Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 28. MAÍ2005
Helgarblað DV
Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona stendur á tímamótum. Hún ætlar aö flytja til Danmerkur til að læra
nýja söngtækni sem hún hefur fallið fyrir. Hera Björk segist ekki hrædd við breytingar enda mikil
Pollýanna i sér.
„Ef það sem ég er að gera hættir að vera skemmtilegt þá missi ég
fljótt áhugann og fer að gera eitthvað annað," segir Hera Björk
ÞdrhaUsdóttir söngkona. Hera Björk stendur á tímamótum þar
sem hún er að flytja til Danmerkur. Hún er nýkomin til íslands
frá Kaupamannahöfn, nánar tiltekið Lyngby, þar sem hún fékk
afhenta lykla að leigufbúð þar sem hún ætíar að búa ásamt fjöl-
skyldu sinni næsta árið. Hún er þegar byrjuð í námi þar í landi
en ákvað að flytja alla fjölskylduna út.
„Ég er í söngnámi þar sem ný
nálgun á sönginn er kennd. Konan
sem kennir þetta er dönsk rokk-
söngkona og hafði lært söng í mörg
ár en leið aldrei vel, hún var bæði
stíf og með asma. Alveg sama hvað
hún reyndi, hún fékk aldrei nógu
góðar skýringar á af hverju sumir
gætu sungið endalaust áreynslaust
en aðrir ekki. Hún hélt því til Bret-
lands og rannsakaði þetta og er nú
komin með lausn sem ég ætla að
lepja eftir henni enda frelsaðist ég
þegar ég kynntist þessu," segir
Hera Björk en umrædd söngkona
kemur til íslands í júní til að kenna
atvinnusöngvurum þessa nýju
tækni.
Vill sjá heiminn á launum
Hera Björk mun þó verða með
annan fótinn eitthvað á íslandi
enda syngur hún með djass-vókal-
grúppunni Reykjavík 5 auk þess
sem hún kennir söng öðru hverju
og stórfjölskylda hennar er öll hér á
landi. Hún hefur aldrei verið
hrædd við breytingar og hefur flutt
ansi oft yfir ævina.
„Þótt húsið -úti sé æðislegt er
samt gott að vita að við munum að-
eins vera þar í eitt ár á meðan við
finnum eitthvað annað. Maður á
líka að nota tímann á meðan mað-
ur er ungur og ferðast og prófa eitt-
hvað nýtt og fjölskyldan mín er
hætt að láta sér bregða þegar ég
kem með þær fréttir að ég sé að
flytja. Þau eru orðin vön og hvetja
mig áfram ef eitthvað er.
Ég var alltaf búin að segjast ætla
að búa á Spáni og í Danmörku.
Maðurinn minn vill bíða með Spán
þangað til í næstu tilveru en ég veit
ekki hvað verður. Þeirri vinnu sem
ég starfa við í framtíðinni fylgir
bara vonandi mikið af ferðalögum
svo ég geti fengið að sjá heiminn á
launum," segir hún en Hera stefnir
á að verða söngþjálfari fyrir söngv-
ara og leikara.
Hera og Óli '99
Hera Björk er gift Ólafi Magnús-
syni húsasmíðameistara. Þau
gengu í það heilaga um verslunar-
mannahelgina árið 1999 eftir
tveggja ára samband. „Þetta var
svona Hera og Óli ‘99,‘‘ segir Hera
hlæjandi en athöfnin var haldin á
landareign fjöiskyldunnar í Reykja-
dal í Mývatnssveit í góðu veðri.
„Þetta var hrikalega skemmtilegt.
Gestirnir komu með tjöld og við
skemmtum okkur konunglega og
vorum alsæl.“
Hún og Óli eiga saman tvö börn
og Óli á dóttur frá fyrra sambandi.
„Þórdís Petra dóttir okkar er sjö ára
og Víðar Kári fæddist árið 2003.
