Akranes - 01.01.1959, Side 59

Akranes - 01.01.1959, Side 59
Snæbjörn Galti cflir Sigurjón Jónsson. — Menningarsjóbur 5.?. Sigurjón Jónsson er orðinn mikiUórkvu- rithöfundur. Hann fæst nú ekki lengur við nein. smáverkefni, eins og silkikjóla og vað- málsbuxur. Fyrir nokkrum árum hóf hann skáldferil sinn upp á nýtt og æðra og víðara svið. Hann tekur sér fyrir hend- ur ýmis ný og óljós verkefni vir fornsög- vmi okkar. Á þessu voru engin vetlingatök hjá Sigurjóni, ekki einu sinn i fyrstu. Við hverja bók hefur hann vaxið. Hann hefur orðið víðsýnni. Hann hefur og sýni- lega tekið starf sitt mjög alvarlega. Hann túlkar sögupersónur sínar mjög alvarlega, með mikilli íhygli og vandvirkni. Það er auðséð, að hann kastar ekki höndunmn til neins. Hann er gerhugull, enda eru mörg samtöl og sálarlífslýsingar persónanna af- hurðavel gerðar. 1 þessunv skáldsögunv Sigurjóns eru fjöldi sannsögulegra persóna, en hann skáldar svo ívafið. Ferst honunv allt þetta mjög vel úr hendi og víða meistaralega. Sögur hans eru spennandi lestur, t. d. býst ég við að fáir leggi frá sór Snæhjörn Galta fyn- en hann hefur lokið lestrinum. Ymsar lýsingar og samtöl í þessari bók eru sérstaklega vel gerð. Bera þau fylli- lega með sér, að Sigurjón er vel gefinn, gott skáld, og engiim flysjungur eða hirðu- leysingi um skáldheiður simi. Þetta er vafalaust bezt gerða skáldsaga Sigurjóns. Hún eykur skáldhróður hans og ýtir undir hann að halda áfram á þeim skáldvelli, sem hann hefur hér helgað sér með stöðugt meiri og betri árangri. Þessi aðferð Sigurjóns dregur ekki vír gildi fomsagna vorra, né dregur þær ofan í svað til að affæra þær og aflaga. Miklvi fremur mmiu J)essar sögur Sigurjóns ýta undir menn að kynna sér viðkomandi sögu Islendingasagna og aðrar Islendingasögur, er Jæir hafa lítið lesið. Því miðm' eru of margar prentvillur í svo góðri bók. Þær munu ekki höfvmdin- vun að kenna, en leitt er það samt. Fg vona að Sigurjón eigi eftir að skrifa margar bavkur enn, því að ekki mun hon- mn kært að vera iðjulaus, og hann vex með hverju verkefni, og það er eins og Jiað á að vera hjá þeim sem skáldgyðjan hyllir. 01. B. B. Leiðrétting: I síðasta hefti Akraness, nvisprentaðist lína í kvæðinu „Þóra Hlaðhönd“, efth' Árna G. Eylands. Er höfundurinn og les- endui' blaðsins beðnir velvirðingar á J>essu. Erindið er efst á bls 161 til hægri og er rétt eins og það er bh't hér: ,.Að landi hér bar mig og baviðst ekki annar betri kostur en þín að leita, þitt ráð hefir mér og reynsla sannað í reyndimii mátti það gæfa heita. Ég hefði ekki þína hefnd umflúið, ef henni vildir þú gegn mér beita, nú hef ég að þínu bvii búið og bið þeirra griða, er mátt þú veita. AKRANES 59

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.