Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Blaðsíða 50
50 LAUCARDAGUR 28. MAÍ 2005 Helgarblað DV Upphafið að einhveriu... Sagan segir að þetta hafi gerst einhvern veginn svona. Hópur fólks úr Sjálfstæðisflokknum, einkum konur, fer á fund Ásdísar Höllu Bragadóttur. Fólkið hefur fengið til- skilin leyfi hjá Davíð Oddssyni. Hópnum er boðið inn í stofti í Garðabænum. Eiginmaður Ásdísar býðst til að fara fram með börnin. •*.Það er boðið upp á kaffi. Þetta fer mjög hæversklega fram, fólkið ætl- ar aldrei að koma sér að efninu. AU- ir vita þó um hvað málið snýst, mik- ilvægi þess. Ýmis mál eru reifuð, það er farið vítt og breitt yfir stöðuna í stjórn- málunum, en loks kemur aðalatrið- ið fram. Tilgangur ferðarinnar í Garðabæ er að bjóða Ásdísi Höllu að vera í forystu Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík í borgarstjórnar- kosningunum að ári. Henni er gerð grein fyrir því að hún muni geta haft sigur í kosningunum - hún sé akkúrat manneskjan til að leiða flokkinn. Komin í vinnu ** Ásdís Halla hlustar á þetta lengi vel, gefur ekki neitt upp, situr með þennan sposka svip sem hún hefur. Loks, eftir svona klukkustund af þessu þófi, kveður hún upp um þetta: „Ég er búin að ráða mig í vinnu." Ekki eftirsótt djobb Þetta segir sagan að minnsta kosti. Punkturinn er að Ásdísi Höllu, þessum bráðefnilega stjórn- málamanni, flnnst ekki spennandi að koma til Reykjavíkur og reyna að vinna borgina fyrir flokk sinn. Hún vill frekar selja skrúfur og hefla í Byko. Maður láir henni svosem ekki. 0 Síðustu þrjú borgarstjóraefni Sjálf- stæðisflokksins hafa farið flatt á framboði sínu. Markús örn Ant- onsson hvarf aftur inn í útvarp, hóf síðara tímabil sitt sem útvarpsstjóri - það er varla ofmælt að kalla það niðurlægingarskeið. Nú á að skutla honum í sendiherradjobb; merki- legt hvað Sjálfstæðisflokkurinn tel- ur sig skulda þessum manni. Faljkandídatar Árni Sigfússon tapaði tvívegis fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og er nú bæjarstjóri suður með sjó. Manni >• finnst eiginlega synd að honum Egill Helgason skrifar um stjórnmálaástandið I borginni. Laugardagskj allari hafi verið spilað út í tvennum kosn- ingum þar sem hann átti ekki séns. Annars hefði hann kannski getað komið til greina í kosningunum á næsta ári. Framboð Björns Bjarna- sonar í borginni var bakslag á ferli hans sem hann jafnar sig seint á; það var einhver stærsta reiknings- skyssa í pólitík seinni ára þegar fjöl- miðlamenn og fylgismenn Björns ofmátu stöðu hans gjörsamlega. Djásnið í krúnunni Af er sem áður var að borgar- stjóraembættið var leiðin í feitasta djobbið á íslandi, sjálft forsætis- ráðqneytið. Þá leið fóru Bjarni Ben, Gunnar Thor, Geir Hallgrímsson, Davíð Oddsson. Þetta var þegar Reykjavík var hornsteinninn í valdakerfi Sjálfstæðisflokksins, sjálft djásnið í krúnunni. Hvar eru gömlu töfrarnir? Samt er nóg af fólki sem vill leiða þennan lista - en ekkert af því virð- ist nógu afgerandi til að geta unnið sigurinn sem flokkurinn lætur sig dreyma um. Gömlu töfrarnir eru ekki til staðar lengur. Vilhjálmur Vilhjálmsson er ágætlega traustur maður, en hann virkar kerfislegur og er laus við kjörþokka. Gísli Marteinn á hóp öflugra vina sem vilja koma honum alla leið í borgarstjórastólinn. Allir þekkja Gísla, en enn sem komið er þykir hann of léttvægur - þeir sem eru vanir honum í sjónvarpi taka ekki alveg mark á honum sem stjórnmálamanni. Það breytist varla á stuttum tíma. Júlíus Vífill Ingvarsson er kom- inn aftur á stúfana. Hann geldur þess að hann er óþekktur - fæstir Reykvíkingar þekkja hann á götu. Hann þarf að taka stóran rúnt í spjallþáttunum til að breyta því. Enginn veit fyrir hvað hann stend-_ ur. Þá má auðvitað ekki gleyma Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem hefur verið mikill baráttumaður í borgar- stjórninni og Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur sem hugsar ábyggilega sem svo - af hverju ekki ég? Er Davíð eina vonin? Kristinn H. Gunnarsson skrifar vangaveltur á heimasíðu sína þar sem hann segir að eina von Sjálf- stæðisflokksins til að vinna borgina sé að Davíð Oddsson snúi þangað aftur. Ég stakk reyndar upp á því fýrir síðustu kosningar að hann og Ingibjörg Sólrún hefðu vistaskipti, hann færi í borgina og hún í ríkis- stjórn. Það væri altént smá tilbreyt- ing. Margir sjá borgarstjóratíð Dav- íðs í ljóma; rámar í að þá hafi verið mikið blómskeið í borginni. Það er líklega ofmælt. En Davíð var þó laus við ráðleysið og ákvarðanafælnina sem einkennir R-listann. Þreyta og stöðnun Ég skrifaði í grein um daginn að það væri stjórnmálakreppa í borg- inni. Hún birtist í vanahugsun, ótta við nýjungar og í því að ekki er hlust- að á nýjar hugmyndir. Það er farið í framkvæmdir sem virka óskiljanlegar - bara til að gera eitthvað. Það er mik- il þreyta og stöðnun hjá stjórnvald- inu; hægfara embættismenn draga úr lífsþrótti og frumkvæði borgar- anna. Helsta einkenni kreppunnar er þó að flokkarnir í borginni eru í raun sammála um allt, úthverfastefnan ræður algjörlega för. Auglýsing um örnefni Skv. 2. gr. laga nr. 35/1953 með síðari breytingum, um bæjanöfn o.fl., og 8. gr. reglugerðar um störf örnefnanefnd- ar, 22. febrúar 1999, ber örnefnanefnd að skera úr ágrein- ingi um ný götunöfn og sambærileg örnefni innan sveitarfé- laga. Nefndinni hefur borist erindi þar sem farið er fram á að horfið verði frá götunafninu Geitagerði að Hólum í Hjaltadal í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna samnefnis við lögbýlið Geitagerði í sama sveitarfélagi. Hverjum þeim sem telur sig búa yfir vitneskju eða ábending- um, er að haldi komi við undirbúning úrskurðarins, gefst færi á að kynna örnefnanefnd álit sitt. Ábendingum skal skila til örnefnanefndar, Lyngási 7, 210 Garðabæ, eigi síðar en 30. júní 2005. 27. maí 2005 Örnefnanefnd Ari Páll Kristinsson formaður Húrra, ný hugsun! Þess vegna fyllist maður fögnuði þegar örlar á nýrri hugsun. Það ligg- ur við að maður hrópi húrra! Tillög- ur sjálfstæðismanna um byggð í Engey og Akurey og uppfyllingar þar í kring virka róttækar - en kannski eru þær það þó ekki. Máski er þetta bara skynsemi. Úrtölu- menn eru þegar byrjaðir að fussa og sveia, en er eitthvað fráleitara að byggja úti í eyjunum og meðfram sundunum en langt upp til fjalla? Maður bíður svo eftir að komi fram náttúruverndarmenn sem flnna varp á þessum stöðum eða einhverjar náttúruperlur sem ekki má hrófla við. Þeir munu láta í sér heyra - sannið til. Byggð íViðey Sjálfstæðismenn leggja líka til að byggt verði í Viðey. Það er kominn tími til. Viðey var aldrei óbyggð náttúruvin. Þar hafa meira að segja verið verksmiðjur. í rauninni mætti byggja miklu þéttar og hærra upp í loftið úti í eyjunni en sést í tillögum Sjálfstæðisflokksins. Með þessum hugmyndum gæti myndast meira jafnvægi í byggðinni. Hún yrði dreifð í kringum miðbæ sem er eðlilegur kjarni bæjarins - sögu- lega, menningarlega og pólitískt - en ekki bara strik, eins og þorpsgata með ótal botnlöngum sem endar uppi á heiðum. Óttinn við Sturlu Það er samt hugleysi hjá sjálf- stæðismönnum að leggja ekki í að hrófla við Reykjavíkurflugvelli. Tal þeirra um að málið verði skoðað vandlega hljómar líkt og þeir muni á endanum skrifa undir hina arfa- vondu málamiðlun R-listans - örlít- inn samdrátt í flugbrautunum, nýja flugstöð og byggð á skæklum þarna í kring. Gísli Marteinn má þó eiga það að