Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1950, Blaðsíða 22
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR A ÍSLANDI.
I þriðja dálki hvers mánaöa»*f sem hefir yfirskriftina *T. í h.« (tungl í
hásuðri), og í töblunni á blaðsíðu (15) er sýnt, hvað klukkan er eftir íslenzk-
um miðtíma, þegar tunglið og sólin eru í hásuðri í Reykjavík. En komast má
að því, hvað klukkan er eftir íslenzkum miðtíma, þegar tunglið eða sólin
er í hásuðri annars staðar á íslandi, með því að gera svo nefnda *lengdar-
leiðréttingu« á Reykjavíkurtölunni. Verður hún -f- 4 mínútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík, og — 4 mín. fyrir hvert
lengdarstig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík. T. d. er Raufarhöfn
um sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdarleiðréttingin þar er þá
— 24 mín., og 5. júlí er sól í hásuðri frá Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08
(12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiðafirði liggur einu lengdarstigi vestar
en Reykjavík og lengdarleiðréttingin er þar 4 mín. Þann 6. febrúar er því
tungl í hásuðri frá Flatey kl. 3 28 (3 24 -f- 0 04 = 3 28).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miðvikudag.
Sólaruppkoma (su.) telst, þá er sólmiðjan er á uppleið 50 bogamínútum undir
láréttum sjóndeildarhring, en vegna ljósbrotsins er þá efri rönd sólar að verða
sýnileg, eða því sem næst. Sólarlag (sl.) telst á sama hátt, þegar sólin á niður-
leið er 50 bogamínútum fyrir neðan láréttan sjóndeildarhring og hverfur sólin
þá sjónum. Til þess að finna sólarganginn annars staðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt sem við sól eða tungl
í hásuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi aö eins eftir breiddarstigi staðarins, heldur
er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. í eftirfarandi töblu er
sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Reykjavík,
þegar sólargangurinn í Rvík stendur á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitíf
(+)» þegar sólargangur lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólar-
gangurinn styttist. Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tíma sólar-
lagsins"í Rvík, en dregin frá sólaruppkomutímanum. Sé breiddarleiðréttingin
negatíf (—), verður að taka forteiknið til greina.
Dæmi: Sólargangur 26. apríl á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar og 2Va
stigi norðar en Rvík.
Þenna dag er sólargangur í Reykjavíb 16 st. 15 mín. Breiddarleiðrétting
töblunnar fyrir 2J/2 stig norður og sólargang 16 st. er + 16 mín. en fyrir 17
st. + 21 mín. Fyrir 16 st. 15 mín. verður breiddarleiðréltingin því + 17 mín.
Lengdarleiörétiingin er — 24 mín.
í Reykjavík...............«n. 4 19 el. 20 34
Breiddarleiðrétting . . — 17 +17
Lengdarleiörétting . . — 24________— 24
Á Raufarhðfn..............su. 3 38 «1. 20 27
Annað dæmi: Sólargangur 25. okt. í Flatey á Breiöafiröi, sem er 1 stigi
vestar og 1 V« stigi norðar en Rvíb. Sólargangur í Reybjavík er 8 st. 49 mín.
f Reykjavík.................... 7 47 al. 16 36
Breiddarleiörétting . . +6 — 6
Lengdarleiörétting . .____+ 4________+ 4
f Flatey
su. 7 57
sl. 16 34