Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 28. MAÍ2005
Fréttir DV
Kannarjarð-
skjálftavarnir
Dr. Abdul Kalam,
forseti Indlands
kemur til íslands á
sunnudag í opin-
bera heimsókn. Ind-
land er fjölmenn-
asta lýðræðisríki í
heimi og því er spáð
að það verði eitt af þremur
öflugustu hagkerfum í
heimi á næsta áratug.
Kalam hefur í hyggju að
kynna sér jarðskjálftavið-
vörunarkerfi hér á landi
ásamt því að kanna sam-
vinnumöguleika landanna í
lyíjaþróun. Hann mun
einnig kynna sér nýtingu
jarðhita til orkuframleiðslu
og vetnisverkefnið sem ís-
lensk fyrirtæki hafa leitt.
Hætta
viðskiptum
Hafnarfjarðarbær er
hættur viðskiptum við
Sparisjóð Ilafnaríjarðar. Á
fundi bæjarráðs í vikunni
var ákveðið að taka tilboði
frá KB banka og munu því í
framtíðinni öll viðskipti
Hafnarfjarðarbæjar fara í
gegnum hann. Hafnarfjarð-
arbær hefur frá upphafi
skipt við Sparisjóð Hafnar-
fjarðar en nýlega var gerð
umdeild hallarbylting í
bankanum þar sem
Mathiesen-ættinni var bol-
að út. Eftir það hafa fleiri
aðilar, eins og Fjarðarkaup,
íhugað að hætta viðskipt-
um við bankann.
Deilt um
skólamáltíðir
Stjóm foreldra-
ráðs Njarðvíkur-
skóla hefur skorað á
bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar að fara
ekki í útboð á skóla-
máltíðum í Njarð-
víkurskóla. Árna
Sigfússyni bæjar-
stjóra hefur verið falið að
svara erindi foreldraráðsins
skriflega. Jóhann Geirdal,
aðstoðarskólastjóri Njarð-
víkurskóla og bæjarfulltrúi,
segist mótfallinn hug-
myndum um útboð.
„Mötuneytið er oft kallað
hjarta skólans og krökkun-
um þykir vænt um konurn-
ar sem þar vinna," segir
Jóhann.
Hnífstungukonan Stella Björk Guðjónsdóttir mætti til aðalmeðferðar í Héraðsdómi
Reykjavíkur i gær. Stella játar að hafa stungið Kristmund Þorsteinsson í bakið en
bar fyrir sig að hann hefði margsinnis gengið í skrokk á henni. Stella og Krist-
mundur hafa fyrirgefið hvort öðru.
Stella og Krist-
mundur biðuað-
almeðferðar! gær.
Stella Björk Guðjónsdóttir stakk mann sinn í bakið aðfaranótt
15. nóvember á síðasta ári. Kristmundur Þorsteinsson, maður
hennar, vill alls ekki að hún fari í fangelsi en hvorugt þeirra
segist vita hvers vegna hún stakk hann. Þau höfðu verið á fimmt-
án mánaða fylleríi þegar hnífstungan átti sér stað.
Fyrir dómi sagði Stella að maður
sinn hefði margsinnis gengið í
skrokk á henni gegnum tíðina og
síðar um nóttina hefðu þau bæði
einfaldlega misst algjörlega stjórn á
sér. „Það var mikið búið að ganga á
og svo snappaði bara hann allt í einu
og þá gerðist þetta allt í einu," segir
hún.
Fimmtán mánaða fyllerí
DV íjaUaði um málið í apríl og
sagði Kristmundur Þorsteinsson,
kærasti konunnar, að hann hefði
fyrirgefið henni að fullu. Saman eiga
þau tvö börn, sem bæði hafa verið
tekin af þeim. „Við Stella enun rétt
nýbúin að tfna okkur upp úr óreglu
og svo kemur þetta mál úr djúpinu,"
sagði Kristmundur í aprfl. Stella
staðfesti fyrir dómi að á þessum
tíma hefðu þau verið í mikilli óreglu.
„Við vorum búin að vera á fylleríi í
fimmtán mánuði fýrir utan þrjár vik-
ur í einhverri edrúmennsku," sagði
Stella.
„Ég er ekki vön að
standa upp og stinga
einhvern með hníf."
Hafði gengið í skrokk á henni
„Ég var svona mitt á milli þess að
vera þunn og blindfull," sagði Stella
og bar fyrir dómi að Kristmundur
hefði margsinnis gengið í skrokk á
henni og benti á tíðar heimsóknir á
slysadeild í gegnum tíðina. Stella
segir Kfistmund einnig hafa spark-
að í sig sama kvöld og hún stakk
hann. Þau rifust mikið og Krist-
mundur hafði haft í hótunum við
hana þetta kvöld. „Við rifumst í
langan tíma," sagði Stella.
