Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 46
OL. B. BJÖRNSSON:
Þœttir úr sögu Akraness 63.
HVERSU AKRANES BYGGDIST
5. kafli. — 1901—1925. — Vorhugur og vélaöld gengur í garð.
123. Sigurðsstaðir.
Þar byggði fjTst lítinn timburbæ Sig-
urður Sigurðsson frá Sýruparti. Hann var
Akinmesingur i húð og hár. Faðir hans
var Sigurður bóndi á Sýruparti og konu
hans Guðrún Ásbjörnsdóttir frá Melshús
um, Erlendssonar.
Bærinn er byggður 1901 á kirkjuland-
inu, með rétti til erfðafestu. Hann er nú
talinn við kirkjubraut 53.
Sigurður Sigurðsson kvæntist 10. nóv
1888 Halldóru Vigfúsdóttur frá Grund
i Skorradal, en hún var þá orðin ekkja
eftir Jón Helgason frá Neðra-Nesi í Staf-
holtstungum. Þau bjuggu í Hjallhúsinu
og þeirra getið í sambandi við það hús í
7—9 tbl. 1955. Börn Halldóru af fyrra
hjónabandi voru: Kristín, sem síðar kem-
ur mikið við sögu á Sigurðsstöðum, og
Guðmundur, sem trúlofaður var Þórunni
Þórðardóttur í Brekkubæ, en hún giftdst
síðar síra Brynjólfi Magnússyni presti í
Grindavík. Guðmimdur var hins vegar
einn af þehn mörgu sem drukknuðu af
kútter Emilíu 1906. Guðmundur var geð
ugur maður og góður drengur.
í desember árið 1900 eru Sigurður og
Halldóra í Lambhúsum. Þau voru og víð
ar, en 1901 eru þau komin að Sigurðsstöð-
um. Halldóra lifði ekki lengi eftir þetta,
þvi hún andaðist 20. júní 1906, og er þá
talin 52 ára. Halldóra var hin mesta
myndar- og gæða kona.
Árið 1910 er Sigurðsstaðafólk komið að
Albertshúsi og er þar í nokkur ár.
4$
Sigurður Sigurðsson var sjómaður af
lifi og sál. Hann var ætíð kátur og létt-
lyndur og bamelskur. Sigiuður var lengst
af á skútum og afbragðs fiskimaður. Hann
réri einnig á opnum sldpum.
Þessi voru böm Sigurðar og Halldóru-
1. Sigriður, sem getið hefur verið um í
sambandi við Albertshús í 9.—12. tbl.
1946.
2. Ámi, sem getið verður í sambandi við
Sóleyjartungu.
3. Guðríður, kona Hervalds Björnssonar
skólastjóra í Borgarnesi, en hann var
einnig um mörg ár kennari hér. Her-
vald er mjög góður kennari, og hefur
haft góðan aga í skólum sínum. —
Hervald Ágúst Bjömsson er fæddur
á Óspaksstöðum í Hrútafirði 2. april
1890. Foreldrar hans vom Bjöm Gunn-
laugsson, Bjömssonar, og kona hans,
Sesselja Stefánsdóttir, Gunnlaugssonar
bónda á Hnjúki í Miðfirði.
Guðríður mun vera fyrsta barn,
sem skírt var í Akraneskirkju á vígslu-
degi hennar 23. ágúst 1896. Þau Her-
vald og Guðríður eignuðust einn dreng,
Birgi að nafni. Hann misstu þau að-
eins tveggja ára gamlan, og var það
þeim mikill harmur.
Svo virðist sem Guðrún Gisladóttir ljós-
móðir hafi keypt Sigurðsstaði og verið þar
nokkur ár. Kemur þangað frá Georgshúsi,
en fer þaðan líklega að Söndum. Þama er
hjá henni fósturdóttir hennar, Margrét
AKRANES