Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1906, Blaðsíða 94
Vestmaimahöfn í sundinu milli Vogeyjar og Straumeyjar.
Marsvínagangan kemur yenjulega til eyjanna sunnan og
vestan úr hafi. En mjög er þetta stopul veiði og árlegur
afrakstur af henni misjafn. Sum árin veiða Eæreyingar
marsvín svo þúsundum skiftir, en þau eru stórar skepnur,
svo að veiðin er þá mjög ábatasöm. Kjötið er haft til
matar, en úr spikinu er brætt lýsi.
Giftingar.
Lítið á myndina (XI). Efst er 15—20 ára gömul
stúlka og er að hossa hrúðu. En karlmennimir eru famir
að gefa henni auga. Eftir að hún verður 20 ára vex karl-
mannahópurinn fyrir aftan hana, en hún lítur ekki við,
veifar hlævæng um kinnarnar og ætlar að láta ganga eftir
sér. En nú líða árin, og þegar hún er 25 ára, fer hún að
líta um öxl. Karlmannahðpurinn fyrir aftan hana er þá
farinn að þynnast, en þó eru enn margir eftir. Eftir þrí-
tugt lítur hún alveg við, en sér þá, sér til mikillar gremju,
að hópurinn hefir stórum þynst frá þvi sem áður var, og
að nú er orðið fátt úr að velja. Þegar hún er 35 ára
snýr hún sér alveg við á stólnum og mænir til karlmann-
anna, en þeim fer stöðugt fækkandi. Þegar hún er40ára
er hún því nær kropin á kné fyrir karlmönnunum, en nú
eru þeir örfáir orðnir, sem til hennar lita, og allir að ein-
hverju leyti gallaðir, sumir sköllóttir, aðrir skakkir og enn
aðrir eru kryplingar. Henni var nær að líta við í tíma!
En þetta er sett hér ungum stúlkum til viðvörunar,
svo að þær gæti þess, að árin líða ótt og að enginn er
ungur nema einu sinni.
3 apar og 3 Afríkumenn.
Þeir eru ekki ólíkir mönnum aparnir tveir, sem satja
efst á myndinni (XII) og eru að skrafla saman. Það er
karlapi og kvennapi, sem eru að hugsa um að taka saman.
Neðar á síðunni standa þrír Afríkumenn hjá sitjandi apa.
Darvínstrúarmenn mundu segja, að þar standi þeir hja
afa sínum gamla.
Tr. G. og P. G.
(80)