Akranes - 01.01.1959, Side 47
Sigurðardóttir, sem síðar giftist Ármanni
Halldórssyni.
Það mun vera 1913 sem Guðmimdur
Guðmundsson kaupir Sigmðsstaði og býr
þar meðan hann lifir. Hann var fæddur
í Reykjavík 4. september 1884. Móðir
Guðmundar var ættuð héðan, Sigríður Ás-
björnsdóttir frá Brekkubæ.
Kona Guðmundar var Kristin, fyrr-
nefnd, fædd á Akranesi 10. ágúst 1881
Þau giftustt 8. febrúar 1908.
Áður var Kristín gift Sigurði Jónssyni
frá Eyrí í Svínadal, en missti hann eftir
fárra ára sambúð. Þau bjuggu á Suður-
völlum og áttu tvö börn. Hefur þessa ver-
ið getið í janúar—marz hefti 1953. Árið
1928 reif Guðmundur hinn gamla, litla
bæ og byggði þar stærðar timburhús á
steyptum kjallara. Það var að stærð 6,20 X
6,30 m, og var með risi. Var Guðmundi
þetta hin mesta nauðsyn, því fjölskyldan
var orðin stór.
Guðmundur var sjómaður frá unglings-
árum. Hann réri á gömlu skipunum og á
himun nýju stig af stigi allt til togaranna.
Guðmundur var glöggur og greindur mað
ur, aðgætinn og prúður. Hann var reglu-
samur og sá vel fyrir sínu heimili. Guð-
mundur andaðist 24. júlí 1938.
Kristín er stillt og prúð kona og hefur
staðið vel í stöðu sinni á hinu fjölmenna
heimili.
Hér verða svo talin böm þeirra Guð-
mundar og Kristínar.
1. Sigríður, gift Þórði Þ. Þórðarsyni á
Hvitanesi hér, og þar mun þeiira
nánar getið.
2. Halldór, skipsstjóri, kvæntur Guðriði
Halldórsdóttur frá Bolimgarvík. Hall-
dór byggði sér nýtt hús á Sigurðs-
staðalóð við Kirkjubraut 51 og verður
þar síðar getið.
3. Sigurrós, gift Jóni trésmíðameistara
Guðmimdssyni í Guðnabæ. Hann
byggði sér hús við Kirkjubraut 23 og
verður þeirra getið þar síðar.
4. Guðmundur bifreiðastjóri í Tjarnar-
húsum, kvæntur Glöfu Guðjónsdóttur
frá Vogatungu. Þeirra og bama þeirra
er getið í sambandi við Tjamarhús í
sept.—okt. tbl. 1949, en siðan hefur
þeim fæðzt eitt bam, sem Dóra heitir.
5. Jónmundur, vélstjóri, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Aðalheiði Ölafs-
dóttur úr Reykjavík. Þeirra böm:
a. Jóhanna Iíristín, gift austuiriskum
manni, sem heitir Hans Plodei
Þeirra sonur Franz.
b. Guðmundur Kristinn.
c. Fanney.
d. Þórey Ruth.
6. Gréta, gift Kristni Guðmundssyni í
Reykholtsdal. Þeirra börn:
a. Andrés.
b. Kristín Munda.
c. Guðmundur.
d. Sigurður.
7. Júlíana, gift Lárusi Björnssyni frá Ósi.
Þau eiga heimili að Heiðarbraut 34.,
og verður þeirra getið þar siðar.
8. Petrea, gift Skarjihéðni Sigurðssyni.
sjómanni, fæddum á Skagaströnd 28.
desember 1914, en flytur hingað tij
Akraness 1935. Hann keypti húsið af
tengdamóður sinni eftir lát Guðmund-
ar, og þar hafa þau búið síðan. Þeirra
böm:
a. Gilbert Már.
b. Kristinn Guðmundur.
c. Alda Björk.
d. Sigrún Birna,
e. Hugrún Peta.
f. Skarphéðinn Elfar.
9. Ragnheiður Esther, gift Ragnari bif-
reiðastjóra Leóssyni. Þau búa á Sanda-
braut 6 og verður þeirra getið þat
síðar.
AKRANES
47