftir hálfþrítugsaldur sinn, fjölda smálaga og lýsa þau flest geðslagi hans, glöðu, björtu, em þó innilega viðkvæmu. Trúmaður mun hann hafa verið, betri og meiri en ég eða aðrir höfðu hugmynd um, því að hann mátti aldrei neitt ]jótt heyra eða sjá og orðvarari mann veit ég ekki, né heldur friðsamari. í stómeðum og þjarki gat hann ekki staðið. Hann vildi heldur líða en stríða. Þá vil ég minmast á uppfinningar Isólfs, þær, sem ég veit eða vissi'um, þó vitneskja mín um þær væri takmörkuð. Isólfur fann upp nýja tegund neta- steins, kostaði mörgum hundruðum króna til þess að fá einkaleyfi fyrir þeim. Þeir þóttu ágætir og seldust vel. Einkaleyfið og öll skjöl voru í bezta lagi og lét hann þau öll fara í stjórnarráðið til tryggingar þess, að allt væri í lagi, eins og lög sögðu fyrir um. En einkaleyfið var brotið. Þá var önnur uppfinning Isólfs, að hami bjó til togaravörpu, sem færa mátti til í sjómnn, upp og niður, með lítilli fyrir- höfn, svo að með henni mátti veiða síld og hvem annan fisk, hvort sem hann hélt sig hátt eða lágt í sjónum. Helzti hjálpar- og styrktarmaður í þessu efni var holl- vinur hans, Jóhannes Bjamason skipstjóri, einn hinna mætustu manna og þaulreynd- asti skipstjóri á þilskipum og togurum. Varð Jóhannes þegar svo hrifinn af þess- ari nýjung, að hann fór með Isólfi hverja ferðina eftir aðra hér út i flóann og sund- 16 AKRANES

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.