Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Qupperneq 7
DV Fréttir
Sjónvarps-
glæpurí
Héraðsdómi
Mál Gísla Valtýssonar
framkvæmdarstjóra Eyjasýn-
ar var þingfest fyrir Héraðs-
dómi Vestmannaeyja í gær.
Gísla er gefið að sök að hafa í
starfi sínu frá árinu 2001 tek-
ið á móti og sýnt
kappleiki án end-
urgjalds frá sjón-
varpsstöðvunum
Sky Sport og
Canal+. Báðar
stöðvamar eiga
að vera læstar
með myndlykl-
tun. Gísli sagði í viðtali við
DV að stöðin hafi aðeins
sýnt 10 mínútur af fótbolta-
leik en Gísli kveðst hafa
stöðvað það sjálfur þegar
hann áttaði sig á því að Eyja-
sýn var að sýna leikinn.
Málinu var frestað.
Hlaupið fyrir
bretti
Milli 400 og 500 þús-
und krónur söfnuðust í
nýstárlegri söfiiun á Pat-
reksfirði samkvæmt Tíð-
is.is. Söfnunin var
óvenjuleg að því leyti að
hún fólst í áheitagöngu á
hlaupabretti. Krakkar úr
9. og 10. bekk hlupu að-
faranótt laugardags í
tækjasal Bröttuhh'ðar en
markmiðið var að hlaupa
144 km en þeim tókst að
hlaupa tvöfalt meira eða
288 kílómetra. Markmið
áheitasöfrtuninnar var að
fjármagna kaup á nýju
hlaupabretti í tækjasal
Bröttuhh'ðar á Patreks-
firði sem mun kosta 600
þúsund krónur og vona
bæjaryfirvöld að íbúar
brúi bilið sem vanti upp
á.
Konurtaka
sérTAK
Konur á Austurlandi hafa
stofnað með sér tengslanet í
nýjum samtökum aust-
firskra kvenna; TAK. „Hlut-
verk þeirra er að sameina
konur á Austurlandi, efla
samstöðu þeirra, þekkingu
og samstarf. Með
samtakamætti
TAK er unnt að
styrkja hagsmuni
kvenna og efla
konur persónu-
lega og á þeim
vettvangi sem
þær kjósa, eða hafa kosið að
hasla sér völl. TAK mun
beita sér fyrir því að hvetja
konur til áræðni, frum-
kvöðlastarfs og samfélags-
og stjómmálaþátttöku á op-
inberum vettvangi," segir
um TAK á vefsetri Austur-
byggðar.
Misdýrir
grasvellir
Nærri fimmtíu prósenta
munur var á upphæð tveggja
tilboða sem Fjarðabyggð
barst í gerð grasvailar í sveit-
arfélaginu. MCC ehf. bauð
tæpar 24 miiljónir króna í
verkið en fyrirtækið Viðhald
fasteigna ehf. vildi fá tæpar
32 milljónir. Tilboði MCC var
tekið í bæjarráði sem einnig
ætlar að selja fasteignina
Vallarhús á Eski-
firði fyrir 1,1
milljón króna
semvarhæsta til-
boðið af fimm
sem bámst.
Lægsta tilboðið
var aðeins 11.761
króna.
20% afsláttur af öllum viðburðum
j Concert ef greitt er með Mastercard
‘ . á forsöludegi Mastercard
Kynniö ykkur frekari tilboö og tónleikadagskrá Concert á vef
Tilboösklúbbs MasterCard, www.kreditkort.is/tilbodsklubbur
CONCERT KYNNIR í SAMVINNU VIÐ RÁS 2
LIFANDI GOÐSOGN UR TONLISTARSÖGUNNI
RAY DAVIES ON TOUR
InConœrt
F OHSAV^
*®<fí)I\AORGUN!!
MASTERCARD
FORSALA
HEFST í DAG
HASKOLABIOI
14. APRÍL 2006
FORSALA AÐGONGUMIÐA
HEFST FOSTUDAGINN 10. FEBRUAR
TAKMARKAÐ MAGN !
FORSALA AÐGONGUMIÐA
Á WWW.CONCERT.IS
OG WWW.MIDI.IS OG í
VERSLUNUM SKÍFUNNAR