Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1938, Síða 70
en svo tekur viö litur, sem safnast þar fyrir og stæl-
ir pað gagnvart sterku ljósi — menn sólbrenna, sem
kallað er. Litarefni sezt djúpt i skinnið, og álita sum-
ir ljóslæknar, að pví fylgi mikið heilnæmi.
Birta, sem verkar á hörundið — sólskin, eða ljós
úr lækningalömpum — hefir pau áhrif, að svo nefnd
histamín-efni ganga úr skinninu inn í blóðið. Bessi
efni berast m. a. til magans og örva par saltsýru-
rennslið. En afleiðingin af pví er aftur aukin matar-
lyst, enda er pað algengt að lystarleysi batnar við
ljósböð. Svona eru athafnir líkamans saman knýttar
sem keðja.
Onnur áhrif birtunnar á hörundið eru pau, að úr
húðfitunni framleiðist D-fjörefni. En petta vítamín
stjórnar pvi, að kalk setjist i beinin, sem vera ber.
Annars fá börnin beinkröm. Petta er ástæðan til að
ljósböð eru ágæt til pess að lækna pann sjúkdóm.
Pað er ekki hollt að hafa íbúð móti norðri.
Mikla pýðingu hefir húðfitan í pví skyni að geyma
hitann í líkamanum, að sínu leyti eins og spikið und-
ir selskinninu. Hér er nokkur munur á konum og
körlum. Konan hefir mýkri og sléttari líkamsvöxt en
karlmennirnir, m. a. vegna pess, að tiltölulega meiri
fita er undir húð konunnar, sem jafnar og sléttar
allar útlínur. En konur pola líka betur kulda en karl-
menn, og er ljósasti votturinn um það, hve kvenfólk-
ið klæðir sig lítið. Samkvæmiskjólar eru til að prýða,
en ekki til að hlýja. — Pað kemur lika í ljós við
sundípróttina, hve konan hefir mikið kuldapol. Pegar
preytt er sund langar leiðir, t. d. yfir Ermarsund,
eru konur yfirleitt polnari en karlar, pótt peir hafi
meira vöðvaafl. En pað sem ræður er, að sundkon-
an kælist minna i sjónum. Húðfitan ver hana gegn
kuldanum.
Hreinsun og úrgangsefni. Pað fellur til sitt af
hverju, sem líkaminn getur ekki notað sér, og parf
að losna við. í fæðunni eru pað einkum tréefni, sem
(66)