Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Síða 50
50 LAUCARDAGUR 28. MAÍ 2005
Helgarblað DV
Upphafið að einhveriu...
Sagan segir að þetta hafi gerst
einhvern veginn svona. Hópur fólks
úr Sjálfstæðisflokknum, einkum
konur, fer á fund Ásdísar Höllu
Bragadóttur. Fólkið hefur fengið til-
skilin leyfi hjá Davíð Oddssyni.
Hópnum er boðið inn í stofti í
Garðabænum. Eiginmaður Ásdísar
býðst til að fara fram með börnin.
•*.Það er boðið upp á kaffi. Þetta fer
mjög hæversklega fram, fólkið ætl-
ar aldrei að koma sér að efninu. AU-
ir vita þó um hvað málið snýst, mik-
ilvægi þess.
Ýmis mál eru reifuð, það er farið
vítt og breitt yfir stöðuna í stjórn-
málunum, en loks kemur aðalatrið-
ið fram. Tilgangur ferðarinnar í
Garðabæ er að bjóða Ásdísi Höllu
að vera í forystu Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík í borgarstjórnar-
kosningunum að ári. Henni er gerð
grein fyrir því að hún muni geta
haft sigur í kosningunum - hún sé
akkúrat manneskjan til að leiða
flokkinn.
Komin í vinnu
** Ásdís Halla hlustar á þetta lengi
vel, gefur ekki neitt upp, situr með
þennan sposka svip sem hún hefur.
Loks, eftir svona klukkustund af
þessu þófi, kveður hún upp um
þetta:
„Ég er búin að ráða mig í vinnu."
Ekki eftirsótt djobb
Þetta segir sagan að minnsta
kosti. Punkturinn er að Ásdísi
Höllu, þessum bráðefnilega stjórn-
málamanni, flnnst ekki spennandi
að koma til Reykjavíkur og reyna að
vinna borgina fyrir flokk sinn. Hún
vill frekar selja skrúfur og hefla í
Byko.
Maður láir henni svosem ekki.
0 Síðustu þrjú borgarstjóraefni Sjálf-
stæðisflokksins hafa farið flatt á
framboði sínu. Markús örn Ant-
onsson hvarf aftur inn í útvarp, hóf
síðara tímabil sitt sem útvarpsstjóri
- það er varla ofmælt að kalla það
niðurlægingarskeið. Nú á að skutla
honum í sendiherradjobb; merki-
legt hvað Sjálfstæðisflokkurinn tel-
ur sig skulda þessum manni.
Faljkandídatar
Árni Sigfússon tapaði tvívegis
fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og er nú
bæjarstjóri suður með sjó. Manni
>• finnst eiginlega synd að honum
Egill Helgason
skrifar um
stjórnmálaástandið
I borginni.
Laugardagskj allari
hafi verið spilað út í tvennum kosn-
ingum þar sem hann átti ekki séns.
Annars hefði hann kannski getað
komið til greina í kosningunum á
næsta ári. Framboð Björns Bjarna-
sonar í borginni var bakslag á ferli
hans sem hann jafnar sig seint á;
það var einhver stærsta reiknings-
skyssa í pólitík seinni ára þegar fjöl-
miðlamenn og fylgismenn Björns
ofmátu stöðu hans gjörsamlega.
Djásnið í krúnunni
Af er sem áður var að borgar-
stjóraembættið var leiðin í feitasta
djobbið á íslandi, sjálft forsætis-
ráðqneytið. Þá leið fóru Bjarni Ben,
Gunnar Thor, Geir Hallgrímsson,
Davíð Oddsson. Þetta var þegar
Reykjavík var hornsteinninn í
valdakerfi Sjálfstæðisflokksins,
sjálft djásnið í krúnunni.
Hvar eru gömlu töfrarnir?
Samt er nóg af fólki sem vill leiða
þennan lista - en ekkert af því virð-
ist nógu afgerandi til að geta unnið
sigurinn sem flokkurinn lætur sig
dreyma um. Gömlu töfrarnir eru
ekki til staðar lengur. Vilhjálmur
Vilhjálmsson er ágætlega traustur
maður, en hann virkar kerfislegur
og er laus við kjörþokka.
Gísli Marteinn á hóp öflugra
vina sem vilja koma honum alla
leið í borgarstjórastólinn. Allir
þekkja Gísla, en enn sem komið er
þykir hann of léttvægur - þeir sem
eru vanir honum í sjónvarpi taka
ekki alveg mark á honum sem
stjórnmálamanni. Það breytist
varla á stuttum tíma.
Júlíus Vífill Ingvarsson er kom-
inn aftur á stúfana. Hann geldur
þess að hann er óþekktur - fæstir
Reykvíkingar þekkja hann á götu.
Hann þarf að taka stóran rúnt í
spjallþáttunum til að breyta því.
