Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Side 84

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1900, Side 84
Sonurinn: »Ef eg væri Guð, þá skyldi eg láta koma þurk, svo alt heyið okkar þornaði«. Móðirin: >Já! Ekki held eg að þig vanti gáfurnar til þess drengur minn, nóg ertu greindur, en það gengur svona. Það hefir ekki átt fyrir þér að liggja«. Sjf :jc Kerling settist við eld gegnköld i vetrarliörkn, og seg- ir þá: »Grott á fjandinn að geta setið við eldinn þegar haun vill«. * * * Hann: »Heldurðu að þér geti alt af þótt eins vænt um mig eins og síðan við trúlofuðumst?« Hún: »Já! Þangað til eg sé annan, sem mér þykir fallegri«. 6 * * * A. Hver hefir verið mestur syndari, sem sögur fara af«. B. »Sjálfsagt Móses, þvi hann braut öll hoðorðin«. * # Úr prófasts-visitazíubók gamalli: »IIús staðarins fall- in. Kúgildi staðarins kveðst prestur sig upp etið hafa. Kirkja fyrir finst engin«. Tr. G. Austurlenzkar smásögur. Kryplingur nokkur var einu sinni spurður, hvort hann vildi heldur óska, að hann væri sjálfur orðinn rétt vaxinn eða allir aðrir væru orðnir eins og hann. Kryplingurinn svaraði: »Eg vildi heldur, að allir aðrir væru orðnir eins og eg, því að þá mundi eg ekki lita á þá eins og þeir lita nú á mig«. Ý * Ý Fátækur maður, sem átti einn húðarklár, fann einu sinni upp á þvi, til þess að afla sér peninga, að hann batt klár- inn á.hásnum í hesthúsinn svo að höfuðið vissi fram en taglið að jötunni. Hann auglýsti síðan, að i hesthúsinu sínu mætti sjá.undur mikið, því að hesturinn hans hafði taglið, þar sem aðrir hestar hefðu hausinn. Fólk flyktist að, til þess að sjá þetta, og allir urðu að horga nokkra aura fyrir að komast inn. En þegar þeir komu út, voru þeir sneyptir mjög af þvi að hafa látið gabhast þannig, en sögðu þó ekki frá bragðinu, því að þeir vildu gjarnan, að aðrir færu sömu för. Þannig flyktust flestir bæjarbúar að hesthúsinu og fátæki maðurinn græddi laglega fjárupphæð á svipstundu. (70)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.