Akranes - 01.01.1959, Síða 54

Akranes - 01.01.1959, Síða 54
þeim forsendum heimtar hún, að Anna fari á brott og bíði enn týnda sonarins. 1 þessum átökum berast böndin æ fastar að Joe Keller. Brynjólfur Jóhannesson sýnir okkur, hvernig sálarangist manns fer stigvaxandi, hvernig andlitsdrættirnir eru búnir að birta okkur sektina og örvænt- inguna áður en orðin hafa staðfest dóm- inn yfir sekum manni. Hann hlýtur dóm, sem er jiyngri en hægt hefði verið að kveða upp í réttar- sölunum. Sönur hans krefur hann til reikningsskila og sýnir enga miskunn þeg- ar á hólminn er k'omið. Ungi maðurinn hefur verið að berjast fyrir hugsjónum á vígvöllunum og séð félaga sína falla í kringum sig. Faðirinn hefur verið örugg- ur heima að græða peninga. Þarna er ung kynslóð, sem var a. m. k. hugsjónakyn- slóð að gera auðshyggjukynslóðina ábyrga fyi ir gerðum sínum. Brynjólfur sýnir okkur svo langt hin í heima dýpstu örvæntingar, þegar hann deilir við son sinn og barmar sér við Kate, að öllu lengra verður ekki komizf. Hann sér ævistarf sitt hrynja til grunna. Sjálfsvirðingin, sem er hverjum manni lífsnauðsyn, ef hann á ekki að verða rek- ald á öldusjó lifsins, er að bresta. Sam- vizkubitið sviptir hann allri ró, og þegar það tengist óttanum við, hvað koma muni, verður örvinglunin næsta stigið. Boðskap- urinn um, að hann hafi i raun og veru átt sök á dauða sonar síns, rekur smiðs- höggið á verkið og endar ömurlegt ajvi- kvöld brotins manns. Joe Keller hefur beðið mikinn ósigur. Brynjólfur Jóhann- esson hefur unnið mikinn sigur. Helga Valtýsdóttir hefur hvað eftir ann- að sýnt, að hún er afbragðs góð skapgerð- arleikkona, en aldrei hefur leikur hennar verið eins heilsleyptur og að þessu sinni. Kate er að eðlisfari hvorki betri eða verri en konur gerast, helzt vill hún láta þeim líða vel, sem næstir henni eru, en ekki virðist það valda henmi beinum sálarkvöl- um þótt saklaus maður hafi verið dæmdur i stað manns hennar. Hlutverk hennar er frá höfundarins hendi gert mjög erfitt, þar eð hún verður allan leikinn út í gegn að túlka þá sannfæringu, sem hún hefur ekki sjálf. Þennan mikla vanda leysir Helga Valtýsdóttir svo vel af hendi, að á betra mun naumast verða kosið. Kate er of blendin til þess að leikhiissgestinn falli hún vel í geð, en þeir virða leikkonuna, sem túlkar hina eigingjörnu en jafnframt fórnfúsu Kate, þeim mun meira. Jón Sigurbjörnsson hefur einnig unnið sinn langmesta leiksigur í þessu leikriti, og má nú segja, að hann hafi skipað sér í röð beztu leikara landsins. Ögleymanleg- ust verða átökin við föðurinn í lok annars þáttar, þegar skaphitinn birtir boðskap langsærðra tilfinninga með þeim krafti, að undan svíður. Hvað minnst kveður að leik Jóns, þegar hann trúlofast önnu, en raunar er Helga Bachmann undir sömu sökina seld, bæði virðast hafa gleymt, að jietta er helgistund í lífi þeirra og allt })að bezta í tilfinningalifinu á að birtast i ásthýrum svip heilbrigðrar æsku en á- skapaðar hvatir karls og konu að koma í veg fyrir að fólkið kyssist eins hreyfinga- lítið og þegar tveir staurar eru bundnir saman og hengdir á sama klakkinn. Hlutverk Onnu veitir ekki tilefni til eins mikilla tilþrifa eins og þau, sem þeg- ar hafa verið nefnd, en samt verður það að teljast fjórða aðalhlutverkið. Helga Bachmann leikur önnu af hófsemi, og því betur sem á leikinn líðui'. Hún hefur skap- að stúlku með allt að því óeðlilegt vald yfir tilfinningum sínum. Slíkar stúlkur eru aðlaðandi á leiksviði og myndu líka vera það í daglegu lífi, ef þær væri þar að finna. Sennilega hefði átt betur við að Helga hefði gefið tilfinningunum lausari 54 AKRANES

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.