Atburðarásinni lýsir hún þannig
að þau hafl verið tvö að borða í
svefnherberginu. Þá hafi Krist-
mundur sagt eitthvað við hana sem
hún mundi ekki alveg, en sú orð
urðu til þess að hún stakk hann
djúpan skurð í bakið. Stungan gerði
það að verkum að annað lunga hans
féll saman.
Ekki vön hnífstungum
Stella sagðist ekki venja sig á lík-
amsárásir af þessu tagi. „Ég er ekki
vön að standa upp og stinga ein-
hvern með hníf," sagði Stella og
sagðist sjá eftir hnífstungunni. Tveir
félagar Kristmundar í íbúðinni
reyndu að hjálpa honum og brá
annar þeirra á það ráð að setja
dömubindi á sárið. Hinn sagði
Kristmundi að allt væri í lagi og að
hann ætti að fara að sofa. Skömmu
síðar fór Kristmundur út úr íbúð-
inni og hringdi á sjúkrabfl, einsam-
all. Kristmundur vill þó taka fram að
allt sé í stakasta lagi hjá þeim núna
og staðfestir Stella það. „Það er allt í
lagi hjá okkur núna og við höfum
verið edrú í tvo mánuði," sagði
Stella.
Dómsuppsaga verður í málinu
innan fjögurra vikna.
guðmundur@dv.is
f„Þetta lofar góðu. Sjónvarps-
auglýsingarnar byrjuðu síð-
astliðinn fimmtudag og við i
erum núna að senda iykia-
kippu til markhóps okkar, allra
á aldrinum 20 til 40 ára, þar
sem bæjarmerkið og spjöld
með áhersluþáttum átaksins
Sandgerðis-
bær-innan
Landsíminn
seilingar
koma fram, “ segir Sigurður
Valur Ásbjarnarson, bæjar-
stjóri í Sandgerði.„Átakið mun
ganga fram á haust. Auk sjón-
varpsauglýsingarinnar bætast
viö dagblaðaauglýsingar og
auðvitað lyklakippan. Það er
feikna skemmtilegt aö standa
íþessu."
Sjómenn ræna reiðhjólum af Hafnfirðingum
Prestar í kosningabaráttu í Hofsprestakalli
Þjófóttir Rússar
„Við tókum hjólin af þeim og ég
býst við að þeir verði kærðir," segir
Leifur Sigurðsson, varðstjóri hjá
Lögreglunni í Hafnarfirði, en síðast-
liðið þriðjudagskvöld þurfti að hafa
afskipti af þjófóttum, rússneskum
sjómönnum við Hafnarfjarðarhöfn
sem höfðu rænt nokkrum reiðhjól-
um úr bænum.
Leifur segir að afskipti lögregl-
unnar hafi minnkað mikið að und-
anförnu. „Já, eftir að höfninni var
lokað hafa afskipti okkar af þeim
minnkað mikið. Hér á árum áður var
hún mun meiri. Núna er girðing í
kringum höfnina vegna Schengen-
samningsins og mun meira eftirlit
með umferð um höfnina."
Hafnfirðingar hafa lengi kvartað
undan framkomu rússneskra sjó-
manna í bænum, þeir eru oft
drukknir á almannafæri auk þess
sem þeir hafa oft á tíðum verið til
Rússneskir sjómenn hafa stolið hjólum af
Hafnfirðingum.
ama í sundlaugum bæjarins þar sem
sumum finnst þeir þrífa sig illa og
eiga það til að fara ofan í laugina á
skítugum nærbuxunum en þannig
telja þeir sig slá tvær flugur í einu
höggi, þrífa sig og nærfötin sín.
johann@dv.is
Barist um brauð á
Vopnafirði
Hart er barist um brauð austur á
Vopnafirði. Veiðihlunnindi fylgja
prestakallinu og prestsefni hafa
opnað kosningaskrifstofur. Almenn
prestskosning fer fram í Hofs-
prestakalli í dag og að minnsta kosti
tvö prestsefni opnuðu kosninga-
skrifstofur fyrir allnokkru síðan.
Fjórir eru í framboði, þau Bryn-
hildur Óladóttir, Klara Hilmars-
dóttir, Stefán Már Gunnlaugsson og
Þóra Ragnheiður Björnsdóttir.
Fimmti frambjóðandinn, Stefán
Karlsson, hefur dregið framboð sitt
til baka. „Ég kom austur og sá að
þau Brynhildur og Stefán höfðu
bæði opnað kosningaskrifstofur. Þá
ákvað ég að draga mitt framboð til
baka enda þótti mér þetta helst til
mikinn farið," segir Stefán.
H9* jjTj^
Vopnafjörður Nokkrar landsfrægar lax-
veiðiárrenna um Vvopnafjörð.
Veiðiréttur í Hofsá fylgir emb-
ættinu sem löngum hefur runnið til
reksturs jarðarinnar og hafa verið
allnokkur hlunnindi af. Að sögn
Klöru Hilmarsdóttur, eins umsækj-
enda, mun vera sjaldgæft að til
prestskosninga komi. Nú séu tím-
arnir breyttir og hart barist um
brauðið.