Hann var skírður í höfuðið á jörð-
inni okkar í Reykjadal auk þess sem
ég fann þetta nafn í norrænni
goðafræði, Víðar hinn þögli sem
„Þetta er algjör para-
dís og mjög barn-
vænn staður við fal-
legt vatn. Skólinn er í
enda götunnar og
leikskólinn í 5 mín-
útna fjarlægð. Ég hef
aldrei verið hrædd
við breytingar og
þetta verður bara
ævintýri."
var sagður næstur Þór að afli. Við-
neftiið á samt ekki við Víðar enda
varla hægt að reiða sig á það, kom-
inn undan þessu fólki, en hver veit.
Hann er sporðdreki og gæti orðið
þögull með aldrinum. Við treystum
á að hann verði læknir, lögfræðing-
ur, prestur eða dýralæknir eða eitt-
hvað sem við hin nennum ekki að
læra og hann var því skírður Séra
Víðar Kári Ólafsson yfirdýralæknir.
Hann má velja en okkur fannst
þetta hæfa mjög vel á svo merkum
manni og hann mun verða.“
Pollýanna í sér
Hera Björk og fjölskylda ætla að
koma sér fyrir í Lyngby sem er lítill
bær rétt utan við Kaupmannahöfn.
„Þetta er algjör paradís og mjög
barnvænn staður við fallegt vatn.
Skólinn er í enda götunnar og leik-
skólinn í 5 mínútna fjarlægð. Ég hef
aldrei verið hrædd við breytingar
og þetta verður bara ævintýri," seg-
ir Hera og viðurkennir að vera svo-
lítil Pollýanna í sér.
„Ég er alltaf bjartsýn og maður-
inn minn skilur stundum ekki
hvaðan ég fæ þetta. Auðvitað á ég
mínar stundir en þær vara í stuttan
tíma og ég næ alltaf að fóðra það
jákvæða. Þegar ég stend frammi
fyrir erfiðleikum einbeiti ég mér að
því að hugsa um hversu gaman það
verður að takast á við ný verkefni.
Ætli þessi hugsunarháttur hafi ekki
fleytt mér áffam," segir hún hugs-
andi og heldur áfram: „Núna erum
við einmitt í miklum Pollýönnu-
leik. Ég er að rífa alla upp, allir eru
að fara í nýjan skóla, læra nýtt
tungumál, fara í nýjar búðir og
kynnast nýjum ostum og mjólk og
svona svo ég er á fullu við að vera
Pollýanna fyrir börnin."
Stórstjarna í Danmörku
Auk þess að stunda námið ætlar
Hera að reyna að koma sér á fram-
færi sem söngkona í Danmörku.
„Ég ætla að einbeita mér að því að
vera mamma, eiginkona og söng-
kona. Hér heima þarf maður ekki
Hera Björk „Ég er allavega tilbúin að henda mér útlþetta en sem betur fer er ég þeim eiginleikum gædd að ég á auðvelt með að koma til baka
ef þetta gengur ekki.“ DV-mynd Páll Bergmann
að hafa mikið fyrir því að komast
að í bransanum, svo lengi sem
maður hefur eitthvað fram að
færa. Þarna úti er samkeppnin
miklu meiri en ég ætla að gera mitt
besta án þess að gera mér ein-
hverjar vonir en ég fæ allavega
reynsluna upp úr krafsinu.
Kannski sér fólk eitthvað í mér og
gefur mér aðalhlutverk og ég verð
stórstjarna í Danmörku, hver veit?
Ég er allavega tilbúin að henda
mér út í þetta en sem betur fer er
ég þeim eiginleikum gædd að ég á
auðvelt með að koma til baka ef
þetta gengur ekki. Þetta verður
bara hliðarskref og kannski mynd-
ast beinn vegur út frá því sem væri
frábært en ef ekki þá kem ég bara
hingað heim til íslands í öryggið."
Hera Björk ætlar að halda einhvers
konar kveðjutónleika á Jómfrúnni
þann 18. júní.
indiana@dv.is