Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2005, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Friörik Stefánsson ersterkur
körfuknattleiksmaður. Hann
er mikill keppnismaður og
gefursig jafnframt allan íþað
sem er fyrir höndum.
Friðrik lætur stundum skapið
hlaupa með sig í gönur. Sem
körfuknattleiksmaður þarf
Friðrik að bæta sóknarleik
sinn. Hann þarfað skilja sjón-
arhorn annarra betur.
„Friðrik er orðinn gríðarlega
reyndur körfuknattleiksmaður
og er frábær i vörn. Hann er lika
búinn að eflast sem sóknar-
maður, bæta skot og hefur góð-
ar sendingar. Friðrik er mikill
keppnismaður. Hann hefur mik-
inn viljastyrkog verðurseint
sakaður um að leggja sig ekki
fram. Þó svo að hann hafi unnið
mikið íþví að róa sig þá
á hann það til að missa
sig eins og gengur og
gerist hjá miklum
keppnismönnum."
Einar Arni Jóhannsson, þjálfari Friöriks
hjá Njarðvik.
„Helsti kostur Friðriks er styrkur
og nýtist það landsiðinu mjög
vel. Það verður gaman að fylgj-
ast með honum á móti Yao
Ming, sem er einn besti
körfuknattleiksmaður I heimi.
Friðrik er svo mikill keppnis-
maður að hann á alveg eftir aö
ráða við Yao. Ég kvíði ekki
þeirri viðureign. Það sem
ég myndi helst setja útá
hann er að hann mætti
vera betri I að klára færin
inni á körfuboltavellinum."
Sigurður Ingimundarsson landsliðs-
þjálfari.
„Friörik er náttúrulega frábær
náungi í alla staði. Hann er ró-
leg og skemmtileg týpa. Hann
er mjög reynslumikill og góður
körfuknattleiksmaður. Þaö lýsir
honum vel að hann er alltafaö
kenna ungu strákunum
og miðla afreynslu
sinni.
Hans helsti galli er lik-
lega sá að hann á það
til að vera frekari en andskot-
inn."
Halldór Karlsson, fyrirliði NJarövlkur og
vinur Friðriks.
Friðrik Stefánsson er frá Vestmannaeyjum.
Hann hefur búið víða og farið I marga
skóla. Hann var I Fjölbrautaskólanum I
Vestmannaeyjum, Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og Iðnskólanum I Reykjavlk. Hann
hefur leikið með KR, Þór á Akureyri, KFÍ og
Njarðvík. Hann er margfaldur landsliðs-
maður. 18. til20. ágúst mun hann leika
með landsliðinu gegn Kínverjum þar sem
hann færþað verðuga verkefni að dekka
hinn 226 cm háa Yao Ming sem er einn af
bestu leikmönnum heims I dag.
Maðurívímu
keyrði útaf
Aðfaranótt sunnudags
var bíl ekið út af Suður-
landsvegi rétt austan
við Þrengslaveg. Þrír
karlmenn voru í
bflnum en þeir
sluppu allir ómeidd-
ir. Svo vildi tfl að
sjúkrabfll frá Selfossi
sem var á leið heim úr
útkalli hafði ekið um stund á
eftir bflnum. Sjúkraflutn-
ingamennimir veittu því at-
hygli að bfllinn rásaði á veg-
inum og fór síðan útaf. Öku-
maður var greinflega undir
áhrifum fíkniefna og fannst
hvítt duft í bflnum sem talið
er að sé amfetarru'n. Menn-
imir vom handteknir.
Telputælirinn Ágúst Fannar Ágústsson þröngvaði 12 ára stúlku til að hafa við sig
samræði á heimili sínu nokkrum dögum fyrir jólin 2004. Hæstiréttur staðfesti ný-
verið árs fangelsisdóm yfir Ágústi, sem hann hefur nú byrjað að afplána. Telpunni
sem Ágúst hafði samræði við var gefið áfengi í veislu sem hann hélt. Hún reyndi
að segja nei, en það dugði ekki til.
Agúst Fannar Agústs-
son Afplánarnú tólfmán
aða dóm á Litla-Hrauni.
Hæstiréttur Dæmdi
Ágúst Fannar I fangelsi
fyriraðtæla 12árastúlku.
Ágúst Fannar Ágústsson hefur hafíð afplánun sína á Litla-
Hrauni. Þar mun hann sitja af sér ddm sem hann hlaut fyrir að
hafa samræði við tólf ára telpu á heimili sínu nokkrum dögum
fyrir jólin 2002. Ágúst áfrýjaði til Hæstaréttar íslands sem stað-
festi nú í maí úrskurð héraðsdóms síðan í desember 2004.
„Ég sagði bara nei, ég vil þetta
ekki, en hann sagði jú, þú verður að
prófa, einhvern tímann verður þú að
komast áfram í h'finu." Svona lýsti
telpan samskiptum sínum við Ágúst
fyrir Héraðsdómi Norðurlands
eystra í desember 2004 þegar réttað
var yfir Ágústi Fannari.
Ágúst hafði látið boð út ganga
meðal ungmenna að partí væri
heima hjá honum. Litla stúlkan var
meðal þeirra sem hlýddu kallinu.
