Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 28. MAl2005 Fréttir DV Kostir & Gallar Kristján er góður og duglegur drengursem er vinur vina sinna. Hann er traustur og vinnusamur og með gott fréttanef. Sigurður Arnarson bóndi í Skriðdal óskar Landsvirkjun og bæjarstjórn Fljótsdals- héraðs til hamingju með að hafa tekist að hrekja sig úr sveitinni. Háspennulína verður lögð um hlað Sigurðar í krafti eignarnáms. Kristján á það til að stökkva upp á nefsér, en það gerist þó sjaldan. Hann getur ver- ið svolítið tillitslaus gagn- vart sinum nánustu, en það er þá óvart, og á það einnig til að vera kærulaus. „Kristján eryndislegur maður og Ijúfur I allri viðkynningu. Hann er mjög traustur náungi og vinur vina sinna. Helstu gallar hans eru þeir að hann getur stundum stokkiö upp á nefsér eins og reyndar allir aðrir menn sem hafa skap. Það gerist þó sjaldan. Annars finnst mér hann ekki hafa marga galla þannig séö. Hann er einfaldlega toppnáungi." Bjarni Brynjólfsson ritsjóri Séð & Heyrt. „Kristján ernáttúriega öðlingur og Ijúflingur. Hann er mjög þægilegur vinnufélagi og góöur drengur. Hann er mjög vel lesinn og því algjör visku- brunnur. Hann er afar rólegur að eðlisfari en I þau fáu skipti sem hann veröur reiöur þá verð- ur hann reiöur. Þá hefur líklega einhver gert eitthvað á hans hlut. Annars finnst mér helsti galli hans vera sá að hann held- ur með Þrótti og Arsenal. Það er voðaiega fáa galla hægt að finna á honum, þaö veit maður eftir að hafa starfað með hon- um eins lengi og ég hefgert.“ Róbert Róbertsson blaöamaður Séð og Heyrt „Hann Kristján er mikill indæiisstrákur. Hann hef- ur auðvitað mjög gott fréttanef, upplýsingarnar virðast einhvern veginn leka inn i hann hvar og hvenær sem er. Kristján er Ijúfur og góð- ur og mikill vinur vina sinna. Helstu gallar hans eru þeir að hann getur stundum verið svo- lítiö tillitslaus gagnvart sínum nánustu, en ég held að það sé þá bara atveg óvart. Þá leiðréttir hann það efhann gerir eitthvað rangt. Síöan getur hann verið svolítið kærulaus stundum." Lisa Pálsdóttir útvarpskona Kristján Þorvaldsson er fæddur 4. maí 1962. Hann ógiftur en á eitt barn, Þorvald Davíð Kristjánsson leiklistarnema. Kristján hefur séð íslendingum fyrirslúðri I langan tíma sem ritstjóri Séö & Heyrt, en blaöinu hefur hann ritstýrt síðan það var stofnað fyrir níu árum síðan. Auk þess hefur hann verið rit- stjóri á Pressunni og Mannlíf. Lenti undir lyftara Vinnuslys við Húsa- smiðjuna við Vínlands- leið í Grafarholti var til- kynnt til lögreglunnar í Reykjavík í gærdag. Að sögn lögreglunnar varð maður þar undir lyftara með þeim afleiðingum að hann meiddist á ökkla. Ekki var hægt að greina frá aðdraganda slyssins. Maðurinn var fluttur á slysadeild þar sem gert var að meiðsl- um hans og fékk hann að fara heim að því loknu. Sigurður Arnarson skógarbdndi á Eyrartegi í Skriðdal hefur ákveðið að bregða búi og flytja til Akureyrar. Sigurður fékk úr- skurðaðar bætur nýverið vegna lagnar háspennulínu frá Kára- hnjúkavirkjun, um hlaðið á Eyrarteigi, og niður á Reyðarfjörð. Sigurður Arnarson, Eyr- arteigi Sigurður segir bæt- urnar duga fyrir útborgun í íbúð og óskar bæjaryfir- völdum tilhamingju. „Upphaflega sögðu þeir mér að línustæðið yrði 170 metra frá bæn- um, en þeir eru hérna fyrir utan að leggja línuveg þessa dagana og vegalengdin nú er 148 metrar," segir Sigurður. „Bæjarstjórnin hef- ur stutt Landsvirkjun ötullega í þeim aðgerðum sem nú hrekja mig í burtu. Það er aðeins hægt að óska þeim til hamingju með að hafa tek- ist þetta ætlunarverk sitt.