Akranes - 01.01.1959, Síða 17

Akranes - 01.01.1959, Síða 17
in, en skipakostur þeirra var jafnan af skomimi skammti. Loks kom Jóhannes þvi til leiðar, að skip Guðmundar Jóns- sonar á Reykjum, þá er það var við land- helgisgæzlu (Skallagrímur?) var fengið til þess að reyna vörpu þessa, en það gat eigi orðið ncma einu sinni, þvi skipið var losað úr landhelgisgæzlunni fyrr en nokk- urn varði og urðu þeir því að hætta við til- raunir sínar. Hafði Guðmundi Jónssyni litizt vel á veiðiáhald þetta og talið það til mikilla framfara, ef notað yrði, enda „starfaði" það samkvæmt því sem Isólf- ur hafði ætlað því að gera, og má nærri geta hversu mikil framför hefði getað af þvi orðið, að geta t. d. náð síldinni hvar sem var, jafnvel fáum föðmum undir yf- irborði og þótt sjór væri eigi sléttur. Hér strandaði enn á fátækt Isólfs og áhuga- leysi útgerðarmanna, enda mun þeim o. fl. eigi hafa verið nægilega ljóst, hversu mik- il framför væri í þessu. Hvað um upp- finningu þessa varð síðan, veit ég ekki og hefir það mál, sem önnur fleiri, fallið í gleymsku, enda man ég ekki til þess að ég innti Isólf eftir þessu hin síðari ár, og játa ég yfirsjón mína í þessu efni gagn- vart honum, sem mörgu öðru. Nú iðrast ég þess alls. Enn var það ein uppfinning Isólfs, sem ég imdraðist mjög, en það var samsetning efna, er hiti og kuldi höfðu þau áhrif á, að áhaldið sagði til um það, ef hiti t. d. í herbergi eða húsi steig um 2—3 stig. Áhald þetta var einfalt mjög, var hand- hægt og ódýrt mjög (2—3 aura) og reyndi hann það einu sinni í viðurvist minni og annars manns. Hann reyndi það þá þann- ig: í herberginu var 10 stiga hiti. Nú var það hitað upp í 14 stig, síðan í 18 stig, þá í 26 stig og loks upp í 34 stig (öll á Cel- sius) og stillti Isólfur áhaldið í öll skiptin svo áður en hitabreytingin varð, að það skyldi gera aðvart rnn það, hér um bil í þvi stigi sem því var ætlað er að því kom, að hitinn í herberginu næði því stigi, sem fyrir fram var tilætlazt og reyndist þetta svo, að á 14 stiga merkinu gerði það vart við sig á 15. stigi; á 18 stiga merkinu varð það nákvæmlega á hitastigunum 26 og 34. Hvað átti áhaldið að gefa til kynna og á hvern veg? Áhaldið átti að standa í sambandi við hringingaráhald: Efnið leystist í sundur við hið ákveðna hitastig, féll þá lóð eða steinn eða annað áhald niður á arrnað áhald (plötu), sem samstundis merkti við rafþræði, er stóðu í sambandi við liringing- aráhald í öðru herbergi eða húsi, svo nærri eða fjarri sem vera vildi. Dæmi: Menn sofa á lofti í húsi; niðri í húsinu eru 10 stig, en um nóttina kvikn- ar í húsinu og hitinn verður brátt 14— 15 stig. Áhaldið gefur þetta til kynna með hringingu í svefnherberginu og sjá þeir, sem þar sofa, að óeðlilegur hiti er í her- bergi því, sem áhaldið er í, og ekki átti að vera hlýrra en 10 stig; hitinn þar er kominn upp í 14—15 stig, eða meira eins og áður segir. Er þá sýnilegt, að þar er ekki allt með felldu. Þannig mátti reyna áhald þetta á hvaða hitastigi sem var írá o—go stig eða jafn- vel fleiri stig. Hversu mikið öryggi í þessu var fólgið og jafnframt áhrif á brunabótagjöld öll, má nærri geta að hefðu getað orðið mikil, en hér fór sem áður, að þetta mun hafa fallið niður og hugmyndin um þetta í gröfina með höfundinum. Um samsetning- una vissi ég ekki svo vel, að ég geti lýst henni rétt, enda tilgangslaust nú, en hitt veit ég, að hún var einföld mjög og ódýr. Loks vil ég geta þess, að ísólfur fann upp áhald eitt er margfaldaði vatnsafl í straumlygnu vatni svo, að harui varð 10- faldur 100-faldur og jafnvel 1000-faldur. Áhaldið mátti nota þótt engin vatnsfall- AKRANES 17

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.