Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.2005, Page 42
42 LAUGARDAGUR 28. MAÍ2005
Helgarblað DV
r
Anna Bella seldi sælgæti, reykti, át majónes með öllum mat og drakk gos með því. Hún var yfir
kjörþyngd þegar hún fékk líkamsræktarkort i 28 ára afmælisgjöf. Hún lagði ósiðina á hilluna og fór
að æfa. Seinna lenti hún í alvarlegu bílslysi og læknar ráðlögðu henni að hætta að æfa. Hún lét
ekki segjast og lyfti lóðunum liggjandi á meðan hún gat ekki staðið. Nú stefnir hún á heimsmeist-
aramótið i fitness á Spáni í september og hefur heimspeki Arnold Schwarzenegger að leiðarljósi.
Anna Bella gefst aldrei unn
f
* *• J? ,
MJ
M f * '
* . '' t
„Égvar bara feit og vildi bæta úr því,“ segir Anna Bella Mark-
úsdóttir þegar hún er spurð að því hvernig það kom til að
hún byrjaði að stunda fitness. „Það tók mig tíma að komast
af stað en þegar ég sá nokkrar konur vera að undirbúa sig
fyrir vaxtaræktarmót árið 2000 fékk ég delluna. Ég horfði á
þær og ákvað að svona vildi ég verða," segir Anna Bella sem
hefur síðan keppt á níu mótum með misgóðum árangri.
„Égseldisælgætiþegarégbyrj- íþróttin enn sem komið
aði að æfa, reykti, borðaði majó-
nes með öllum mat og drakk mik-
ið kók. Þetta er eitthvað sem ég
geri ekki lengur. Núna er ég alger-
lega meðvituð um hvað ég borða
og vigta meira að segja ofan í mig
matinn. Ég æfi að jafnaði tvo til
þrá tíma á dag nema þegar ég
keyri upp fyrir mót, þá æfi ég í þrjá
til fjóra tíma á dag,“ segir Anna
Bella sem auk þess vinnur 12 tíma
á dag. Augljóst er að hún þarf að
skipuleggja tímann vel til að
dæmið gangi upp.
„Ég vakna svona fjögur til hálf
fimm á morgnana. Þá fer ég á æf-
ingu til að brenna í svona einn
tíma. Síðan fer ég heim í sturtu og
fæ mér morgunmat og vinn síðan
frá 6.30 til 19. Á kvöldin lyftir mað-
ur síðan og þegar heim er komið
undirbý ég næsta dag vegna mat-
aræðisins sem getur tekið allt að
klukkutíma. Síðan tekur við
brennsla í klukkutíma, rétt fyrir
svefninn," segir Anna Bella sem
lítur mikið upp til Arnolds
Schwarzenegger, ríkisstjóra Kali-
forníu og fyrrverandi herra al-
heims.
„Stefnan er að geta helgað sig
fitness-íþróttinni alfarið næstu
þrjú árin en það er hægara sagt en
gert. Þetta kostar sitt og maður fær
lítið af styrkjum enda heyrir fit-
ness ekki undir fþróttasamband-
ið. Fólkið sem maður er að keppa
við erlendis er flest allt atvinnu-
fólk í faginu en hérna heima er
enn sem komiö er
einungis stunduð sem áhugamál,"
segir Anna Bella sem leggur mikið
upp úr réttu hugarfari enda segir
hún það skipta mestu máli í þessu
öllu saman.
Arnold er snillingur
„Andlega hliðin verður að vera
í lagi, ég tala ekki um þegar maður
er að vinna allan daginn og ætlar
að stunda þetta með. Hugarfarið
verður að vera rétt gagnvart
íþróttinni," segir Anna Bella og
snýr sér næst að Schwarzenegger
og hans skoðunum.
„Hann er bara snillingur. Ég
veit reyndar ekkert hvernig hann
er sem rikisstjóri en hlutirnir
vefjast að minnsta kosti ekki neitt
fyrir honum. Aldrei neitt væl eða
afsakanir, hann bara setti sér
markmið og náði því. Eins og
hann sagði eitt sinn við strák sem
spurði hann hvað hann þyrfti að
gera til að verða atvinnumaður í
vaxtarækt: „Ef þú ferð ekki upp í
rúm á hverju kvöldi með brenn-
andi þrá til að verða atvinnumað-
ur í vaxtarækt, og vaknar ekki á
hverjum morgni með brenríandi
þrá til að verða atvinnumaður,
getur þú eins gleymt því, vegna
þess að það er undirstaðan að
öllu!" Þetta er hugfar að mínu
skapi og væri alveg til í að fara á
námskeið hjá honum," segir Anna
Bella sem hefur heldur betur
sannað með frammistöðu sinni að
hún hefur tekið þessi orð Tortím-
andans sér til fyrirmyndar.
Vorið 2003 lenti hún í alvarlegu
bflslysi sem varð til þess að hún
var nánast rúmföst í nokkra mán-
uði. Henni var ráðlagt að hætta að
æfa af svona miklu kappi en Anna
Bella lét það sem vind um eyru
þjóta. í dag er hún líka komin í
fantaform og stefnir á að gera bet-
ur á heimsmeistaramótinu þetta
árið en í fyrra, þegar hún hafnaði í
níunda sæti.
