Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 58

Akranes - 01.01.1959, Blaðsíða 58
en einnig í ]>essu leikriti sýnir hun kven- legan hlýleika, sem lyftir leik hennar langt yfir alla flatneskju sísuðandi kvenna, sem naumast þekkja upphaf né endi á sínu eigin suði. Ég minnist þess ekki í svipinn að hafa séð Bryndísi Pétursdóttur sýna neitt, sem kalla mætti leik, fyrr en i þessu leikriti. Hún er lengst af áhyrgðarleysið og aula- skapurinn lifandi kominn, unz hún í síð- asta þa'tti er orðin móðir og veldur því hlutverki Síemilega. Vonandi lætur frúin ekki staðar numið, þótt hún hafi unnið þennan sviðsigur. Baldvin Halldórsson fer ágætlega með Hennr, son Antróbushjónanna, enda er skapgerðarleikur alltaf hans sterka hlið. Þeir, sem hafa dálæti á spákonum, ættu ekki að láta leik Ingu Þórðardóttur i hlut- verki spákerlingarinnar fram hjá sér fara. Virtist hún mér bera eins mikið af kerl- ingum þeim, sem plokka peninga af fólki á útisamkomum víða erlendis og Herdis Þorvaldsdóttir af pallmeyjum vorgolunnar á síðkvöldum í Tívoli. Of langt er upp að telja allan þann fjölda leikenda, sem leika í „Á yztu nöf“, en yfirleitt fara þeir vel með hlutverk sin. Vafalaust hefur Gunnar Eyjólfsson unnið mikið verk og gott með leikstjóm sinni. Hraðinn er mikill og eðlilegur, allt er hámákvæmt og ber vitni um að hugsað hafi verið áður en farið var að fram- kvæma. En allir vita, hversu erfitt er að hugsa en auðvelt að framkvæma. * Undraglerin Ævinlýraleikur handa börnum í 5 þátturn eft ir Óskar Kjartansson. — Leikstjóri: Klemenz Jónsson. — Dansar: Eirik Bisted. — Söngvar: Egill Bjarnason. í fyrsta sinn sýnir Þjóðleikhúsið í vetur íslenzkan ævintýraleik. Eins og vera ber i ævintýraleikum vinnur fátækur maður af- reksverkin og fær kóngsdótturina og ein þrjú ríki að launum. Þessi lukkunnar pan- filus heitir Henrik, leikirm af Helga Skiila- syni, en kóngsdótturina leikur Sigríður Þorvaldsdóttir. Afrek Henriks eru raunar öll undra- glerjunum að þakka, en þau gaf honum gamall maður, sem Haraldur Bjömsson leikur með mestu prýði. Mennirnir, sem fáta*ki söngvarinn á í höggi við, em kjána- legi kóngurinn af Arkadíu (Valdimar Helgason) og vondi kóngurinn af Illiyríu (Ævar Kvaran). Aðal-sprellikarlinn i leiknum er hænsnahirðir kóngsins af Arkadíu (Bessi Bjamason). Bessi Bjamason virðist hafa sérstakt yndi af því að skemmta bömum, enda hlýtur hann mikið og innilegt lófaklapp að launum. Hreyfingar hans eru léttar, söngurinn greinilegur og mátulega hrað- ur og með hæfilega miklum gázka til þess að böm kunni að meta hann. — Helgi Skúlason er aðlaðandi söngvari þótt ekki vinni hann hug og hjarta barnanna á sama hátt og Bassi. — Valdimar Helga- son vekur alltaf kátinu bama með skringi- legum tilburðum og ágætu gervi. — Ævar Kvaran bætir upp með söng það, sem á kann að skorta leik við bama hæfi. Hins vegar gat ég ekki séð, að Sigríður Þor- valdsdóttir réði á neinn hátt við hlutverk kóngsdótturinnar. Hún virtist hvorki kimna að túlka hræðslu, reiði, fyrirlitn- ingu, gleði, þakklátssemi né ást. Vonandi á henni eftir að fara eitthvað fram, þvi að stúlkan er ekki ógeðþekk að sjá á sviði að öðru leyti en því, að hún kann ekkert að leika. Ekki geta Undraglerin talizt merkilegt verk, en ekki svo lélegt, að ástæða sé til að amast við flutningi þess. Leiktjöld em bragðlítil og gerir það sýninguna ó- skemmtilegri en hún þyrfti að vera. Leik- stjórn virðist hafa verið fremur góð. 58 AKRANES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.