Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 55

Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 55
taumirm, ekki sízt í viðræðunuin við Kate. Guðmundur Pálsson fer prýðilega með hlutverk Georges. I.átbragð hans allt og hreyfingar sýna glögglega, að þarna er vitur maður á ferðinni, sem vill gera rétt og ekki þola órétt, eai forðast samt öll stór- vandræði. Guðmundur hefur vaxið af þessari leikmeðferð og má vafalaust spá honum sivaxandi gengis á sviðinu. önnur hlutverk eru lítil en vel með þau öll farið. Heildarmynd leiksins er meðal þess bezta, sem hér hefur sézt á sviði, og má vafalaust þakka Gísla Halldórssyni það að miklu leyti. Gísli er sýnilega bráðdug- legur og vandvirkur í öllu sem hann gerir og er gott til þess að vita, að svo mikill starfsmaður skuli einnig búa yfir list- rænum hæfileikum. Ég óska Leikfélagi Reykjavíkur innilega til samingju með þessa glæsilegu sýningu og vona, að sem allra flestir njóti hennar. ★ Þegar nóttin kemur Leikrit í þremur þnttum eftir Emlyn Willi- ams. — ÞýSandi: Óskar Ingimarsson. —- Le.ik- stjóri: Helgi Skúlason. Leikfélag Reykjavíkur sýndi í vetur sakamálaleikritið „Þegar nóttin kemur“. Leikrit þetta týndist fljótlega í nótt af- skiptaleysisins og' lái ég leikhússgestum ekki að svo fór. Efni leiksins er gamalt en raunar alltaf nýtt. Fólk, sem hefur gaman af að láta draga sig á tálar. Gömul kona, frú Bram- son (Auróra Halldórsdóttir), sem lætur aka sér i hjólastól og nýtur þess i krafti auðæfa sinna að láta aðra stjana við sig. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að augljóst er þegar frá upphafi, að konan er ekki lömuð. Auróra fer eftir atvikum vel með hlutverkið, einkum brosir hún skemmti- lega aulabrosi framan i morðingjann. Dan (Gísli Halldórsson). Gísli er góður leikari, en að þessu sinni hrást honum bogalistin, enda átti hann ekki heima i þessu hlutverki. Framsögn hans var óeðlileg, ýmist talaði hann svo lágt, að varla heyrðist, eða svo hátt, að orðin drukknuðu í hávaðanum. Vonandi gætir Gisli þess að láta ekki slikt henda sig aftur. Helga Bachmann var alltof stíf i hlut- verki frænku frú Bramson, en yfirleitt má segja, að frúin sé ekki nógu lifandi á sviðinu, gleymir því, að fólkið, sem hún á að túlka, eru holdi og blóði gæddar ver- ur, en ekki trédrumbar. Takist Helgu Bachmaim ekki að laga þetta, verður leikferill hennar óglæsilegri en ég vildi óska henni. Guðmundur Pálsson var eðlilegur í hlutverki Hubert Laurie og sama máli gegnir uin Nínu Sveinsdóttur, Guðninu Ásmundsdóttur og Jcn Sigurbjörnsson, en hlutverk þeiira eru öll svo lítil, að þau veita ekki tilefni til mikilla átaka. • Þegar nóttin kemur er eina víxlsporið, sem Leikfélag Reykjavíkur hefur stigið á þessu leikári, sem að öðru leyti er fé- laginu til mikils sóma. ★ Á yztu nöf Gamanleikur i þremur þáttum eftir Thornton Wilder. — ÞýSandi: Thor Vilhjálmsson. — Leikstjóri: Gunnar Eyjólfsson. — Leiktjöld: Gunnar Bjarnason. Ég sé í leikskránni, að leikritið „Á yztu nöf“ er talinn gamanleikur. Þá vita leik- húsgestir það. Ég var einmitt að velta því fyrir mér á leið úr leikhúsinu, hvar ætti að flokka leikinn, og hafði í huganum ákveðið, að hér væri hvorki um gamanleik né haimleik að raJða, heldur leifturmyndir úr sögu mannkynsins, þar sem aðalatriðið væri að sýna, að líf mannsins er stöðug barátta og hann er enn, eins og fyrir mörg þúsund árum, á valdi sömu hvata AKRANES 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.