Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Síða 51
í víðavangshlaupi í. R. vann sveit glimufél. „Ár-
manns“. Sundknattleiksmót íslands fór fram í Rvik;
þar vann og sveit glímufél „Ármanns“. Á knatt-
spyrnumóti íslands, sem fór fram í Rvík, vann „Val-
ur“ í meistaraflokki, „K. R.“ í 1. og 2. flokki og
„Valur“ i 3. fl. Landsmót i golfleik var háð í Skaga-
firði. Meistari varð Gísli Ólafsson, Rvík. Meistaramót
Islands í frjálsum íþróttum fór fram i Rvík. Meistar-
ar urðu: Finnbjörn Þorvaldsson, Kjartan Jóhannes-
son, Óskar Jónsson, Indriði Jónsson, Skúli Guð-
mundsson, Brynjólfur Ingólfsson, Páll Halldórsson,
Jóhann Bernhard, Hjálmar Kjartansson, Sveinn Ing-
varsson, Svavar Pálsson, Guðjón Magnússon, Oliver
Steinn, Jón Hjartar, Gunnar Huseby og Gunnar Stef-
ánsson. Meistaramót drengja var og háð i Rvik.
Meistarar urðu Bragi Friðriksson, Þorkell Jóhannes-
son, Óskar Jónsson, Svavar Gestsson, Halldór Sig-
urðsson og Magnús Þórarinsson.
Haldin voru fleiri héraðsmót en nokkru sinni fyrr.
Bœði ungmennafélög og íþróttafélög unnu mjög að
undirbúningi hátíðahalda 17. og 18. júní. Við lýð-
veldishátíðahöldin á Þingvöllum var þátttaka
iþróttamanna mjög glæsileg. Sýndu þar 160 karl-
inenn fimleika undir stjórn Vignis Andréssonar, en
aðrar íþróttasýningar féllu niður vegna illviðris og-
urðu að fara fram í Reykjavík siðar. Sýningar þessar
voru hjá 52 slúlkum frá glímufél. Ármanni, undir
stjórn Jóns Þorsteinssonar, og úrvalsflokkur lcarla
frá í. R., K. R. og Ármanni, undir stjórn Davíðs Sig-
urðssonar. íslandsglímunni (hinni 34.), sem fara átti
fram á Þingvöllum, var sömuleiðis frestað, og fór
hún fram í Reykjavík. Glímukappi íslands og
glímusnillingur varð Guðmundur Ágústsson frá
glímufélaginu Ármanni í Reykjavík. Hann fékk fagr-
an verðlaunabikar að gjöf frá ríkisstjórninni. Á lýð-
veldishátíðinni gaf í. S. í. 'Alþingi forsetahamar. Alls-
(49) 3