“ Upphæð bótanna sem Sigurður fékk er trúnaðarmál. Sigurður seg- ir þó að þær dugi hvergi nærri til að byggja nýtt hús á jörðinni. „Bæturnar duga mér fyrir út- borgun í íbúð fyrir norðan," segir Sigurður. Ekki það sama lína og lína Lfnan sem liggur um hlaðið hjá Sigurði kemur til með að flytja mikið rafmagn, enda álvinnslan þung á fóðrum. Sigurður segir að ekki séu allar há- spennulínur eins. Þessi muni flytja meira raf- magn en framleitt er í öllum Þjórsár- og Tungnárvirkjunum sam- anlagt. Landsvirkj- un fékk eignar náms- „Það er ekki víst að það gengi eins vel ef ég fyndi mér hús á Ak- ureyri og segði við eigendurna: „hér ætla égaðbúa'V' heimild á landi Sigurðar í krafti svæðisskipulags sem felur í sér lagaígildi. „Þetta er gert í nafni al- mannahagsmuna. Þessir almanna- hagsmunir eru þeir að eitt fyrirtæki selji öðru fyrirtæki rafmagn. Það er ekki víst að það gengi eins vel ef ég fyndi mér hús á Akureyri og segði við eigendurna „hér ætla ég að búa“. Eigendurnir myndu sjálfsagt mótmæla en þá myndi ég flagga almannahagsmun- um og fengi eignarnáms- heimild hjá ráðherran- um,“ segir Sigurður jafn- framt. Gengum eins langt og við gátum Skúli Björnsson varafor- seti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs, segist ekki geta talað um bæt- umar sem urð Háspennustöð Linan verðurí 148 metra fjarlægð frá bæjarstæðinu að Eyrarteigi. fékk, þar sem honum sé ekki kunn- ugt um upphæðirnar. „Ég er í sjálfu sér ekki sáttur við að Lands- virkjun skuli ekki hafa boðið Sig- urði það sem duga mundi til að byggja nýtt hús að Eyrarteigi," seg- ir Skúli. „Það er vel mögulegt að menn hafi ekki verið nógu vel vak- andi þegar Skipulagsstofnun aug- lýsti þetta skipulag á sínum tíma,“ bætir Skúli við. Skúli segir hins vegar bæjar- stjórnina hafa gengið eins langt og hún gat Sigurði til hjálpar. Lagara- mminn hafi verið þröngur og bæj- arstjórninni óhægt um vik eftir að skipulagið hafi verið samþykkt til að byrja með. Ekki náðist í Þorstein Hilmarsson blaðafulltrúa Lands- virkjunar í gær vegna málsins. sigtryggur@dv.is Merkilegar niðurstöður breskrar könnunar ísraelskir hermenn horfa á meistardeildina Tengdamamma getur beðið Aðstandendur breskrar könnunar segjast hafa reiknað út hversu langur sá tími er sem fólk telur merkja að það sé að verða of seint. Það er á þeim tíma sem það ákveður að nauð- synlegt sé að hringja og segjast vera orðinn of seinn í eitthvað. Á þeim tíma munu tólf börn hafa fæðst á Englandi og Wales og 590 milljón tölvupóstar verið sendar um allan heim. Vefsíðan GetMeThere.co.uk gerði könnunina. Samkvæmt niðurstöð- um hennar eru þó um 10 prósent fólks sem telur sig ekki vera orðið of seint fýrr en hálftími er liðinn frá því að það hafði ákveðið að mæta á ákveðinn stað. Þá segjast um 80 pró- sent fólks á sextugsaldri aldrei mæta of seint vegna einkennilegrar áráttu og kvíða yfir því að mæta of seint á mikilvæga atburði. Hins vegar telur um 70 prósent kvenna það vera í lagi, ef ekki beint eðlilegt, að mæta of Tíminn Margirsem kunna ekki að mæta á réttum tíma afsaka sig oft með því að timinn sé afstæður. DV-mynd NordicPhotos / Getty Images seint á fýrsta stefnumót. Ástæðan á bak við það er að líta ekki út fyrir að vera orðin örvæntingafúll í makaleit- inni. Eitt atriði sammælast þó bæði kynin um. Það er í lagi að mæta of seint í afmæli hjá tengdamömmu. Hertóku heimili vegna fótboltaleiks Hópur ísraelskra hermanna ruddist inn á heimili palest- ínskrar fjölskyldu til að geta horft á úr- slitaleik Liverpool og AC Milan í meistar- deild Evrópu. Myndbrot sem birt voru á ísraelskri sjón- varpsstöð sýndu möl- brotna innanstokksmuni og rúður á heimili fjöl- skyldunnar í borginni Hebron á Vesturbakkanum. í viðtali sagði fjölskyldan skemmdimar vera eftir fimm ísraelska hermenn sem tóku heimilið traustataki til að horfa á leikinn. Fjölskyldunni var skipað að halda sig inni í öðru herbergi á með- Unglingsdreng- urinn Anan al-Zra- yer sagði að her- mennimir hefðu stoppað hann úti á götu og. spurt hvort gervihnattadiskur væri á heimili hann. Hann sagði að svo væri með fyrrgreindum af- leiðingum. Heimildir innan hersins viður- kenna að hermennimir hefðu farið inn á palestínskt heimili, en aðeins stoppað þar stutt án þess að eyðileggja neitt. Foringi sveitar- innar mun aftur á móti hafa verið rek- inn og sagt er að ísraelski herinn líti málið mjög alvarlegum augum. menningarheima en ísraeisk- u hermennirnir verða að telj- ast slæm birtingarmynd þess. DV-mynd NordicPhotos /Getty Images
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.