hann segist vilja flugvöllinn burt - það er partur af hugsun nýrr- ar kynslóðar sem hann boðar í við- tali við Moggann. Hinir borgarfull- trúarnir virðast vera of hræddir við Sturlu til að hafa skoðun á málinu. Það er þó óþarfi - ráðherra sem nýtur jafn lítils álits og hans er pappírstígrisdýr. Samningaþref R-listans Á sama tíma er R-listinn að reyna að semja sig saman í fjórða skiptið. ■ Ýmsir forystumenn í Framsóknar- flokki hafa sagt að þeir vilji ekki R- listann áfram, Framsókn eigi að bjóða fram sér. Eins og stendur myndi það líklega þýða að flokkurinn þurrkaðist út í Reykjavík. Samfylking- in vill stærri hlut en áður, heimtar prófkjör. Hjá Vinstri grænum virðist villta vinstrið hafa náð yfirhöndinni meðan Árni Þór Sigurðsson borgar- fulltrúi brá sér af bæ. Róttæklingur- inn Sverrir Jakobsson kemur allt í einu fram sem leiðtogi í fjölmiðlum. Að leiða íhaldið til valda Ef R-listinn starfar ekki áfram verður að því spurt hver sprengdi samstarfið. Það vill helst enginn hafa það á samviskunni að hafa „leitt íhaldið til valda" í Reykjavlk. Því fyrst og fremst er R-listinn bandalag um að halda Sjálfstæðis- flokknum frá völdum. Eftir ellefu ára valdasetu er ansi holur hiljómur í því þegar Vinstri grænir segja að R-list- inn hafl alltaf snúist um málefni. Andstaðan við álver Þessa dagana er það sett upp sem frágangssök hjá Vinstri græn- um hvort Orkuveita Reykjavíkur selur rafmagn til álvera. Þetta sýnir glöggt að það eru menntamenn í Reykjavík sem ráða ferðinni í Vinstri grænum - nokkuð dæmi- gerðir borgarradikalar. Voru Vinstri grænir ekki aðallega á móti vatns- aflsvirkjunum til skamms tíma? Hefur það nú verið yfirfært í al- menna andstöðu við álver? Býður áliðnaðurinn ekki einmitt upp á vel launuð störf fyrir ófaglært fólk? Það er ekki hægt að halda því fram að ríkisstjórnin sé sérlega hugmyndarík í atvinnumálum. Hins vegar hlýtur maður að spyrja flokk eins og Vinstri græna hvaða hugmyndir þeir bjóði upp á aðrar - til dæmis fyrir verkafólk á Suður- nesjum? Það geta ekki allir starfað í Reykj avíkurakademíunni. Hrein vinstri ára Annars er Reykjavík eini staður- inn þar sem Vinstri grænir eru ekki í stjórnarandstöðu. Það er hlut- skipti sem Sverri Jakobssyni og fé- lögum hans á Múrnum þykir ágætt. Þeir vilja fyrir alla muni halda vinstri árunni hreinni. Steingrímur J. hefur hins vegar meiri metnað. Hann hefur verið í ríkisstjórn og langar að leiða flokk sinn til raun- verulegra áhrifa, jafnvel þótt það þýði að gefa eitthvað eftir af hrein- stefnunni. Steingrímur er heldur ekki búinn að gleyma óförum flokks síns í síðustu sveitarstjórnakosn- ingum. Hins vegar er einn vandi Vinstri grænna sá að þeir komast varla til valda nema sem einhvers konar viðhengi við Samfylkinguna. Þetta finnst þeim ill tilhugsun enda er andúðin á Samfylkingunni óvíða meiri en hjá Vinstri grænum. Múr- verjar túíka sjónarmið margra flokksmanna þegar þeir finna henni allt til foráttu; þeir þola illa stærð hennar, hentistefnu og tilkall til að leiða vinstri vænginn. Ekki byrja strax! Kosningabaráttan er að hefjast, sagði ungur fréttamaður á einni sjónvarpsstöðinni í fyrrakvöld eftir að sjálfstæðismenn höfuðu kynnt skipulagshugmyndir sínar. Maður hugsaði - ónei, það er heilt ár í kosningarnar! Ekki byrja strax! Síðast hófst baráttan alltof snemma, allir voru orðnir dauðleiðir þegar loks var kosið um vorið. Það á að reyna að hh'fa kjósendum við að slíkt endurtaki sig. Hins vegar bindur maður ákveðnar vonir við þessar kosningar. Vinstri flokkamir þurfa nú að svara hugmyndum sjálfstæðis- manna - helst toppa þær. Þetta gæti jafnvel verið upphafið að einhverju... x
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.