Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 20

Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 20
voru ríkir þættir í lífi hennar og starfi, innan heimilisins sem utan. Með hliðsjón af hinu ytra umhverfi, og hinum andlegu uppeldisáhrifum, eigum við auðveldara með að skilja skapgerð Pét- urs Magnússonar, viðmót hans og viðhorf til manna og málefna. Hann var þegar á unga aldri mótaður af fegurð og mikil- fengleik umhverfisins. Þegar hann var kominn til vits og ára, var skapgerð hans mótuð af tign og traustleika, sem fékk vaxtarmátt og næringu í hollri heiman- fylgju, þar sem uppistaðan var ráðdeild og raunsæi, en ívafið umburðarlyndi og hjartahlýja upplýst af kristinni trú og kristilegu siðgæði, sem aldrei fellur úr gildi. Eðliskostir hinna mikilhæfu Gils- bakkahjóna runnu saman í sterkan streng í eðlsfari Péturs Magnússonar. Hinir miklu mannkostir hans hafa ekki aðeins orðið sjálfum honum og hans nánustu til farsældar, heldur hafa þeir og orðið til að móta all verulega menn og málefni sam- tíðar hans. Líf Péturs Magnússonar sýndi skilmerkilega, hvernig umhverfið, heimil ið og góð aðbúð getur haft mikilvæg áhrif á líf manna, viðhhorf þeirra og viðfangs- efni. Gilsbakkaheimilið var sannkallað menningarsetur í sinni sveit. Þar fengu ýmsir leiðandi menn þjóðarinnar undir- búning undir skólagöngu, og lagði þvi séra Magnús grundvöllinn að athafnalífi þeirra af kostgæfni og ötulleik. Hjá því fór því ekki, að Pétur Magnússon fengi þann undirbúning undir lífið, sem gerði hann einn hinn þarfasta mann okkar fá- mennu þjóðar. Það var þvi ekki nema eðlilegt, að hann legði út á menntabraut- ina. Að loknu stúdentsprófi, lagði Pétur Magnússon fyrir sig lögfræðinám og lauk hann því 1915. Gerðist hann þá starfs- maður Landshanka Islands og gegndi því starfi til 1920. Þá tók hann að sinna mál- færslu, og var hæstaréttarlögmaður um 20 ára skeið. Hann var framkvæmdastjóri Ræktunarsjóðs og hankastjóri Búnaðar- bankans frá 1924—1937. Bankastjóri Landsbanka Islands var hann frá 1941— 1944, og aftur frá haustinu 1947 til dauða dags. Hann var alþingismaður óslitið frá 1930, og fjármála-, viðskipta- og landbún- aðarráðherra frá því í október 1944 þar til í febrúar 1947. 1 miðstjóm Sjálfstæðis- flokksins átti hann sæti frá 1932. Auk þess sem hér er talið, átti Pétur sæti í mörg- um mikilvægum nefndum um hin marg- víslegustu efni. Árið 1916 kvæntist Pétur ágætri konu, Þórunni Ingihjörgu Guðmundsdóttur, gull- smiðs í Reykjavík. Heimili þeirra var frá- bært að gestrisni, höfðingsskap og myndar brag. Þau hjón eignuðust eftirtalin 8 böm: 1. Magnús, forstöðumaður, Reykjavík, kvæntur Sigríði Jónsdóttur. 2. Guðmundur, hæstaréttarlögmaður, kvæntur Sigríði Níelsdóttur, Reykja- vik. 3. Sigríður, húsfreyja, gift Lars Faaberg siglingafræðingi, Stokkhólmi. 4. Ásgeir, lögfræðingur, deildarstjóri í Stjórnarráðinu, kvæntur Sigrúnu Hannesdóttur, Reykjavík. 5. Andrés, forstjóri bæjarútgerðar Akur- eyrar, kvæntur Svanhviti Reynisdótt- ur, Akureyri. 6. Stefán, lögfræðingur, kvæntur Bryn- dísi Einarsdóttur, Reykjavík. 7. Þorbjörg, húsfreyja, gift Kjartani Jóns- syni lögfræðing og bónda, Guðna- bakka, Mýrasýslu. 8. Pétur, forstjóri, kvæntur Erlu Tryggvadóttur, Reykjavík. Gimnar, skrifstofumaður (utan hjóna- bands), kvæntur, Reykjavík. Það er eigi ætíð fullkominn mælikvarði á hæfni manna hve mörgum störfum þeir 20 AKRANES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.