Enginn veit fyrir hvað hann stend-_
ur. Þá má auðvitað ekki gleyma
Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem hefur
verið mikill baráttumaður í borgar-
stjórninni og Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur sem hugsar ábyggilega
sem svo - af hverju ekki ég?
Er Davíð eina vonin?
Kristinn H. Gunnarsson skrifar
vangaveltur á heimasíðu sína þar
sem hann segir að eina von Sjálf-
stæðisflokksins til að vinna borgina
sé að Davíð Oddsson snúi þangað
aftur. Ég stakk reyndar upp á því
fýrir síðustu kosningar að hann og
Ingibjörg Sólrún hefðu vistaskipti,
hann færi í borgina og hún í ríkis-
stjórn. Það væri altént smá tilbreyt-
ing. Margir sjá borgarstjóratíð Dav-
íðs í ljóma; rámar í að þá hafi verið
mikið blómskeið í borginni. Það er
líklega ofmælt. En Davíð var þó laus
við ráðleysið og ákvarðanafælnina
sem einkennir R-listann.
Þreyta og stöðnun
Ég skrifaði í grein um daginn að
það væri stjórnmálakreppa í borg-
inni. Hún birtist í vanahugsun, ótta
við nýjungar og í því að ekki er hlust-
að á nýjar hugmyndir. Það er farið í
framkvæmdir sem virka óskiljanlegar
- bara til að gera eitthvað. Það er mik-
il þreyta og stöðnun hjá stjórnvald-
inu; hægfara embættismenn draga
úr lífsþrótti og frumkvæði borgar-
anna. Helsta einkenni kreppunnar er
þó að flokkarnir í borginni eru í raun
sammála um allt, úthverfastefnan
ræður algjörlega för.
Auglýsing um örnefni
Skv. 2. gr. laga nr. 35/1953 með síðari breytingum, um
bæjanöfn o.fl., og 8. gr. reglugerðar um störf örnefnanefnd-
ar, 22. febrúar 1999, ber örnefnanefnd að skera úr ágrein-
ingi um ný götunöfn og sambærileg örnefni innan sveitarfé-
laga.
Nefndinni hefur borist erindi þar sem farið er fram á að
horfið verði frá götunafninu Geitagerði að Hólum í Hjaltadal
í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna samnefnis við lögbýlið
Geitagerði í sama sveitarfélagi.
Hverjum þeim sem telur sig búa yfir vitneskju eða ábending-
um, er að haldi komi við undirbúning úrskurðarins, gefst
færi á að kynna örnefnanefnd álit sitt. Ábendingum skal
skila til örnefnanefndar, Lyngási 7, 210 Garðabæ, eigi síðar
en 30. júní 2005.
27. maí 2005
Örnefnanefnd
Ari Páll Kristinsson formaður
Húrra, ný hugsun!
Þess vegna fyllist maður fögnuði
þegar örlar á nýrri hugsun. Það ligg-
ur við að maður hrópi húrra! Tillög-
ur sjálfstæðismanna um byggð í
Engey og Akurey og uppfyllingar
þar í kring virka róttækar - en
kannski eru þær það þó ekki. Máski
er þetta bara skynsemi. Úrtölu-
menn eru þegar byrjaðir að fussa og
sveia, en er eitthvað fráleitara að
byggja úti í eyjunum og meðfram
sundunum en langt upp til fjalla?
Maður bíður svo eftir að komi
fram náttúruverndarmenn sem
flnna varp á þessum stöðum eða
einhverjar náttúruperlur sem ekki
má hrófla við. Þeir munu láta í sér
heyra - sannið til.
Byggð íViðey
Sjálfstæðismenn leggja líka til að
byggt verði í Viðey. Það er kominn
tími til. Viðey var aldrei óbyggð
náttúruvin. Þar hafa meira að segja
verið verksmiðjur. í rauninni mætti
byggja miklu þéttar og hærra upp í
loftið úti í eyjunni en sést í tillögum
Sjálfstæðisflokksins. Með þessum
hugmyndum gæti myndast meira
jafnvægi í byggðinni. Hún yrði
dreifð í kringum miðbæ sem er
eðlilegur kjarni bæjarins - sögu-
lega, menningarlega og pólitískt -
en ekki bara strik, eins og þorpsgata
með ótal botnlöngum sem endar
uppi á heiðum.
Óttinn við Sturlu
Það er samt hugleysi hjá sjálf-
stæðismönnum að leggja ekki í að
hrófla við Reykjavíkurflugvelli. Tal
þeirra um að málið verði skoðað
vandlega hljómar líkt og þeir muni
á endanum skrifa undir hina arfa-
vondu málamiðlun R-listans - örlít-
inn samdrátt í flugbrautunum, nýja
flugstöð og byggð á skæklum þarna
í kring. Gísli Marteinn má þó eiga
það að hann segist vilja flugvöllinn
burt - það er partur af hugsun nýrr-
ar kynslóðar sem hann boðar í við-
tali við Moggann. Hinir borgarfull-
trúarnir virðast vera of hræddir við
Sturlu til að hafa skoðun á málinu.