Lyfti liggjandi
„Ég lenti síðan í því að það var
keyrt aftan á mig á 80 km hraða
þar sem ég var kyrrstæð. Þetta var
mikið högg og ég var rúmföst í
langan tíma á eftir og varð
að hætta að æfa um
tíma. Að standa upp
urðu heilmikil átök.
Mér var síðan ráð-
lagt að hætta að
æfa svona mikið
en ég hlustaði
ekki á það. Að
hætta kom alls
ekki til greina
enda er það orð
ekki til í minni orða-
bók,“ segir Anna Bella
og hefur hugfar Arnold
Schwarzenegger greinilega
að leiðarljós.
„Ég hef alltaf litið á það þannig
að ef ég get ekki gert eitthvað
standandi þá geri ég það sitjandi
eða þess vegna liggjandi. Og það
var einmitt það sem ég gerði. Ég
hélt bara áfram að æfa en reyndar
lá ég oft vegna sársauka í nokkra
daga eftir eina æfingu," segir Anna
Bella sem hélt samt ótrauð áfram
að æfa. Nú er hún lflca nálægt sínu
besta formi og ætlar sér stóra hlutí
á heimsmeistaramótinu í sumar.
„Þessi veikindi kenndu mér
samt mikið. Ég fann hvað ég þurftí
Stælí og stolt Anna Bella á heimsmeistaramótinu
ityrra Hun lenti íalvarlegu bílslysi rúmu ári áður en
HunnrfJ?efau T, ^ rá8le93'n9ar lækna. |
" ?.rí ^nMstohwartzeneggerhjálpaðihenni
mikið en hun lítur mikið upp til Tortímandans. Nú
stetmrhun aðgera enn beturen ifyrra.
að leggja á mig til að ná árangri og
sjá það jákvæða í hlutunum en á
sama tíma að vera varkár. Maður
verður að setja sér raunhæf mark-
mið og vinna sífellt að því. Ef mað-
ur er bara með einhverja hug-
mynd þá er maður bara að velta
sér upp úr henni en ekki að vinna
að sjálfu markmiðinu. Það er ekki
nóg að hugsa, maður verður að
framkvæma."
Ætlar að verða best
„Heimsmeistaramótið fer fram
á einni helgi á Santa Súsana á
Spáni í september. Ég fer vonandi
með Heiðrúnu Sigurðardóttur
vinkonu minni og ég stefni að
sjálfsögðu á að gera
betur en síðast
þegar ég lenti í
níunda sæti.
Eftir því sem
maður verð-
ur betri og
Átrúnaðargoðið
Arnold er uppáhaidið
hennar Önnu Bellu.
nær meiri ár-
angri því erfið-
ara verður þetta.
Ég vil alltaf gera betur
og það ætlast flestir til að ég geri
betur núna, ekki síst ég sjálf," seg-
ir Anna Bella sem þessa dagna sef-
ur fjóra til fimm tíma á nóttu til að
geta komið allri dagskránni fyrir á
einum sólarhring.
„Draumurinn er að geta mink-
að vinnuna og leggja fimess alveg
fyrir mig en það er gríðarlega
erfitt. Éghef fengið eitthvað af litl-
um styrkjum hérna heima en
þetta kostar mig auðvitað
heilmikið. Búningarnir sem við
erum í eru t.d. mjög dýrir. Kosta
um 40 þúsund krónur þótt efn-
„Ég seldi sælgæti
þegar ég byrjaði að
æfa, reykti, borðaði
majónes með öllum
mat og drakk mikið
kók. Núna er ég al-
gerlega meðvituð um
hvað ég borða og
vigta meira að segja
ofan í mig matinn.
Síðan æfi ég í þrjá til
fjóra tíma á dag."
islitlir séu. Þetta er allt sérsaumað
en þar fyrir utan er keppniskostn-
aður, ferðakostnaður og svo tapar
maður náttúrlega mikið úr vinnu
við að taka þátt í svona," segir
Anna Bella sem vonar að einhver
auðmaðurinn eða fyrirtækið taki
upp veskið og hjálpi henni áleiðis.
Á heimasíðu önnu Bellu,
www.annafit.com, má finna mikið
af áhugaverðum skrifum eftir
hana sjálfa þar sem hún talar mik-
ið um rétt hugarfar og andlegt
ástand. Þetta er, eins og áður hef-
ur komið fram, undirstaðan að
góðum árangri að mati Önnu.
„Eins og Arnold sagði eitt sinn
þá verður maður gjöra svo og
leggja mikið á sig ef maður ætlar
að verða bestur. En það er einmitt
það sem ég ætla að gera, að verða
best. Ég legg mikla áherslu á þetta
í hugleiðingum mínum og reyni
alltaf að hafa þetta að leiðarljósi.
Þá nær maður því besta út úr sjálf-
um sér," segir Anna Bella að lok-
um.