Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2005, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Enn hækkar
bensín
Stóru olíufélögin þrjú
hækkuðu öll verð á elds-
neyti í gær. Ástæðan er
sögð vera í framhaldi af
hækkun heimsmarkaðs-
verðs síðastliðna daga. Lítr-
inn af bensíni hækkaði um
1,40 krónur og á dísil- og
gasolíu um 2,40 krónur.
Samkvæmt upplýsingum
frá Atlantsolíu er verið að
skoða málin þar á bæ en
þeir töldu að verðið myndi
að öllum líkindum hækka
hjá þeim næstu daga. Eftir
þessa breytingu er algent
verð á höfuðborgarsvæðinu
á 95 oktana bensíni með
fullri þjónustu 114,40 krón-
ur lítrinn og af díselolíu
113,90 krónur.
Enní
öndunarvél
Konan sem slasaðist
alvarlega í árekstri á
þjóðveginum við Hall-
ormsstaðaskög við Egils-
staði á þriðjudaginn fyrir
viku er enn í öndunarvél.
Líðan hennar er eftir at-
vikum. Tveir erlendir
samferðamenn hennar
voru úrskurðaðir látnir
við komuna á sjúkrahús.
Þau voru öll farþegar í
fólksbíl sem skall á flutn-
ingabíl. Ökumaður
flutningabílsins hlaut
hins vegar minni háttar
meiðsl í árekstrinum.
Kýrnar mjólka
minna
Eitthvað virðast íslenskar
mjólkurkýr vera farnar að
slaka á í mjólkurffamleiðslu.
Framleiðsla mjólkur í júlí
var minni en á sama trma í
fyrra samkvæmt tölum frá
Samtökum afurðastöðva í
mjólkuriðnaði. Framleiðsl-
an var 9,6 milljónir lítra í júlí
í fyrra en aðeins 9 milljónir
lítra í ár. Sama var uppi á
teningnum í júní. Neytend-
ur þurfa þó ekki að örvænta
því þetta mun ekki hafa telj-
andi áhrif á framboð mjólk-
urvara til íslenskra neyt-
enda.
Meint tugmilljónasvik verktakafyrirtækisins Hönnunar á samningi við Damon Al-
barn vegna húss hans í Grafarvogi fara fyrir héraðsdóm á næstunni. Damon hefur
lánað vinkonu sinni húsið.
hefur Damon lítið
Damon Albarn
Reynir að leiða ekki
hugann aö fasteigna-
málinu sem fer brátt
fyrir héraðsdóm.
Heimir Örn Herbertsson
Lögfræðingur Damons á Is-
landi segir málið á lokastigi.
v. s,T--*=. ^ .
Damon-málið fjjótlega
Bakkastaðir 109 Atti
aðverða heimili Damons
á Islandi en varð ofvaxið
WWfflM'á verktakoævintýri.
Eitt umfangsmesta fasteignamál síðustu ára fer fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur á næstunni. Damon Albarn réð verkfræðistofuna
Hönnun í Reykjavík til að fullgera heimili sitt við Bakkastaði 109
í Grafarvogi. Kostnaðaráætlun var um 40 milljónir, en í íjarveru
Damons hækkaði reikningurinn upp í rúmlega 90 milljónir
króna. Þó er húsið metið á um 60 milljónir.
Mál tónlistarmannsins Damons
Albam gegn verkfræðistofunni
Hönnun fer fyrir dóm fljótlega, að
sögn lögfræðings popparans, Heim-
is Arnar Herbertssonar. Damon sak-
ar verkfræðistofuna um að hafa far-
ið tugi milljóna króna fram úr kostn-
aðaráætlun þegar fullklára átti hús
hans við Bakkastaði í Grafarvogi.
Málið hefur tekið hátt í tvö ár, enda
um viðamikið mál að ræða. Damon
hefur lítið verið hérlendis undanfar-
ið.
Einar Örn
Benediktsson
Segir málið í alla
staði ömurlegt.
„Það var ömurlegt að
lenda íþessu máli.u
Damon í fríi
Damon einbeitir sér um þessar
mundir að hljómsveit sinni Gorillaz.
Nú er hann hins vegar í fríi og reynir
að leiða ekki hugann að því erfiða
máli sem er framundan í Héraðs-
dómi Reykjavíkur.
