Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2005, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Misheppnað
innbrot í Þing-
vallakirkju
„Nei, þetta er ekki al-
gengt sem betur fer," segir
Sveinbjörn Jóhannesson
formaður sóknarnefndar í
Þingvallasókn. Á föstudag-
inn síðasta var lögreglunni
á Selfossi tilkynnt að reynt
hefði verið að brjótast inn í
Þingvallakirkju. Þrjár rúður
yfir aðalhurðinni voru
brotnar og bersýnilegt var
að átt hafði verið við hurð-
ina. Mönnunum varð hins
vegar ekki ágengt og virðast
hafa horfið á braut án þess
að vinna frekari skemmdir.
Að sögn lögreglu er ekki vit-
að hverjir voru að verki en
unnið er að rannsókn máls-
ins.
Mótmælir
gjaldskrá
leikskóla
Stjóm Stúdentaráðs
Háskóla íslands er afar
óánægð með breytingar
á gjaldskrá leikskólanna.
Breytingin hefur þau
áhrif að leikskólagjöld
hækka verulega hjá þeim
fjölskyldum þar sem
annað foreldrið er í
námi. Stúdentaráð skor-
ar á borgarstjórn Reykja-
víkur að draga hækkan-
irnar til baka eða að
bæta á einhvern hátt fyr-
ir þær. f yfirlýsingu frá
Stúdentaráði segir að rök
fyrir breytingunni séu
ófullnægjandi og í raun
móðgun við það starf
sem námsmannahreyf-
ingarnar hafa unnið á
síðustu áratugum.
Hansadagarí
Hafnarfirði
í fundi þjónustu- og
þróunarráðs Hafnaríjarðar
í gær greindi sviðsstjóri frá
því að Hafnarfjörður væri
orðinn meðlimur í Stádte-
bund der Hansa, fyrst ís-
lenskra bæjarfélaga, en alls
eru 169 borgir í samband-
inu. Af því tilefni mun sögu
Hansakaupmanna verða
gerð góð skil á Hansadög-
um sem verða haldnir
hátíðlega 21.-23. október
næstkomandi. Við sama
tækifæri tilkynnti sviðs-
stjóri að Forseti íslands
myndi koma í opinbera
heimsókn í Fjörðinn þann
20. og 21. október.
Tvítug varnarliðskona var stungin til bana í fyrrinótt í blokk einhleypra varnar-
liðsmanna. Rúmlega tvítugur varnarliðsmaður er í haldi herlögreglu, grunaður um
morðið. Unnusta hans, 29 ára íslensk stúlka, var á vettvangi þegar morðið var
framið en reyndi að komast undan lögreglu. Hún var stöðvuð í leigubíl á leið af
varnarliðssvæðinu og var yfirheyrð í gær. Vettvangi glæpsins er líkt við sláturhús.
VitniD reyndi að
komast undan
„Haföi eitt vitniþað á
orði að vettvangurinn
hefði iíkst sláturhúsi."
Tvítug varnarliðskona var myrt í fyrrinótt á umráðasvæði
bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli. Rúmlega tvítugur
bandarískur varnarliðsmaður er í haldi herlögreglu grunaður
um að hafa orðið konunni að bana. Atburðurinn átti sér stað í
vistarverum einhleypra varnarliðsmanna.
Samkvæmt heimildum DV voru
stungusár á líki varnarliðskonunar
þegar herlögregla kom á vettvang í
gær. Stigagangur blokkarinnar þar
sem atburðurinn átti sér stað var
blóði drifinn og hafði eitt vitni það á
orði að vettvangurinn hefði líkst
sláturhúsi.
Beið lögreglu í herbergi sínu
Talið er að morðingi konunnar
hafi veist að fórnarlambi sínu á
annarri hæð blokkarinnar í sameig-
inlegu rými íbúa. Konunni voru
veittir banvænir áverkar en hún náði
engu að síður að skríða í blóði sínu
niður á næstu hæð fyrir neðan. Þar
lést konan skömmu síðar.
Varnarliðsmenn í blokkinni
komu að konunni rétt upp úr mið-
nætti og kölluðu samstundis á her-
lögreglu. Þegar hún kom á vettvang
var varnarliðskonan úrskurðuð lát-
in. Varnarliðsmaðurinn sem grun-
aður er um morðið var enn í her-
bergi sínu þegar herlögregla vitjaði
hans og hafði ekki reynt að komast
undan. Heimildir DV herma að
hann hafi verið í annarlegu ástandi.
Lykilvitni reyndi að flýja
29 ára íslensk kona, af asískum
uppruna, var gestkomandi í íbúð
hins grunaða þegar atburðirnir
vofeiflegu áttu sér stað. Samkvæmt
heimildum DV var hún hins vegar á
bak og burt þegar lögregla kom á
vettvang og var gripin í leigubíl á
leiðinni út af varnarliðssvæðinu.
