Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Blaðsíða 18
78 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 Sport DV I Samnings- bundinn Þórs- ari til Essen Lettinn Mareks Skabeikis, handknattleiks- markvörður, hefur gengið til liðs við þýska 3. deildarliðið Essen. Skabeikis lék í fyrra með Þór á Akureyri en hann er enn samnings- bundinn liðinu þó svo að hann hafi ekkert leikið með því á yfir- standandi leiktíð. Þórsarar segjast munu skoða þetta mál á næst- unni en hjá Essen leikur nú einn íslend- ingur, Halldór Sigfússon fyrrverandi leikmaður KA. Sigurbjörg frá í5-6vikur Sigurbjörg Jóhannesdótt- ir handknattleikskona úr Fram verður frá næstu fimm til sex vikumar. Þetta er skarð fyrir skildi í hópi Fram en Sigurbjörg hafði leikið alla leiki liðsins fyrir áramót og var markahæsti leikmaður Fram með 52 mörk. Hún meiddist í upphitun fyr- ir leik Fram og Gróttu í fyrradag og kom í ljós spmnga á ökklabeini. Fram er sem stendur í átt- unda sæti deildarinnar en liðið tapaði fyrir Gróttu í fyrradag sem er í sjötta sæti. Rasiaktil Southampton Pólverjinn Grzegorz Rasiak hefur verið lánaður til Southampton frá Totten- ham til loka tímabilsins. Hann verður svo af öllum líkindum keyptur fyrir tvær milljónir punda þegar tíma- bilinu lýk- ur í sum- ar. Rasiak, sem er 27 ára gam- all fram- herji, kom til Totten- ham í sumar en hefur ekki staðið undir nafni, sér- staklega í fjarveru Mido sem tók þátt í Afríku- keppninni þar sem Rasiak fékk loksins tækifæri til að sýna hvað hann getur. Sænski hástökkvarinn Kajsa Bergqvist stökk yfir 208 sm um helgina og setti nýtt heimsmet innanhúss. Metið var síðan 1992 og nú stefnir sú sænska á utanhússmet- ið sem er sentimetra hærra og orðið 19 ára gamalt. ( Kajsa bætti 14 ára heimsmet 19 mánuðum eltir að hún sleit húsin Sænski hástökkvarinn Kajsa Bergqvist er líkleg til afrek á þessu ári eftir að hafa sett nýtt heimsmet í hástökki innanhúss um síðustu helgi. Framundan er heimsmeistaramótið innanhúss í Moskvu þar sem Kajsa getur bætt við HM-gullið sem hún vann á HM utanhúss í Helsinki síðasta haust. Endurkoma Kajsu sem er orðin 29 ára er efni í góða vasaklútasögu enda bjuggust ekki margir við að hún gæti bætt við sinn besta árangur þegar hún sleit hásin 18. júlí 2004. Kajsa hafði fyrir meiðslin hæst stokkið yfir 206 sentimetra en mikill viljastyrkur og stífar æfingar hafa gert hana betri en nokkru sinni fyrr. mér að taka metið," sagði Bergqvist sem fór yfir 208 sentimetrana í fyrstu tilraun. „Ég var eiginlega bara í sjokki fyrstu mínúturnar á eftir. Það er erfitt að sannfæra sjálfan sig um að maður hafi sett heimsmet. Þetta var eitthvað sem mig hafði alltaf dreymt um og þetta var mitt markmið á þessu tímabili," sagði Kajsa um nýja met- ið sitt. Tekur hún útimetið líka? Búlgarski hástökkvar- inn Stefka Kostadinova hefúr mikla trú á Kajsu Bergqvist og spáir því að hún slái einnig heimsmetið utanhúss sem Kostadinova á sjálf en metið verður 19 ára gamalt á þessu ári. Kostadinova stökk 209 senitmetra árið 1987 og engin kona hefur síðan náð að stökkva svo hátt. „Ég veit ekki a hverju þettc _____ heimsmet mitt hefur haldið í svo lang- /«v v. an tíma. Maður I - • þarf að vera í formi á I 4^ réttum tíma og ég náði Vv sem dæmi besta árangri þegar fullt af fólki var til að hvetja mig áfram," segir Kosta- dinova sem hreifst strax af Kajsu. „Ég var að ljúka mínum ferli þegar hún var að byrja og ég tók strax eft- ir því hversu efnileg hún var. Hún býr yfir frábærri tækni og nú hefur hún sýnt að hún getur hoppað f heimsmethæð. Ég er ekkert Mikil innlifun Kajsa Bergqvist er vön að fagna innilega þegar hún feryfir miklar hæðir. stressuð yfir því að missa metið, þrátt fyrir að draumur minn hafi alltaf verið að annar Búlgari myndi slá það en nú þegar ég er búin að eiga þetta met svona lengi er ég alveg sátt við að Kajsa bæti það," segir Kostadinova sem varar Bergqvist jafhffamt við því að einbh'na of mikið á metið því það ^ ~ gæti orðið henni hættulegt enda l skipti mestu máh að vinna keppn- ^'v' J