Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1946, Síða 69
berlok vegna ágreinings um dýrtiðarmálin. Hún sat
þó fram til 21. okt., en þá myndaði Ólafur Thors nýja
stjórn. Var það samsteypustjórn Sjálfstæðisflokksins,
Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins. Fimm af þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins iýstu þó yfir því, að
þeir styddu ekki stjórnina. Auk Ólafs Thors voru i
stjórninni: Áki Jakobsson, Brynjólfur Bjarnason,
Emil Jónsson, Finnur Jónsson og Pétur Magnús-
son.
Alþingi 1944 er hið lengsta, sem háð hefur verið
á íslandi. Fjöldi iaga og þingsályktana var samþykkt-
ur. Ólafsfjörður fékk kaupstaðarréttindi á árinu.
Útvegur. Afli var nokkru meiri en árið áður. Meira
var fryst af fiski en árið áður, en saltfisksfram-
leiðsla var lítil eins og að undanförnu. Veðrátta var
mjög hagstæð um sildveiðitímann, og þátttaka í síld-
veiðum var lítið eitt meiri en árið áður.
ísfiskveiði var um 175 000 tonn (árið áður um
164 000). Saltfisksveiði var 3700 tonn (árið áður
rúml. 400). Hraðfrystur fiskur var 55 200 tonn (árið
áður 31 800), harðfiskur 1300 tonn (árið áður 1200).
Síldaraflinn var alls 222 000 tonn (árið áður 182 000).
Saltaðar voru um 35 000 tunnur síldar (árið áður um
50 000). Bræðslusildaraflinn var 2 355000 hl (árið
áður 1 895 000). Meginhluti fiskafurðanna seldist til
Bretlands. Saltsíldin var seld lijálparstofnun hinna
sameinuðu þjóða.
ísfiskur var fluttur út á árinu fyrir 119.2 millj. kr.
(árið áður 109.8 millj. kr.), freðfiskur fyrir 47.6
millj. kr. (árið áður 31.2 millj. kr.), síldarolia fyrir
26.1 millj. kr. (árið áður 27.2 millj. kr.), lýsi fyrir 22
millj. kr. (árið áður 20.2 millj. kr.), sildarmjöl fyrir
13.1 millj. kr. (árið áður 6.1 millj. kr.), saltsíld fyrir
3.7 millj. kr. (árið áður 4.8 millj. kr.), óverkaður
saltfiskur fyrir 1.5 millj. kr. (árið áður 1.7 millj.
kr.), harðfiskur fyrir 1.1 millj. kr. (árið áður 900 000
(67)