Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 39
kaþólsku biskupanna næstu áratugina á
undan.
Það er ekki hægt að gera sér fulla grein
fyrir því, í hvaða farveg fommennta-
stefnan hafi runnið hjá Gissuri biskupi og
Oddi lögmanni fyrstu árin. En þó er
hægt að sjá, að þýðingar þeirra á bókum
úr erlendum málum voru miklu betri en
síðar varð. Er það ekki greinilega af því,
að þeir voru snortnir af bóklegri fom-
menningu íslenzkri? Ég tel undirstöðuna
að finna þar. Og þegar á það er litið, að
Gissur biskup var alinn upp í klaustri.
Er þetta ofureðlilegt, þvi í íslenzkum
klaustrum vom fombókmenntir lesnar og
virtar. En hitt er vist, að áhrif fommennta-
stefnunnar hafa fallið í frjóan jarðveg,
þar sem voru ungir menn, sem þráðu
menntun og upplýsingu og dvöldu í Skál-
holti í tíð Gissurar biskups. Sennilegt er,
að Jón Guðmundsson hinn lærði eigi við
þessa stefnu með orðunum: „illfriisins ill-
ingar“. Þessi orð Jóns lærða sýna vel, að
menntaðir menn hér á landi á 17. og 18.
öld skildu ekki, né gei-ðu sér grein fyrir
hinni evrópsku menntun og viðsýni Giss-
urar biskups Einarssonar, sem hann flutti
til Islands fyrir miðja 16. öld. Þessi mennt-
un og stefna var eins og ferskur blær, sem
varaði um stund í íslenzku menntalífi,
en varð ekki meiri, vegna þess, að for-
ustumaðurinn féll frá, þegar mest reið á.
Það var óhamingja Islands mest.
Það er ekkert vafamál, að Jón Einars-
son yngri hefur komizt í snertingu við
fommenntastefnuna, meðan hann var í
þjónustu Gissurar biskups bróður síns i
Skálholti. Hann var nánasti trúnaðarmað-
ur hans. Hann þorði einn að segja hon-
um ill tiðindi, sem aðrir gengu frá. Hann
hefur því verið nákkomnari Gissuri bisk-
upi heldur en nokkur annar, hvað snerti
hugrenningar hans um þau mál, sem hann
hafði mestan áhuga á. Jón yngri var mjög
bókhneigður. Jón Halldórsson hinn fxúði í
Hítardal segir um hann í prestasögum sin-
um: „Hans sífelld iðja var að lesa og
skrifa". Einnig segir sama heimild um Jón,
að meðan hann var i þjónustu ögmimdar
biskups Pálssonar í Skálholti á síðustu ár-
um hans og biskup var orðinn sjóndapur
eða nær alveg blindux-, að ögmundur bisk-
up hafi gefið honum þann vitnisburð, að
enginxx af hans sveixium hafi betur stund-
að og þolað að vaka og sifeldlega að lesa
fyrú sér en hann. Þessar heimildii- bera
þess öruggan vott, að séra .íón yngri hafi
verið fyrir menntir bóklegar. Ég tel alveg
öruggt, að áhugi harxs hafi glæðzt við það
að kynnast áhugamálum bróður síns, Giss-
urar biskups um fonimexmtastefnuna. En
það er alveg víst, að séra Jón yngri hefui'
eirmiitt orðið fyrir áhrifum frá henni.
Áhugi hans og afkomenda hans fyrir
þjóðlegum fræðxmx má örugglega í'ekja
til þessai'ar stefnu, þó hún hafi orðið hjá
þeim íslenzk og þjóðleg, borið lítinn svip
af sams konar stefnum og áhrifum suður
í Evrópu.
Ég mun síðar að nokkru minnast á
þetta eftir þvi, sem heimildir leyfa. Hvem-
ig fornmenaitastefnan eða í'éttara sagt á-
hrif hennar, sem bárust hingað til lands
með Gissuri biskupi urðu undii'staða að
miklum menntum og fi'æðum alíslenzkum
í borgfirzkum byggðum með afkomendmn
séra Jóns Einarssonar yngi-a.
KAUPIÐ,
LESIÐ OG GEYMIÐ
AKRANES
AKRANES
39