Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1950, Blaðsíða 40
kennilegur, ólgandi,. fullur af gáfum og þrám, ójafn-
vægi og öfgum.
Strindberg er fæddur fjórum árum eftir að Jónas
Hallgrímsson deyr (1849), svo aS miSaS sé viS eitt-
hvaS úr okkar sögu. Hann er ekki nema 7 árum eldri
en einn öndvegishöfundur, sem enn er meSal okk-
ar, Bernard Shaw. Á uppvaxtarárum Strindbergs
gerast ýmsir stórviSburSir i evrópiskri bókmennta-
sögu. Þá kemur út Rómverjasaga Mommsens, Frú
Bovary, rit Darwins um uppruna tegundanna, Jesú-
bók Renans, Kapital Marx og BrúSuheimili Ibsens,
svo aS eitthvaS sé nefnt til þess aS sýna andrúms-
loft andlegs lífs.
Á NorSurlöndum hafSi hugsæisstefnan veriS ráS-
andi lífsskoSun og listarstefna á 19. öldinni fram
undir þann tíma, þegar þjóShátíSin er haldin hjá
okkur. Þrátt fyrir mörg tilbrigSi er grundvallar-
skoSunin sú sama: á bak viS líf og strit stundlegs og
jarSnesks veruleika er veruleiki hugans, hugsjón-
anna, þaS er hinn eiginlegi heimur þess algilda og
eilífa. Reyndar má segja, aS þegar hér er komiS
sögu, séu hinir beztu menn í sænskum bókmenntum,
eins og Rydberg og Snoilsky, á báSum áttum eSa
hjá þeim hilli undir nýjan siS. Sá nýi siSur kem-
ur í algleymingi meS August Strindberg, fyrst í
leikritinu Meistari Ólafur, síSan i sögunni Röda
rummet. Þá hefst raunsæisstefnan eSa náttúrustefn-
an i sænskum bókmenntum og aS vísu fyrir áhrif
utan aS, fyrst og fremst frá skáldskap Ibsens og frá
gagnrýni Georgs Brandes.
Margar stoSir runnu undir þaS, aS Strindberg
varS boSberi þessa nýja tíma, persónuleg atvik úr
lifi og baráttu sjálfs hans, umhverfi hans og annar-
leg áhrif. Strindberg var aS vissu leyti lifandi staS-
festing á þeirri fræSikenningu Taines, aS skáld yrSi
til fyrir samstillt áhrif tíma síns og umhverfis og
erfSa. í þeirri kenning'u eru ávallt mikil sannindi,
(38)