Akranes - 01.01.1959, Qupperneq 30
Kvenfulltrúar á bingi
SÞ. Frú Bodil Begtrup,
fulltrúi Danmerkur, er
á miSri myndinni.
(Social, Humanitarian and Cultural
Committee).
4. Gæzluverndamefndin (Trusteeship
Committee).
5. Framkvæmda- og fjárveitinganefnd-
in (Administrative and Budgetary Comm-
ittee).
6. Laganefndin (Legal Committee).
7. Sérlega stjómmálanefndin (Special
Political Committee).
Af þessum nefndum má segja að sú
fyrsta og sú síðasta gegni vandamestu
hlutverki, enda hafa þær langflest verk-
efni. Sjöunda nefndin var sett á laggimar
til að létta undir með fyrstu nefndinni og
er nú orðin föst nefnd á Allsherjarþinginu.
Hinsvegar geta allar ofantaldar nefndir
sett upp sérstakar undirnefndir til að
fjalla um einstök vandamál. 1 öllum þess-
um nefndum sitja fulltrúar allra aðildar-
rikjanna, sem voru i árslok 1958 81 tals-
ins.
Auk þeirra nefnda, sem nú vom taldar,
starfar svo sérstök Allsherjamefnd sem
kemur saman við og við á þingtímanum
til að ræða störf þingsins og greiða fyrir
gangi mála. f henni eiga sæti forseti Alls-
herjarþingsins og sjö varaforsetar ásamt
formönnum aðalnefndanna sjö.
I upphafi hvers þings skipar forsetinn
sérstaka nefnd, sem athugar kjörhréf allra
fulltrúanna.
Þá kýs Allsherjarþingið ennfremur tíu
manna nefnd til þriggja ára í senn, sem
ákveður árstillög meðlimarikjanna. Þessi
tillög em ekki fyrst og fremst miðuð við
ibúafjölda hvers ríkis, heldur er tekið til-
lit til þjóðartekna, gjaldeyrisástands og
einstaklingstekna í hverju landi. Fjárhags-
áætlun Sameinuðu þjóðanna fyrir árið
1957 var til dæmis 50.815.700 dollarar.
Af þeirri upphæð lögðu Bandarikin fram
33Vs%, Sovétríkin 13,96%, en lægstu
framlögin voru 0,04%, og komu frá lönd-
30
AKRANES