Einar örn Benediktsson, tónlist-
armaður og góðvinur Damons, segir
málið hafa verið það erfitt að þeir fé-
lagarnir ræði það ekki. Það var Einar
Öm sem gekk einna harðast fram í
því að ná málinu í gegn á sínum
tíma. „Það var ömurlegt að lenda í
þessu máli og ég vil helst ekkert vita
af því. Ég talaði við Damon fyrr í
sumar og við ákváðum bara að ræða
betur saman í haust," segir hann.
Lánaði vinkonu húsið
ir stafni í tónlistinni.
Damon hefur lánað íslenskri vin-
konu sinni húsið til afnota á með-
an hann er fjarverandi.
Neita ábyrgð
Enn hefur ekki verið sett
dagsetning á dómtöku
málsins. Gera má ráð fyrir
að hart verði tekist á. Verk-
fræðistofan Hönnun hefur
borið af sér ábyrgð vegna
málsins og sagt hina gríð-
arlegu hækkun á kostnaði
vegna verksins vera full-
trúa Damons á íslandi að
kenna. Damon hins vegar
mun hafa litið á Hönnun
sem fulltrúa sinn á land-
inu hvað verkið varðar.
Málið kom upp haustið
2003 og hefur staðið hátt í
tvö ár. „Þetta er viðamikið
mál, þess vegna hefur það
tekið tíma," segir Heimir
Örn, sem tók við málinu af
lögfræðingi Húseigendafé-
lagsins í vor.
jontrausti@dv.iSm
verið hérlendis undanfarið. Ekki
er vitað til þess að fjarvera hans
tengist á nokkurn hátt dómsmál-
inu, en hann hefur haft mikið fyr-
Lýðræði neytandans
Svarthöfði hefur tekið afstöðu í
Baugsmálinu. Atkvæðaseðill hans var
mjólk, ostur og brauð.
Þjóðin virðist skiptast í tvær fylk-
ingar í þessu stóra máli. Önnur fýlk-
ingin verslar í Bónus, hin verslar í
Krónunni. Svo eru þeir sem eiga of
mikla peninga og þurfa hvorki að hafa
áhyggjur af Baugsmáli né verðlagi.
Svarthöfði vill ekki gefa upp hvar
atkvæði hans féll. En hefði hann
verslað í Bónus, væri hann Baugs-
maður. Hefði hann verslað í Krón-
unni, væri hann Davíðsmaður. í Bón-
us er Davíð Róbert Mugabe, en í
Krónunni er hann Margrét Thatcher.
\ Svarthöfði
Svarthöfði hefur verið lýðræðis-
legur neytandi um árabil. Hann
kaupir bensín hjá Atlantsoh'u, því hin
fyrirtækin stungu hann í bakið sem
neytanda. Hann kaupir ekki
MacDonalds í útlöndum, því hann
vill ekki að fyrirtækið valti yfir hefð-
bundna matarmenningu annarra
þjóða. Þetta hefur reyndar lítið að
segja, en líklega mun meira en einn
atkvæðaseðill í bandarísku forseta-
kosningunum. Þar stendur vahð á
milli tveggja manna, sem báðir sjá sér
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bara mjög gott þessa dagana. Ég hélt upp á 32 ára afmeelið mitt á föstu-
daginn og heppnaðist það svona dúndurvel/' segir GeirÓlafsson söngvari.„Að eiga
kvöldstund með fjölskyldu og vinum er alveg meiriháttar. Þetta var garðpartí en það
hentaði einstaklega vel þvíþað varsvo fínt veður á föstudaginn. Sól og brakandi
bllða.
jBKKfl:-,r
rtrt^NAN
þann kost vænstan að þóknast fyrir-
tækjum sem menga jörðina eða ann-
að af verra.
Svarthöfði hefur þá óþægilegu trú
að lýðræðið muni brátt hða undir lok.
í Bandaríkjunum hafa stórfyrirtæki
keypt sér forseta um árabil. Enda
vinnur enginn kosningar nema með
miklum peningum. Frambjóðendur
sem ekki kosta til rándýrrar ímyndar-
herferðar eru ekki til. Þeir sem ekki fá
birtingu í sjónvarpi em ekki. Þannig
kemur til hið farsæla hjónaband pen-
inga og lýðræðis.
Og þegar lýðræðið hefur Mðið und-
ir lok verður htið hægt að gera. Hvort
á að kjósa Coca Cola frambjóðand-
ann eða Pepsí? Skiptir ekki máh. Vahð
stendur á milh viðskiptablokka. Hvort
á að versla í Bónus eða Krónunni? Þar
hggur meinið.
Svaithöfði