Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2005, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST2005
Lífíð BV
Playstation Portable er nýjasta viðbót Sony við leikjatölvuheiminn. Með henni er
hægt að spila fyrsta flokks tölvuleiki ásamt því að horfa á kvikmyndir og hlusta á
tónlist. Handtölva með þessum eiginleikum hefur aldrei sést áður. Hún er væntan-
leg til landsins 1. september.
Engin módel
í Lost
Margir hafa gagnrýnt að fólkið sej
lifði afflugslysið í sjónvarps-
þáttunum Lost virðist eins
og klippt út úr tískublöð-
um. Evangeline Lillysem
leikur Kate í þáttunum,
segir þó ekkert hæft í
því að aðeins fallegt
fólk hafi fengið að lifa
af.„Hárið ámérí þátt-
unum er eins og það er
þegarég vakna/'segir
Evangeline.„Við notum
næstum því engan farða,
bara þeim mun meira af
drullu og olíu. Ég held að
fólk myndi llta akkúrat
svona útefþað væriskips-
vana á eyðieyju."
Hefur aldrei
lesið bók
Þrátt fyrir að hafa gefið út ævisögu
sína aðeins 20 ára gömul, hefur Vict-
oria Beckham aldrei lesið heila bók á
ævinni. Þetta viðurkenndi hún í við-
tali við spænska tímaritið Chic. Vict-
oria hefur ekki lesið sína eigin ævi-
sögu eða ævisögu Davids Beckham
eiginmanns hennar.„Ég hefaldrei
lesið bók. Ég hefbara aldrei tíma svo
ég hlusta frekar á tónlist eða les
tlskutímarit," sagði Victoria.
Playstation Portable eða PSP er
ný leikjatölva frá Sony. Hún er jafn-
stór og hinn sínvinsæli Gameboy
nema að PSP getur gert miklu meira.
Á PSP er skjár sem er 4,3 tommur og
birtir hann allt litrófið. Hægt er að
spila tölvuleiki, horfa á kvikmyndir,
hlusta á tónlist og
margt fleira á
PSP.
Ný gerð af
diskum Svo
kallaðir UMD-
diskar fara i
tölvuna.
Tölvan notast við öðruvísi diska en
áður hefur tíðkast. Það eru svokall-
aði UMD, eða Universal Media
Discs, sem PSP notast við. Þeir voru
sérstaklega gerðir fyrir tölvuna og
eru þeir 1,8 gígabæt að stærð.
Tölvan hefur innbyggða stereó-há-
talara en einnig er tengi fyrir heyrn-
artól. í tölvunni má einnig finna
USB 2.0 tengi og þráðlaust net.
Fjöldi leikja og
kvikmynda
Fjöldinn allur
af tölvuleikjum
hefur komið út
fyrir PSP og eru
enn fleiri á leið-
inni. Til dæmis má
nefna nýja viðbót við
Grand Theft Auto heiminn en hann
nefnist Liberty City Stories. Kvik-
myndaframleiðendur hafa svo verið
duglegir við að gefa út kvikmyndir
fyrir PSP og sem dæmi má nefna að
Kill Bill er komin út fyrir tölvuna.
Flottur gripur
Skjárinn varpar
öllu iitrófinu.
Svona öflug handtölva hefur aldrei
sést áður og eru leikir í henni í alveg
sama gæðaflokki og í Playstation 2-
leikjatölvunni. Hægt verður svo að
tengja PSP við PLaystation 3 þegar
hún kemur á markað.
Kemur 1. september
Playstation Portable var kynnt
fyrir japönskum almenningi iýrr á
árinu og sló hún samstundis í gegn.
Það þykir alveg ótrúlegt að hafa
græju í brjóstvasanum þar sem hægt
er að horfa á kvikmyndir, spila
tölvuleiki og hlusta á tónlist. Fjöld-
inn allur af aukahlutum er svo fáan-
legur fyrir tölvuna. PSP kemur til ís-
lands þann 1. september og fer hún
samstundis í sölu. Hægt verður að fá
vélina með sérstökum aukahluta-
pakka en þar er að finna minniskort,
hulstur, heyrnartól og fleira.
Hefurengan i j
áhuga á Aniston
Vince Vaughn segir að hann sé ekki
að slá sér upp meö Jennifer Aniston.
Grínarinn vinsæli segist engan
áhuga hafa á föstu sambandi. Eins
og komið hefur fram hafa birst
myndir í fjölmiðlum vestra afVince
og Jennifer í faðmlögum við tökur á
myndinni The Break Up. Vince, sem
er bæði vinur Jennifer og Brads
Pitt, segist reiðuryfir fréttum
fjölmiðla því hann myndi
'ipýta sér ástand Jenni-
'er til að vera með
enni.„Ég hefaldrei
yerið mikið fyrir
<að að koma
alltafheim til
ömu stelpunnar
á hverju kvöldi,"
segir Vince flottur
áþvf.