irnar, metin eru aðeins bónus. ooj@dv.is „Eftir að ég sleit hásinina var þetta ekki í mínum villtustu draum- um," sagði Kajsa Bergqvist eftir að metið var í höfn og bætti við: „Þetta er bara ótrúlegt, æðislegt og stór- kostlegt," og greinilegt að hún réð sér ekki fyrir kæti. Kajsa er „aöeins" 175 sentimetrar á hæð sem þykir ekki mikið í þessari grein og var þvf að stökkva 33 sentimetra yfir sinni hæð þegar hún bætti metið um síð- ustu helgi. „Það skipti miklu máli fýrir mig að ég fékk hörkukeppni fr á Blancu Vlasic ffá Króatíu sem þýddi aö ég varð að stökkva svona hátt til þess að vinna hána," sagði Bergqvist en sú króatfska stökk yfir 201 sentimetra og sat síðan hjá þeg- ar ráin fór í bæði 203 og 205 senti- metra hæð og hélt þar með pressu á þeirri sænsku. Eftir að Bergqvist fór yfir 205 sentimetra í annarri tilraun gat Vlasic bara fylgst með henni endurskrifa frjálsíþróttasöguna. Gamli heimsmethafinn var í stúkunni Kajsa Bergqvist sló með þessu frábæra stökki 14 ára heimsmet þýska hástökkvarans Heike Henkel sem stökk yfir 207 sentimetra árið 1992. Það gerði þessa stund enn merkilegri að Henkel var meðal áhorfenda þegar Kajsa bætti metið hennar og sú sænska sá hana í stúkunni. „Ég sá hana rétt áður en ég setti metið. Ég sá hana þegar ég stóð upp til að byrja lokaundirbún- ing minn fýrir stökkið. Hún kinkaði til mín kolli eins og hún vildi segja Tvær góðar saman Kajsa Bergqvist sést hér ásamt Carolinu Kliift en þær unnu báðar heimsmeistaratitil f sínum greinum slðasta haust, Kajsa I hástökki en Klilft I sjöþraut. Sleit hásin fyir 19 mánuðum Kajsa Bergqvistsést hér nýbúin að slita hásin I8.júll2004. Heimsmetið fellur Kajsa Bergqvistsést hér fara yfír208 sentimetra og setja nýtt og glæsi- DV-mynd: Nordicphotos/AFP legt heimsmet. DV-mynd: Nordicphotos/AFP SSA nmijT AF ÞESSU 19.15 Heil umferð í Iceland Express deild karla. Hamar/Sel- foss-Njarðvík, Hauk- ar-KR, Þór-Skallagrím- ur, Keflavík-Höttur, ÍR-Fjölnir, Snæ- fpii-Grindavfk. | 20.00 Stuðnings- mannaþátturinn Liðið mitt á F.nska Bnitannm. 20.30 Sterkasti maður heims ?00Fi á Sýn. Guðmundur Ágúst Ingvarsson formaöur HSÍ um landsliðsþjálfaramálin Hyggst engu að síður ætla að ræða við Viggó Guðmundur Ágúst Ingvarsson, formaður HSÍ, segir að hann hafi fullan hug á því að ræða við Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfara þrátt fýrir yfirlýsingar hans á síðustu dög- um. „Hann er sjálfur búinn að lýsa því yfir að hann sé ekki til við- ræðna," sagði Guðmundur við DV Sport. „Hann kýs að tjá sig um þessi mál við fjölmiðla og þá sérstaklega einn fjölmiðil en ég hef engu að síð- ur fullan hug á því að ræða við hann." Viggó sagði starfi sínu lausu í lok nóvember síðastliðnum en ákveðið var að bíða með viðræður fram yfir Evrópumeistaramótið í handbolta. En þar sem Viggó heyrði ekkert í for- ráðamönnum HSÍ beið hann ekki boðanna og gaf út að hann væri al- farið hættur með landsliðið. Guðmundur hefur sagt að aðrir komi til greina sem næsti landsliðs- þjálfari Islands og hafa þeir Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson og Atli Hilmarsson helst verið nefndir á nafn í því samhengi. Hann segir að enginn af forráðamönnum HSÍ hafi sett sig í samband við neinn varð- andi landsliðsþjálfarastöðuna. Guð- mundur býst þó við því að nýr landsliðsþjálfari verði ráðinn til starfa á næstu tveimur vikum. Samningur Viggós rennur út þann 1. apríl næstkomandi. Þing handknattíeikssambandsins verður haldið í lok mars og hyggst Guðmundur bjóða sig áfram fram sem formaður sambandsins en Ásgeir Jóns-^jjp son, fyrrverandi meðlimur í landsliðsnefnd, hefur einnig sagt að hann muni bjóða sig fram til embættisins. Lands lagið í handknatt- leikshreyfingunni gæti því breyst enn frekar á næst- unni ef skipt verður um forystu í hand- knattíeikssam- bandinu. eirik- urst&dv.is Viggo Sigurðsson Segist vera alfarið hættur með landsliðið. Guðmundur Ingvarsson Formaður HSf sem hyggst ræða við Viggó Sigurðsson. DV-mynd: Nordicphotos/Getty Images

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.