Akranes - 01.01.1959, Síða 18

Akranes - 01.01.1959, Síða 18
andi straumur væri, enginn foss o. s. frv. og gat þvi knúið fram vélaafl, eins og um stóran foss væri að ræða. Þetta var einnig einfalt og ódýrt, en ég hirði eigi um að lýsa þvi frekar, né þvi máli yfir höfuð að öðru leyti en því, að hann mun hafa reynt áhaldið í ölfusá og Þjórsá, þar sem straumurinm líður hægt fram og að það reyndist alveg eins og hann ætlaðist til. Ýmislegt fleira hafði Isólfur á prjón- unum annað en þetta; voru það áhöld til þess ætluð að létta mönnum vinnu, m.a. vefstóll, sláttuvél og róðrarvél, sem öll voru frumstæð og gjörólík öðrum áhöld- um af þessu tagi. En hvernig var nú lundarfar og inn- ræti þessa ágæta manns? Lundarfar hams var góðlymdi og still- ing. Ég sá hann aldrei reiðast, heyrði hann aldrei segja neitt ljótt orð né heldur leggja neitt illt orð til nokkurs manns, en hann var tortrygginn þannig, að svo virt- ist, að hann byggist ekki ávallt við hinu bezta af annarra hálfu og hefir hann ef- laust haft ástæðu til þess og reynslu nokkra, engu síðtn en aðrir; stundum fanmst mér hann vera um of var um sig og láta sér falla ýmislegt það þungt, sem hann átti við að etja. Var það vitanlega fátæktin og erfiðleikarnir í því, að koma því í framkvæmd sem hann var að sýsla með, en aldrei lét hann á þessu bera, og væri einhver honum innan handar eða sýndi honum hjálpsemi, var hann þeim hinum sama hjartanlega þakklátur og glejondi þvi aldrei: þóttist enda aldrei geta fulllaunað það, þótt lítið væri. Það var oft að ég sá hann áhyggjufull- an, en af hverju vissi ég ekki, og ef ég spurði hanm hvað það væri, sagði hann: „Það er ekkert, en lagast bráðum“. Ef ég svo spurði hamn: „Get ég nokkuð hjálpað þér?“ Var þá eins og hann vaknaði af draumi, glaðnaði við og sagði: „Þakka þér fyrir; jú, ég þarf að borga . . . ., en vant- ar dálitið til þess í bili“. Innræti hans var áreiðanlega gott og göfugt. Hann mátti ekkert aumt sjá og því síður vamm sitt vita, og var strangur mjög við sjálfan sig. Aldrei vissi ég til þess að hann bragðaði vin eða tóbak, og þótt hann vissi, að ég gerði það, talaði hann aldrei neitt um það, og hvað tóbaks- nautn mína áhrærði — en hún hefir ávallt verið helzt til mikil — bar oft svo við, að þegar ég leitaði læknisráða hans, sagði hann aðeins þetta: „Heldurðu ekki að þú gætir hætt að reykja meðan þú ert svona; það væri hollara fyrir þig“. — Vímnautn mín náði aldrei lengur en til tvitugsaldurs, en þá var hanm aðeins 15—16 ára að aldri og hafði engin afskiþti af mér né ég af honum i þessum efnum, enda urðum við þá báðir bindindismenn (4. okt. 1885 og ávallt síðan), en hvorugur okkar þó nein- ir ofstækismenn eða afskiptasamir mjög í annarra garð í þeim efnum. Hann varð brátt áhugasamur ungtemplar, söngiðk- andi og dáður mjög fyrir dagfarsprýði, létta lund og lífsgleði, eins og Bjarni bróð- ir okkar- Allt það, er ég hefi ritað hér um þenn- an bróður minn, er svo satt og rétt, sem ég veit það fyrir guði og samvizku mimni sannast vera, án tillits til þess, að við vorum svo nákomnir að skyldleika, sem við vorum, enda veit ég, að honum hefði sízt verið þægð í því að vera oflofi borinn. Það var eitt málefni eða öllu heldur fé- lag, sem Isólfur hafði hinar mestu mætur á, það var Erimúrarafélagið. Þar voru og beztu vinir hans, einkum Guðmundur Loftsson o.fl. og þar var hann tíður gestur á fundum, enda vann þvi félagi margt gott og þarft starf, m, a. tónsmíðar og höfðu vist allir félagsmenn hans þar mikl- ar mætur á homum. JÖN PÁLSSON. 18 A K R A N E S

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.