Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Hann segir / Hún segir Hera Ósk Einarsdóttir vestmannaeyjum Ræninginn ófundinn „Þetta mál er enn óupp- lýst,“ segir Geir Jón Þórðar- son, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Lögreglan leitar enn að manninum sem framdi vopnað rán í af- greiðslu Happdrættis Há- skólans við Tjamargötu í síð- ustu viku. Maðurinn veifaði byssu og rændi öllu lausafé úr peningakassa sem þar var, um 95 þúsund krónum. Reiðhjól, sem hann kom á, var skilið eftir. Blár kraftgalli hans fannst í nálægum húsa- garði. Maðurinn var í hvítum skóm með svörtum röndum, með svarta og hvíta hanska og svört sólgleraugu. Ef ein- hver kannast við hjólið, fatn- aðinn eða manninn á mynd- inni er hann beðinn um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. ísfirðingarfá launahækkun Bæjarstjóm Isafjarðarkaup- staðar hefur ákveðið að hækkalaun þeirra bæjar- starfsmanna sem em lægst iaunaðir. Em þetta rúmlega 190 starfsmenn sem fá þessa launahækkun frá fyrsta janú- ar. Mun hækkunin kosta ísa- fjarðarkaupstað rúmar 32 milljónir. Halldór Halldórs- son bæjarstjóri ísafjarðar- kaupstaðar vonast til að við- brögð við þessum launa- hækkunum verði jákvæð og að þeir sem em ofar í launa- skalanum geri ekki líka kröf- ur um launahækkun. milli ogEyja? Séra Baldur Kristjánsson þorlákshöfn „Þaö þýöir lltið aö spyrja mig. Ég hefalltafveriö skeptískurá þessa hugmynd þvl ég er svo gangahræddur. Þaö þarfhins vegar að skoða þessa hug- mynd vel og gera þaö sem er skynsamlegt." „Mér fínnst aö þaö eigi aö vera framtlöaráætlunin aö leggja göng milli lands og Eyja. En áður en þaö veröur gert fínnst mér aö það verði aö endur- nýja Herjólf. Samgöngur hafa batnaö mikiö meö tvöföldum ferðum Herjólfs en flugsam- göngureru lélegar. Islandsflug veröur aö fara að fljúga aftur.“ Lítið hefur gengið síðustu mánuði í málum Ireanuzar Wochowski, réttinda- lausa verkamannsins sem missti báða fætur sína við hné eftir að hafa feng- ið blóðeitrun. Flest svör við spurningum er varða rétt Ireanuzar hafa verið á sömu leið: Ireanus hafði ekki tilskilin leyfi til að vinna hér þegar hann veiktist og er því réttindalaus. Sonur hans, Severin Wochowski, er nú kom- inn til íslands til að aðstoða föður sinn í baráttunni. Sonurinn kominn að ntan til að styðja við föður sinn „Ég kom hingað fyrir þremur vikum til að styðja við föður minn,“ segir Severin Wochowski, sonur Ireanuz Wochowski, réttindalausa verkamannsins sem missti báða fætur sína við hné eftir að hafa fengið blóðeitrun. Fyrirtækið Jarðvélar réð Ireanuz til vinnu án þess að hafa tilskilin leyfi. Hann hefur því engann rétt á tryggingum. Koma Severins til íslands er eitt af fáum jákvæðum atriðum í sorglegri baráttu Ireanuzar fyrir rétti sínum síðustu misseri. Lítið gengur fyrir hann að fá svör við því hvort möguleikar séu á bótum vegna skaðans sem hann varð fyr- ir. Flest svör hafa verið á sömu leið: Ireanus hafði ekki tilskilin leyfi til að vinna hér þegar hann veiktist og er því réttindalaus. er fyrst ist 71. janúnr 2005 Efling blandar sér í málið Stéttarfélagið Efling hefur blandað sér í baráttu Ireanuzar þótt hann sé ekki félagi. „Þetta er fyrst og fremst mannúðarmál," segir Ágúst Þorláksson þjónustu- fulltrúi hjá Eflingu, sem ásamt öðrum safnar nú upplýsingum um málið og kannar hvort ekki sé grundvöllur fyrir því að hægt sé að bæta Ireanuzi á einhvern hátt þann mikla skaða sem hann varð fyrir hér á landi. Fyrir utan Eflingu eru fáir sem sýna máli hans áhuga. Vinnumálaeftirlitið kannar reyndar hvort grundvöllur sé fyrir því að höfða mál gegn Jarðvélum, fyrirtækinu sem réð Ireanuz til starfa skömmu áður en hann veiktist. Ljóst er að Jarðvélar brutu lög þegar fyrirtækið skeytti engu um þá staðreynd að Ireanuz væri án atvinnuréttinda og réðu hann til starfa. Lítil aðstoð Sonur Ireanuzar, Severin, segir það taka mikið á að sjá aðstæður föður síns. Hann hefur tekið þá ákvörðun að vera honum við hlið í baráttunni fyrir réttindum hans. Aðspurður um hverjir hafi komið a — mmmM. . ..........................................................: föður sínum til hjálpar þann tíma sem hann hafi legið á spítala svar- ar hann: „Ég veit það ekki, mjög fáir.“ DV hafði samband við félag Pólverja á íslandi og spurðist fyrir um hvort eitthvað hefði verið gert fyrir Ireanuz. Eða hvort félagið vissi á annað borð af máli hans. „Við erum menningarfélag. Ég veit ekki alveg hvað það er sem við gætum gert,“ sagði Witek Bogdanski formaður félagsins við DV. DV spurði einnig Friðrik Gunn- arsson, ræðismann Pólverja á ís- landi sömu spurninga, en hann kaus að svara ekki. „Ég vill ekkert tjá mig um þetta mál,“ sagði ræð- ismaðurinn. andri@dv.is Mágur Hallgríms býr í íbúð Jóns Óttars Frambjóðandi vill kaffihús á Klambratún Hann kallar það Kaffi-Róló. Kjartan Valgarðsson, frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar hefur fengið Hallgrím Helgason, rithöf- und og myndlistarmann, til að teikna upp fyrir sig kaffihús á Miklatúni sem áður hét Klambratún. „Þarna vantar líf og aðdráttar- afl,“ segir Kjartan um Miklatúnið. „Þarna vil ég sjá kaffihús þar sem er hægt að sitja og fylgjast um leið með börnunum að leik.“ Það voru hæg heimatökin hjá Kjartani að fá Hallgrím til að teikna fyrir sig uppdráttinn þar sem Hall- grímur er bróðir Nínu eiginkonu hans. Ástæðan fyrir áhuga fram- bjóðandans á Miklatúni er hins vegar sú að Kjartan er nýfluttur í Hlíðarnar úr Vesturbænum og fer því oftar en áður um Miklatúnið. í Hlíðunum býr Kjartan í íbúð sem Jón Óttar, stofnandi Stöðvar 2, átti og bjó í fyrr á árum. Kaffi - Róló Þannig er draumsýn frambjóðandans eftir að Hallgrímur Helgason hefur feert hana I mynd. llCAm K®L@

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.