Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 25

Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 25
an árangur einnig að þessu leyti. öll er- um við böm Adams og Evu, en fagnaðar- boðskapurinn um eilífa náð og miskunn drottins nær einnig til þjóna hans. Sumir þeirra, sem ráða yfir mikilli kímnigáfu, kimna vel að segja góðar sögur um starfs- bræður sína sem þóttu brokkgengir í fyrstu, en urðu síðar meir allt að því heil- agir menn. Heyrir þetta þó frekar til undantekn- inga, einkum í seinni tíð. Flestir prestar okkar eru mætir og grandvarir menn þeg- ar í upphafi vegar. Starfa þeir oft á tíðum einnig mikið að uppfræðslu sóknarbama sinna, skíra þau, ferma og gifta, og vinna ötullega í þágu menningar- og framfaramála. Þeir em því alls góðs maklegir af hálfu sóknar- barna sinna, og þá ekki sízt þess, að þau sæki vel guðsþjónustur þeirra. Ekki er léleg kirkjusókn samt eingöngu að kenna áhuga- og sinnuleysi safnaðanna. Safnaðarstarf fríkirkna stendur yfirleitt með miklu meiri blóma en safnaðarstarf ríkiskirknanna, hvar sem er í heimi, og þó einkum hér á Norðurlöndum. Söfnuðir fríkirkna sjá yfirleitt prestum sínvim og kirkjum prýðilega farborða nú orðið, og sú ábyrgð, sem þvi fylgir, styrkir betur en nokkuð annað safnaðarstarfið og þjapp- ar söfnuðinum saman í þróttmikla lífræna heild. Frikirkjm-nar em frjálsar og óháð- ar ríkisvaldi eða öðrum jarðneskum ytri öflrnn. Þær eru upp yfir það hafnar og eiga eðli sínu samkvæmt að vera það. Ríkiskirkjur hafa óbeinlínis lýst van- trausti á söfnuði sína og skapara með því að ganga á mála hjá ríkisvaldinu. Árang- urinn hefur orðið sá, að söfnuðimir hafa gerzt svo fráhverfir, að viða er ekki leng- ur um neinn fastmótaðan söfnuð að ræða. 1 stað hans er aðeins strjálingur af mið- aldra og gömlu fólki, sundurlaust og á- hugalítið um safnaðarstarfið. Bemm þetta saman við söfnuði fríkirkna hér á landi, Óháða söfnuðinn, Fríkirkjuna, Aðventista, Kaþólikka og Hvítasunnusöfnuðinn. Eða fríkirkjur erlendis þar sem kirkju- sókn á hverjum sunnudegi er um 80—90 af hundraði allra safnaðarmeðlima, og söfnuðimir starfa reglubundið í hverri viku í mörgum deildum. Undirstaða þeirra eru sunnudagaskólarnir, bamadeildimar, enda afar mikill áhugi fyrir þeim og mik- il rækt lögð við þá. Árangurinn af þeirri starfsemi kemur í ljós sem aukin kirkju- sókn strax eftir 3—5 ár. Hin frjálsu samskot, og tíundin sem viðast hvar er frádráttarhæf og skattfrjáls, og á að vera það, verða síður en svo til þess að gera safnaðarfólkið fráhverft kirkj- unni. Flestum finnst það, sem þeir fá fyrir ekki neitt, vera einskis virði. Gjöf skal gjalda, ekki síður þegar um hin mestu andlegu verðmæti er að ræða. Nægir þá ekki að láta einn mann standa hálf- skömmustulegan með bauk, eða láta bauk- inn jafnvel standa mannlausan frammi við anddyrið, í þeirri veiku von að ein- hverjir í söfnuðinum laumi svolitlu í hann af náð sinni. Betra er að láta samskota bauidnn ganga fyrir hvem einstakan, í fullu trausti og tilætlan þess, að allir láti þakkarfórn eða jafnvel fulla tíund af hendi rakna. Þakkarfórnin og tíundin er ein af innstu máttarstoðum trúarinnar og hefur bæði augljóst og dulið gildi. Hver einstakur safnaðarmeðlimur ætti að taka persónulegan þótt í sjálfri guðs- þjónustunni. Kirkjukórinn á ekki að þurfa að syngja sálmana einn. Hlutverk hans er það að vera öflugur forsöngvari og visa örugglega leiðina á brautum söngsins, en það er sjálfur söfnuðurinn, sem á að bera uppi sönginn að mestu leyti. Flestir safnaðarmeðlimir og kirkjugestir geta vel sungið sálmana og tekið undir tónið og eiga að gera það. Þeir, sem lag- AKRANES 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.