Akranes - 01.01.1959, Page 36
JÓN GlSLASON, fræðimaður:
Þættir úr borgfirzkri byggðasögu.
IV.
Menntun og frami.
Jón Einarsson yngri ólst upp austur á
Síðu að einhverju leyti á vegum Halldóru
abbadísar föðursystur sinnar. Ef til vill
hefur hann fengið undirstöðumenntun i
klaustrinu í Kirkjubæ eða jafnvel Þykkva-
bæ í Veri. En inn það eru engar heimildir.
Hann virðist komirm í þjónustu ögmund-
ar biskups Pálssonar í Skálholti fyrir 1540.
Séra Jón Halldórsson hinn fróði í Hitar-
dal segir, að hann. hafi verið sveinn hans.
Það virðist svo, að bræður Gissurar bisk-
ups, Jón yngri og Þorlákur og jafnvel
Halldór lika, hafi allir komizt í þjónustu í
Skálholti, áður en Gissur varð biskup.
Gissur biskup Einarsson er fyrir marga
hluti hinn merkasti maður, en ekki sízt
fyrir það, hve reglusamur og nákvæmur
hann var í starfi og mikill iðjumaður. Það
er sagt um hann, að hann hafi aldrei
verið iðjulaus. Hin greinagóða bréfabók
hans er einhver bezta heimildin um siða-
skiptaöldina hér á landi. Hann greinir þar
og frá ýmsu er snertir hann persónulega
og daglegt líf hans og annarra. Bókin er
því meira en venjuleg embættisbók. Húji
er að nokkru heimild inn líf Gissruar
sjálfs og greinir oft frá ýmsu er snertir
daglega hætti samtíðar hans. Það kemur
greinilega fram í bréfabók Gissurar, að
hann hafði mest dálæti á Jóni yngra af
bræðrum sínum, enda mun hann hafa ver-
ið um margt líkastur Gissuri biskupi, gæt
inn, hneigður til fræða og framúrskar
andi iðinn.
í bréfabók Gissurar biskups er fjöldi
greina, sem eru ritaðar til minnis. Hann
var frábærlega góður skrifari og viljugur
að skrifa svo einstætt er í íslenzkri sögu.
Hann virðist hafa verið boðinn og búinn
að rita hvaðeina, svo að hægt væri að
grípa til þess síðar, ef á þyrfti að halda.
Eini Skálholtsbiskupinn um alla sögu, sem
kemst til samanburðar um þetta við Gissur
biskup, er Brynjólfur Sveinsson. En á
hans tíð var öldin önnur og aðstaða öll
til slíkra hluta. Á þessu sviði er því Giss-
ur biskup fremri öðrum biskupum þessa
lands. En undirstaða þess, að Gissur bisk-
up var þannig, má hiklaust og ótvírætt
rekja til uppeldis hans og menntunar, sem
var langtum fremri menntun annarra ís-
lenzkra embættismanna um margar aldir.
Um það ræði ég síðar.
I minnisgreinum Gissurar biskups, sem
hann ritaði á heimleið til Islands 1540,
minnist hann á Jón yngra bróður sinn á
þessa leið: „Item feck skipherrann mier
raudan hatt anda jone frænda minum“.
Sýnir þessi setning, að Gissur biskup hef-
36
AKRANES