Akranes - 01.01.1959, Page 43

Akranes - 01.01.1959, Page 43
þóttu þetta að vonum undarlegar ráðs- stafanir hjá heimatrúboðsmöninum, gerð- ist hann svo djarfur að malda í móixm, en fulltrúi heimatrúboðsins kvað slika svefnherbergissiði algenga að sumarlagi og skildi ekkert. í óánægju okkar með her- bergjaútvegunina. Eftir nokkrar vífilengj- ur lét hann samt til leiðast að hringja fyrir okkur og útvega herbergi á öðru gistihúsi, en gætti þess vandlega að fá greidda 15 aui'a fyrir símtalið. Sá málhalti var ekk- ert að tvinóna við sína fyrirgreiðslu, tók ferðatöskumar okkar hvora í sina hendi og skundaði til næsta gistihúss. Þótt aðkoman í Árósum væri með nokk- uð öði-um hætti en gerist og gengur í meniningarborgum, sem teljast vera ferða- mannabæir, varð dvölin þar hin ánægju- legasta og áttum við það ekki sízt hin- um ágætu hjónum Helgu og Oscar Andreassen að þakka. Frú Helga er dótt- ir sr. Brynjólfs Jónssonar á Ólafsvöllum, sem kvmnur var fyrir óvenjulegt minni, en maður hennar, Oscar Andreassen hefur vun langt skeið verið í fararbroddi meðal verkfræðinga á Jótlandi. Árum saman hafa þessi ágætu hjón haldið uppi mikilli og glæsilegri risnu fyrir Islendinga, sem til Árósa hafa komið og má með sanni segja, að þau hafi verið hin raunverulegu íslenzku ræðismannshjón borgarinnar þótt annar maður hafi gengt því embætti að nafninu til. Ekki er komið að tómum kofunum hjá þeim hjómun ef einhver vill fra'ðast um Árósaborg. Þetta var lengi vel smábær og fyrir 110 árunv voru ibúamir ekki nema 15000. Um 1880 kemur iðnbylt- ingin til borgarinnar og þá fjölgar fólk- inu til mikilla mvvna en 50% bæjarbúa lifa af iðnaði. Um 1940 má segja að menningarbyltingin komi. Þá er Árósahá- skóli reistur og verður hrátt merkileg menningarmiðstöð. Þar hafa meðal ann- arra tveir lslendingar verið kennarar, þeir Skvili heitinn Guðjónsson og Láms Einars- son, sem einna frægastur mun vera nvi- lifandi islenzkra visindamanna. Um margra ára skeið var Unmack Lar- sen, fyrrum dómsmálaráðherra, borgar- stjóri Árósa, mun harm hafa átt drjúgan þátt i því að gera Árósa að fyrirmynd annarra borga á mörgum sviðum. Undir forustu hans var t. d. gert meira átak í húsbyggingamálum í Árósum en víðast annars staðar á Norðurlöndum. Borgar- stjórinn stefndi að þvi, að sem flestir eign- uðust hús sín sjálfir og J)ótt riki og bær þyrftu að lána þeim fátækustu mest allt andrirði húsanna, taldi hann það borga sig, því á þann hátt yrði tryggð betri með- ferð á þeim en ella. Þá kom hann á þvi kerfi, að eftir þri sem hjón aútu fleiri börn eftir þri krkkaði húsaleigan. Á horgarstjóratíma Unmack Larsens hófust skipulagðar útiskemmtanir í görð- vvm borgarinnar á sumarkvöldum og sóttu þær 4—gooo manns á hverju kvöldi, en 25—30000 við hátíðleg tækifæri. Þessar skemmtanir þóttu mjög til fyrirmyndar og hafa aðrar borgir tekið þær upp t. d. margar sænskar. I félagsmálum standa Árósabviar nú mjög framarlega, t. d. hefur lengi verið þar einhver fullkomnasta starfsfræðsla Norðurlanda. Þá hefur verið starfrækt sérstök skrifstofa til þess að leiðbeina ungu fólki sem er i þann veginn að ganga í hjónaband og hafa margir notið góðs af þvi. Meðal þekktustu bygginga borgarinnar eru dómkirkjan, háskólinn, ráðhúsið og „gamli bærinn“. Ráðhúsið er tiltölulega ný bygging gert úr grænlenzkum marmara. Þar eru skrifstofur bjartar og vistlegar, en út í frá er ef til vill mest um hús þetta talað sökum þess, að í þvi er dýrasta rvvða A K R A N E S 43

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.