Ægir - 01.05.2002, Side 32
32
R A N N S Ó K N I R
loðna pökkuð í neytendapakkn-
ingar. Hún er ekki hugsuð beint
til neyslu, heldur notuð sem
kraftur í súpu eða aðra rétti. Af-
urðin er rík af næringarefnum
eins og próteini, fitu og salti og
hentar því vel þar sem skortur er
á næringarefnum. Engum öðrum
efnum en salti er bætt í afurðina.
Strangar kröfur
Afurðin, sem er söltuð þurrkuð
loðna pökkuð í neytendapakkn-
ingar, þurfti að uppfylla strangar
kröfur. Þar má nefna langt
geymsluþol við hitabeltisaðstæð-
ur, eða í allt að 3-6 mánuði,
flutning við erfiðar og frumstæð-
ar aðstæður, hún þurfti jafnframt
að vera mjög ódýr, næringarrík
og þurrkaður fiskurinn þurfti að
vera heill og óskaddaður.
Afríkubúar hrifnir
Skemmst er frá því að segja að
þessi afurð hlaut ágætis dóma í
neytendaprófunum í Suður Afr-
íku og uppfyllti öll þau skilyrði
sem sett voru. Geymslu- og
flutningsprófanir voru unnar í
Höfðaborg og Mosambiq í Afr-
íku á þurrkuðu loðnunni bæði
við raunverulegar aðstæður og
þar sem líkt var eftir aðstæðum.
Loðnan var þurrkuð á tilrauna-
stofum hér heima á Íslandi hjá Rf
og úti í Þýskalandi og þegar búið
var að þróa þurrkunaraðferð, var
loðna einnig þurrkuð í nokkru
magni hjá Samherja á Dalvík.
Neytendaprófanir á tilraunastofu
og hjá hugsanlegum neytendum í
Afríku leiddu í ljós að afurðin
stenst þessar ströngu kröfur og
eftir geymslu í 6 mánuði við allt
að 30 Cº hita var hún enn talin
hæf til neyslu. Nokkuð jákvæðar
niðurstöður komu úr síðustu
neytendaprófunum sem hafa leitt
til þess að nú er verið að kanna
betur vilja hugsanlegra kaup-
enda.
Markaðir
Rétt er að benda á að sú vinna
sem unnin hefur verið var ein-
ungis á tilraunastigi og voru nið-
urstöður úr þeirri vinnu jákvæðar.
Nauðsynlegt er að vinna áfram
með þetta verkefni svo hægt sé að
fullreyna hvort hér sé um hag-
kvæma vinnslu að ræða. En til
þess að það sé hægt þarf fyrst að
vinna nánar með hugsanlegum
kaupendum og meta hvort kaup-
endur eru tilbúnir að borga slíkt
verð fyrir afurðina að vinnslan
geti orðið arðbær.
Verkefni þetta snérist um að
þróa afurð fyrir landssvæði sem
eru mjög fátæk og hafa ekki að-
gang að tæknilegum geymsluað-
ferðum eins og kælingu og öðrum
þróuðum geymsluaðferðum. Þetta
eru jafnvel svæði sem hafa átt í
átökum og hafa jafnvel einangr-
ast. Þannig samfélög gætu séð
hag sinn í því að neyta afurðar-
innar, sem hefur hátt næringar-
gildi sem þolir frumstæðar flutn-
ingsaðferðir og langa geymslu við
erfið skilyrði. Þar sem þróun af-
urðarinnar tók lengri tíma en
áætlað vannst ekki nægur tími í
verkefninu til að vinna nógu vel í
markaðshluta verkefnisins, en nú
eru hagsmunaaðilar úr verkefninu
að vinna að þeim málum.
Nú er verið að skoða möguleika
á markaðssetningu vörunnar og er
þá horft til tveggja markaða, ann-
ars vegar almennan neytenda-
markað í Afríku og hins vegar
með það m.a. í huga að selja hana
hjálparsamtökum, en afurðin ætti
að vera spennandi kostur fyrir
þann markað því afurðin er mjög
næringarrík og gæti því verið
mikilvæg viðbót í fæðu þar sem
næringarskortur ríkir. Markaðir
hjálparsamtaka eru stórir en jafn-
framt mjög kröfuharðir. En kostir
afurðarinnar eru miklir og má þar
benda á heilnæmi afurðarinnar
sem inniheldur mörg næringar-
efni sem eru heilnæm eins og
ómega-3 fitusýrur, amínósýrur,
sölt og auðmeltanleg fiskiprótein,
Svipaðar fæðutegundir er
einnig að finna í mörgum öðrum
suð- og austrænum löndum og
því eru líklega markaðir fyrir vör-
una annarsstaðar. Afurðin myndi
hugsanlega keppa við afurðir eins
og sólþurrkaðan fisk eins og t.d.
hrossa makríl eða soya prótein.
Afurðin getur verið mikilvægt
framlag okkar til landssvæða þar
sem næringarskortur ríkir. Nið-
urstöður verkefnisins voru mjög
áhugaverðar og eru mikilvæg
skref í þá átt að auka verðmæta-
sköpun og jafnframt að auka hlut
loðnuaflans til manneldis.
Frá verkefnafundi í Danmörku.