Hún er talin lykilvitni í málinu og var
í yfirheyrslum lungann úr gærdegin-
um. Henni var svo sleppt síðdegis.
Meintur morðingi hafði áður
rænt hina látnu
Aðdragandi átakanna á milli
hinnar látnu og mannsins sem er í
haldi lögreglu er langur. Maðurinn
er sagður hafa, í félagi við annan,
stolið greiðslukorti af hinni látnu og
tekið út af því háar fjárhæðir. Málið
mun hafa komist upp og var einum
vikið frá störfum í kjölfarið. Mun sá
grunaði enn hafa beðið niðurstöðu í
málinu þegar leiðir hans og hinnar
látnu lágu saman í gærnótt.
Rannsókn morðsins er að mestu
leyti í höndum bandaríska hersins
og er von á sérfræðingum á þeirra
vegum til landsins í dag til aðstoðar.
Herlögregla leitaði morðvopnsins í
gær og tók meðal annars poka, úr
ruslagámi við hlið blokkarinnar þar
sem ódæðisverkið var framið, til
nánari skoðunar.
andri@idv.is
Mikilvægt sönnunargagn? Poki sem ertalinn
tengjast rannsókn málsins íannst íþessum bláa
gámigær. Gámurinn erskammt frá blokkinni þar
sem varnarliðskonan var myrt.
Herlögreglan að störfum
Varnarliðsmenn fínkembdu svæð
ið I grennd við vettvang i gær.
í nágrenni vettvangsins Þessir gámar voru einnig
qrandskoðaðir þegar morðvopnsins vai leitað I gær.
Deilurnar í Landakotsskóla halda áfram. Næsta skólaár sagt vera í uppnámi.
Kennarar neyddir til að segja upp
Deilunum í Landakotsskóla sem
komust í hámæli í byrjun sumars
virðist hvergi nærri lokið þrátt fyrir
að nýr skólastjóri, Regína Höskulds-
dóttir, hafi verið ráðinn. Regínu beið
það hlutverk að koma á starfsfriði
innan skólans. Henni tókst það hins
vegar ekki og um síðustu mánaða-
mót hættu sjö kennarar störfum hjá
skólanum. Þar með hafa þrettán
starfsmenn skólans frá síðasta
skólaári yfirgefið hann á þessu
sumri.
Hvað liggur á?
Starfsmenn skólans telja að
Regína hafi fljótlega ákveðið að
taka þannig á málunum að losna
við alla þá starfsmenn sem neituðu
að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu
við stjórn skólans í júlí. Hún mun
hafa lýst því yfir á fitndi með lög-
fræðingi Kennarasambandsins að
þessir kennarar þyrftu ekki að
vinna lögbundinn uppsagnarfrest.
Með því að taka á málum eins og nú
hefur verið gert hefur öllum kenn-
urum sem tengjast deilunum verið
komið burt. Samkvæmt heimildum
„Nú liggur á að græja tónleikana á menningarnótt/' segir Ómar Ágústsson, beturþekkt-
ur sem Ómar Ómar, ritstjóri Hiphop.is og tónleikahaldari.„Ég er á fullu að fá fólk til að
spila og staðfesta pöntun á hljóðkerfi. Svo er ég líka að reyna að plögga þetta. Eftir tón-
leikana held ég áfram að vinna í Hiphop.is. Svo er líka brjálað að gera hjá mér í vinnunni.
Ég er að vinna hjá fyrirtæki sem heitir PMT og er að taka við verkstæðinu þar."
DV eru það þeir kennarar sem stað-
ið hafa að baki þeim nemendum
sem náð hafa afburðaárangri síð-
ustu ár.
Þrátt fyrir að starfslið skólans hafi
mætt til starfa í gær eftir sumarfrí er
enn allt á huldu um framtíð skólans
næsta skólaár. Foreldrar eru margir
hverjir mjög óánægðir með þá
óvissu sem hefur ríkt í sumar og eru
óánægðir með stjórn skólans.
Margir hafa tekið börn sín í úr skól-
anum og er kennsla í nokkrum ár-
göngum í hættu þar sem aðeins ör-
fáir nemendur eru eftir. Jafnframt
hefur blaðinu borist til eyrna að
skólinn hafi ekki enn fengið starfs-
leyfi hjá menntamálaráðuneytinu
fyrir komandi skólaár en það fékkst
hins vegar ekki staðfest hjá ráðu-
neytinu.
Enn er deilt i Landa-
kotsskóla Regínu
Höskuldsdóttur skóla-
stjóra hefurekki tekist
að lægja öldurnar. Sjö
kennarar hættu um
] mánaðamótin.
johann@dv.is