Það er þó óþarfi - ráðherra sem
nýtur jafn lítils álits og hans er
pappírstígrisdýr.
Samningaþref R-listans
Á sama tíma er R-listinn að reyna
að semja sig saman í fjórða skiptið.
■ Ýmsir forystumenn í Framsóknar-
flokki hafa sagt að þeir vilji ekki R-
listann áfram, Framsókn eigi að
bjóða fram sér. Eins og stendur
myndi það líklega þýða að flokkurinn
þurrkaðist út í Reykjavík. Samfylking-
in vill stærri hlut en áður, heimtar
prófkjör. Hjá Vinstri grænum virðist
villta vinstrið hafa náð yfirhöndinni
meðan Árni Þór Sigurðsson borgar-
fulltrúi brá sér af bæ. Róttæklingur-
inn Sverrir Jakobsson kemur allt í
einu fram sem leiðtogi í fjölmiðlum.
Að leiða íhaldið til valda
Ef R-listinn starfar ekki áfram
verður að því spurt hver sprengdi
samstarfið. Það vill helst enginn
hafa það á samviskunni að hafa
„leitt íhaldið til valda" í Reykjavlk.
Því fyrst og fremst er R-listinn
bandalag um að halda Sjálfstæðis-
flokknum frá völdum. Eftir ellefu ára
valdasetu er ansi holur hiljómur í því
þegar Vinstri grænir segja að R-list-
inn hafl alltaf snúist um málefni.
Andstaðan við álver
Þessa dagana er það sett upp
sem frágangssök hjá Vinstri græn-
um hvort Orkuveita Reykjavíkur
selur rafmagn til álvera. Þetta sýnir
glöggt að það eru menntamenn í
Reykjavík sem ráða ferðinni í
Vinstri grænum - nokkuð dæmi-
gerðir borgarradikalar. Voru Vinstri
grænir ekki aðallega á móti vatns-
aflsvirkjunum til skamms tíma?
Hefur það nú verið yfirfært í al-
menna andstöðu við álver? Býður
áliðnaðurinn ekki einmitt upp á vel
launuð störf fyrir ófaglært fólk?
Það er ekki hægt að halda því
fram að ríkisstjórnin sé sérlega
hugmyndarík í atvinnumálum.
Hins vegar hlýtur maður að spyrja
flokk eins og Vinstri græna hvaða
hugmyndir þeir bjóði upp á aðrar -
til dæmis fyrir verkafólk á Suður-
nesjum? Það geta ekki allir starfað í
Reykj avíkurakademíunni.
Hrein vinstri ára
Annars er Reykjavík eini staður-
inn þar sem Vinstri grænir eru ekki
í stjórnarandstöðu. Það er hlut-
skipti sem Sverri Jakobssyni og fé-
lögum hans á Múrnum þykir ágætt.
Þeir vilja fyrir alla muni halda
vinstri árunni hreinni. Steingrímur
J. hefur hins vegar meiri metnað.
Hann hefur verið í ríkisstjórn og
langar að leiða flokk sinn til raun-
verulegra áhrifa, jafnvel þótt það
þýði að gefa eitthvað eftir af hrein-
stefnunni. Steingrímur er heldur
ekki búinn að gleyma óförum flokks
síns í síðustu sveitarstjórnakosn-
ingum.
Hins vegar er einn vandi Vinstri
grænna sá að þeir komast varla til
valda nema sem einhvers konar
viðhengi við Samfylkinguna. Þetta
finnst þeim ill tilhugsun enda er
andúðin á Samfylkingunni óvíða
meiri en hjá Vinstri grænum. Múr-
verjar túíka sjónarmið margra
flokksmanna þegar þeir finna
henni allt til foráttu; þeir þola illa
stærð hennar, hentistefnu og tilkall
til að leiða vinstri vænginn.
Ekki byrja strax!
Kosningabaráttan er að hefjast,
sagði ungur fréttamaður á einni
sjónvarpsstöðinni í fyrrakvöld eftir
að sjálfstæðismenn höfuðu kynnt
skipulagshugmyndir sínar. Maður
hugsaði - ónei, það er heilt ár í
kosningarnar! Ekki byrja strax!
Síðast hófst baráttan alltof
snemma, allir voru orðnir dauðleiðir
þegar loks var kosið um vorið. Það á
að reyna að hh'fa kjósendum við að
slíkt endurtaki sig. Hins vegar bindur
maður ákveðnar vonir við þessar
kosningar. Vinstri flokkamir þurfa nú
að svara hugmyndum sjálfstæðis-
manna - helst toppa þær. Þetta gæti
jafnvel verið upphafið að einhverju...
x