Henni var gefinn bjór í boðinu hjá
Ágúsú.
Frásögn telpunar
„Á endanum sagði ég bara ókey
og svo fór hann að reyna að ná mér
„Þá fór égað segja
nei og reyndi að ýta
honum frá mér. Hann
hélt samt alltaf
áfram."
úr buxunum. Þá fór ég að segja nei
og reyndi að ýta honum frá mér.
Hann hélt samt alltaf áfram, hann
talaði alitaf við mig, ég gat ekkert
mótmælt. Svo heyrðum við bankað
á gluggann og heyrðum eitthvað í
skráargatinu, þá fór hann og setti
eitthvað fýrir skráargatið og svona.
Svo kom hann aftur og ég man bara
að hann klæddi mig úr öllum fötun-
um og hafði mök við mig... í kring-
um 10 mínútur... hann bara lagði
mig niður og lagðist sjálfur ofan á
mig... og svo man ég bara eftir mikl-
um sársauka," sagði telpan þegar
hún lýsti því hvernig Ágúst braut á
henni.
Vitni lágu á hleri
Sjálfur bar Ágúst að hann hefði
hvorki vitað um ungan aldur
stúlkunnar né haft við hana mök.
Þótt hann hafi klætt sig úr að ofan
„vegna hita í herberginu“ hafi hann
aðeins verið að hlusta á frásagnir
hennar af samskiptum við aðra
pilta. Að lokum hafi honum leiðst
þófið og farið fram að sinna öðrum
gestum.
Héraðsdómur tók hins vegar mið
af framburði stúlkunnar og ungra
drengja sem lágu á hleri við svefn-
herbergisdyr Ágústs og taldi hann
sekan um að hafa haft samræði við
telpuna. í ofanálag hafi honum ekki
getað hafa dulist að stúlkan var und-
ir fjórtán ára aldri. Hann var í kjöl-
farið dæmdur í árs fangelsi fýrir
samræði við stúlku undir lögaldri.
„Þessi dómur er rangur og ég uni
honum ekki. Þegar lögfræðingur
minn kemur úr fh'i mun ég fela hon-
um að áfrýja dómnum,“ sagði Ágúst
Fannar í samtali við DV skömmu
eftir að héraðsdómur tilkynnti nið-
urstöðu sína. Ágúst stóð við stóru
orðin og áfrýjaði, en þrír hæstarétt-
ardómarar staðfestu nýlega niður-
stöðu héraðsdóms.
Dæmdur ofbeldismaður
Ágúst hefur áður hlotið refsi-
dóma, meðal annars fimm mánaða
fangelsidóm í febrúar á þessu ári fyr-
ir að ganga í skrokk á þáverandi kær-
ustu sinni sem neitaði að fara fyrir
hann út í sjoppu kvöld eitt um mitt
ár2003.
andri&dv.is
Fámennasta sýslumannsembætti á landinu
Lögreglusnautt embætti
Sýslumannsembættið á Húsa■
vlk er með 0,0002 lögreglu-
menn á ferkílómetra.
Sýslumaður með útibú
í gær greindi DV frá fjölda lög-
reglumanna á hvern ferkflómetra á
landinu. í ljós kom að Sýslumanns-
embættið á Húsavík hefur fæsta
lögreglumenn samkvæmt þeim
mælikvarða, eða 0,0002 menn á
ferkilómetra. „Það er náttúrulega
mikill tími vinnunnar sem fer í
akstur eða ferðalög. Það segir til
sín," segir Halldór Kristinsson,
sýslumaður á Húsavík. „Við erum
með lögreglustöðvar á Raufarhöfn
og Þórshöfn. Það eru nokkurs kon-
ar útibú," segir hann.
Halldór segir að alltaf megi
fjölga lögreglumönnum. „Það væri
til mikilla bóta. Því meira eftirlit
þeim mun betra. Ég held að það sé
almennur vilji fyrir því," segir
hann. Hann segist vona að fjöldi
lögreglumanna hafi ekki áhrif á
löggæslu á svæðinu. „Við gerum
okkar besta úr því sem við höfum,"
segir hann.
„Bættar samgöng
ur eru lykilatriði.
Þróunin er í þá
átt að betra er að
sinna umferðareft-
irliti og komast leiðar
sinnar. Það er það
sem er að gerast
hægt og bítandi,"
segir hann. Hall-
dór segir
að alltaf
sé þörf á
að bæta
samgöngur,
það eigi við
um hans sýslu
mannsembætti
sem önnur.
Lægri skatta á
bensín
Neytendasamtökin taka undir
kröfu Félags íslenskra bifreiða-
eigenda um
að stjóm-
völd lækki
skatta á
bensín og
olíu á með-
an heims-
markaðs-
verð er eins
hátt og
raun ber
vitni. Sam-
tökin
minna á að 60% þess verðs sem
neytendur greiða fyrir bensín
rennur til rfldsins. Verð á bensíni
og olíu hér á landi sé með því
hæsta sem gerist. Auk þess
minna samtökin á að stjórnvöld
hafa áður gripið til aðgerða þegar
verð á þessum vömm hefur verið
hátt.