Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Síða 11
DV Fréttir LAUGARDAGUR 28. MAÍ2005 11 Nýstárleg veðhlaup Nýjasta æðið í Rússlandi eru veðhlaup séralinna svína. Rússneskir svína- bændur hafa af því tilefni snúið sér í auknum mæli að því að sérrækta svín með sérlega langa fótleggi. Sergie Spirin, dýralæknir og forseti sambands kappsvínaræktenda, segir að svínin gangi í gegnum margra mánaða þjálfun áður en þau keppi. Þjálfun- in gangi út á að svínin séu svelt, látin hlaupa og síðan gefið að éta að hlaupi loknu. Þannig séu þau skil- yrt til að hlaupa allan hringinn. Náttúran kallar Lögregla í Hollandi handtók tvo innbrots- þjófa í víkunni þar sem þeir voru í miðjum ást- arleik. Nágrannar auðs húss í bænum Beun- ingen kölluðu til lögreglu þegar þeir heyrðu tor- kennileg hljóð koma frá húsinu. Lögreglumenn sem svöruðu útkallinu komu að 39 ára gömlum manni og 35 gamalli konu í innilegum atlot- um. Þau sögðu lögregl- unni að ástæðan fyrir innbrotinu hefði verið skyndileg þörf þeirra til að stunda kynlíf. Lög- reglan segir að engin eftirmál verði af málinu. Neyðarlína fyrir plöntur Fyrirtækið SOS Express í Chile er farið að bjóða upp á þá sjálfsögðu þjón- ustu að hafa sjúkra- bíla fyrir plöntur til taks. Fólk sem á plöntur sem eru að deyja geta hringt í neyðar- línu fyrirtækisins. Þá er einn af fjórum sjúkrabílum þess sent á staðinn með einn plöntufræðing innan- borðs. Þjónustan er hugsuð fyrir bæði fyrir almenning sem og garðyrkjubændur sem óttast um velferð plantna sinna. Skorturá skeinipappír 4 Mikill skortur er nú á salemispappír í Finnlandi eftir fjögurra vikna verkfall starfs- manna í finnska pappírsiðnaðin- um. Salemispappír er að verða uppseldur alls staðar í Finnlandi þar sem fólk hamstrar það sem til er. Einn búðareigandi segir þær fáu sendingar sem hann fær klárast nær sams- tundis. Afleiðingarnar em þær að Finnar sem staddir em í fríi erlendis fylla ferða- töskur sínar af klósettpapp- ír í stað hefðbundinna minjagripa. Kanadískur svínabóndi í Vancouver ákærður fyrir fjöldamorð Gat grísunum líkamsleifarnar Versti fjöldamorðingi Kanada, og jafnvel allrar Norður-Ameríku, mætti fyrir rétt í gærdag þar sem lesnar voru upp ákærur gegn honum. Ákærumar hljóða upp á morð á tuttugu og sjö konum undanfarna tvo áratugi, en talið er að þau séu fleiri. Svínabóndinn Robert Pickton var handtekinn árið 2002 þegar lögreglan í Vancouver fann líkams- leifar kvenna á bóndabæ hans. Hann var grunaður um að tengjast hvarfi 67 kvenna s. Stór hluti hinna horfnu kvenna vom vændiskonur og vímuefriafíklar sem héldu til í austurhluta miðbæjar Vancouver, fátækasta hverfi borgarinnar með hæstu glæpatíðnina. Tólf nýjar ákærur Saksóknarinn Michael Petrie las upp ákærur gegn Pickton fyrir hæstarétti Bresku-Kólumbíu. Athygli vakti að tólf ný nöfn höfðu bæst á listann og hækkaði því fjöldi morðanna sem Pickton er ákærður fyrir úr fimmtán í tuttugu og sjö. Við ítarlegar rannsóknir á svínabúi Efsíðar meir kemur í Ijós að Pickton stendur á bak við hvarfallra kvennanna 67 þá er hann versti fjölda- morðingi heims sem náðst hefur og verið dæmdur. Picktons hafa hins vegar fundist erfðaefni þrjátíu og einnar konu en lögregla og saksóknarar hafa ákveðið að bíða með ákæmr ann- arra morða þar til síðar. Vonast er til að réttarhöldunum ljúki í byrjun næsta árs. Óbeint mannát Óvíst er hvað hefur orðið um líkamsleifar ailra þeirra kvenna sem Pickton er ákærður fyrir að hafa myrt. í fýrra greindu erlendir fjölmiðlar frá því að grunsemdir væru uppi um að hann hefði fóðr- að grísina sína með þeim. Ef satt reynist veldur það óhug því lög- reglan í Vancouver getur ekki úti- lokað að Pickton hafi selt eða gefið grískjöt jafnvel þótt hann hafi ekki haft leyfi til að selja afurðir. Ef Pickton verður fndinn sekur um öll morðin tuttugu og sjö verð- ur hann afkastamesti fjöldamorð- ingi Kanada. Mun afkastameiri heldur en Marc Lepine sem myrti 14 manns í æðiskasti árið 1989. Ef síðar meir kemur í ljós að Pickton stendur á bak við hvarf allra kvennanna 67 þá er hann versti fjöldamorðingi heims sem náðst hefur og verið dæmdur. NILFISK HEIMILISRYKSUGUR a ASKO Þvottavélar og þurrkarar Augljós kostur... Stál, ál og hvítt Kraftmiklar og endingargóðar wammmmmmmmmmmummammmmmHmtmrn a ASKO Hljóðlátar og vandvirkar uppþvottavélar Margar gerðir H vítar,sva rtar stál og ál Raftækln okkar eru fyrsta flokks. /rönix Kynntu Rér málið og gerðu verðsamanburðl Hátúni 6a 552-4420

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.