Ég nenni ekki að vera hermaður lengur
DV er með innanbúðar-
mann við tökur á stór-
mynd Clints Eastwood,
Flags of our Fathers.
Vegna ákvæða í samn-
ingi má ekki Ijóstra upp
um nafn hans eða birta
mynd af honum. Innan-
búðarmaðurinn dregur
þó ekkert undan í lýs-
ingum sínum á tökum á
stórmyndinni.
Uff, stress! Rúllandi mynda-
vélar, hrópandi leikstjóri og
það sjálfur Clint Eastwood.
Svona sá ég fram á að dagurinn yrði
þegar ég vaknaði um miðja nótt til
að mæta í rútuna góðu og aka á
tökustað á fyrsta tökudegi. Mér
skjátlaðist. Þegar komið var til
Keflavíkur beið okkar ekta amerísk-
ur morgunverður í skemmunni.
Þar var boðið upp á sveittar, steikt-
ar samlokur með þykkri skinku og
osti, auk þess sem að við gátum
fengið okkur bleikan djús. Því
næst klæddum við okkur upp
sem hermenn. Nöllarnir byrjuðu
aftur að ffla sig eins og þeir væru í
Counter Strike-tölvuleik. Hópun-
um var skipt niður á báta þegar
við komum á tökustað. Bátarnir
voru ekki eins margir og ég bjóst
við svo að einhverjir hóparnir
þurftu að bíða í tjaldi sem bauð
upp á endalaust af amerískum
kleinuhringjum og kaffl. Hóp-
arnir sem fóru út á sjó þurftu að
sigla í hringi á Higgins-bátun-
um. Á meðan hringsólaði þyrla
yfir þeim og tók upp. Þeir prófuðu
að hlaupa upp á strönd ffá bátun-
um og lflcja eftir innrás en það fór
ekki betur en svo að í aðhlaupinu
tókst einum náunga að fótbrjóta sig
og Clint bar enga ábyrgð á því sam-
kvæmt samningi. Svona gekk þetta
í fjórar klukkustundir, bátamir
hringsóluðu úti á sjó og menn
fengu ekkert vatn, nema gusurnar
af sjó sem flæddu yfir bátinn. Þeir
fengu enga næringu og
þurftu að halda í sér ef bleiki djús-
inn var kominn alla leið. Það var
kominn hádegismatur þegar komið
var í land. Maturinn var vondur. í
miðjum hádegismatnum þegar ég
var að skófla í mig ógeði gerðist
nokkuð sem toppaði ömurlegan
dag. Ég lít aðeins upp af matar-
disknum og horfl í kringum mig, þá
sé ég að allt í einu kemur inn í
matartjaldið maðirr klæddur í her-
mannabúning eins og allir
þama inni, nema hann var ekki
hermannalegur, hann minnti
meira á gamlan kúreka. Þegar
hann var búinn að taka nokkur
skref inn í tjaldið áttaði ég mig á
því að þetta var kúreki, hinn eini
sanni kúreki, Clint Sjálfur East-
wood. Af einhveijum ástaéðum
gekk hann í gegnum tjaldið sem
ætlað var hermannaliðinu en fór
ekki í tjaldið fyrir stórlaxana. En
þar var hægt að fá lax og humar. í
hádeginu vom allir sem fóm út á
sjó rennandi blautir og allir sam-
mála um að þetta hefði verið öm-
urlegt. Allir nema 10 manns sem
vom svo heppnir að fá að vera á
bát með öllum aðalleikumnum og
Clint sjálfum. Eftir hádegismat var
marserað niður á strönd og þeir
sem ekkert gerðu fyrir hádegi fóm
fýrst í bátana. Þegar aðeins átti eft-
ir að fylla tvo báta af mannskap var
vindurinn farinn að segja til sín og
brimið orðið það mikið að ekki var
hægt að halda áfram tök-
um. Við marseruðum heim
á leið og skiluðum búningunum.
Nú vom liðnir 14 klukkutímar síð-
an ég mætti og þessi dagur var
vægast sagt leiðinlegur. Ég er búinn
að sjá Clint svo að það er spurning
hvort ég nenni nokkuð að halda
áfram í hemum.
n
Þegar hann var búinn
að taka nokkur skref
inn í tjaldið áttaði ég
mig á því að
þetta var
kúreki, hinn eini
sanni
kúreki, Clint
Sjálfur
Eastwood."
Eastwood-uppljóstrarinn