Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Stærðfræði í
leikskóla
Krakkarnir í leikskólan
um í Stykkishólmi fengu
gjöf frá kvenfélaginu
Hringnum sem er
kubbakerfi til stærðfræði-
kennslu. Þetta kubbakerfi
kallast Numicon og er ætl-
að til að efla stærð-
fræðiskilning bama og er
fyrir börn á aldrinum
þriggja til sjö ára. Kerfið
hefur reynst vel í stærð-
fræðikennslu barna og til
að vinna með seinfærum
bömum.
Nýtt bíó á
Reykjanesi
Reykjanesbær hefur haf-
ið endurreisn á einum elsta
bíósal landsins sem er stað-
settur við hlið poppminja-
safnsins í Duushúsum í
Reykjanesbæ. Ráðgert er að
salurinn verði tilbúinn á
Ljósanótt 2006. Ráðgert er
að blönduð menningar-
starfsemi ásamt bíósýning-
um muni eiga sér stað í
salnum en þá er átt við
kynningarsýningar, fyrir-
lestra og margt annað. íbú-
ar em sannfærðir um að til-
koma salarins muni ýta
undir fjölbreytta menning-
arstarfsemi í bænum.
Til útlanda
frá Akureyri
Ferðaskrifstofa Akureyr-
ar hefur ákveðið að bjóða
upp á beint flug til útlanda
frá flugvelli Akureyrar.
Margir áfangastaðir em í
boði en þeir em enn sem
komið er Danmörk, Þýska-
land, Grikkland og Pólland.
Mun þetta fýrirkomulag
verða gríðarleg búbót fyrir
Akureyringa vegna þess að
hingað til hafa þeir þurft að
ferðast yfir hálft iandið til
þess að komast að næsta
utanlandsflugvelli.
Lögreglan í Kaupmannahöfn handtók viðskiptafræðinginn Viðar Þorberg Ingason
aðfaranótt þriðjudags fyrir ósæmilega hegðun á almannafæri. Viðar Þorberg stóð
fyrir framan lífverði Margrétar Þórhildar Danadrottningar og, að sögn lögreglunn-
ar, fróaði sér. Viðar Þorberg segist hafa verið að ganga heim til sín eftir að hafa
drukkið fimm bjóra. Friðrik Weishappel, kaffihúsaeigandi í Kaupmannahöfn, segir
málið til skammar.
HanMinn fyrir aö frúa súr
lijú lífvöröum Danadrattningar
Fremur óvenjulegt mál kom til kasta lögreglunnar í Kaup-
mannahöfri aðfaranótt þriðjudagsins síðastliðins. Lífverðir Mar-
grétar Þórhildar Danadrottningar hringdu á lögregluna og sögðu
að þeir væru með mann í haldi sem hefði fróað sér fyrir framan
þá. Atvikið átti sér stað á Gothersgade í Kaupmannahöfn en þar
em lífverðir Danadrottningar meðal annars með eftirlit.
„Hann fróaði sér fyrir framan líf-
verði drottningarinnar og mun fá
sekt fyrir það,“ sagði talsmaður lög-
reglunnar í Kaupmannahöfn í sam-
tali við DV. Nokkur þúsund íslend-
ingar eiga heima í Kaupmannahöfn
og er málið allt hið vandræðalegasta.
Drukkinn
Lögreglan í Kaupmannahöfn
segir á fréttavef sínum að lífverðirn-
ir hafi orðið fyrir fremur sérstakri
upplifun þegar drukkinn íslending-
ur byrjaði að fróa sér fyrir framan
þá.
„Eg var að fara heim og var búinn
að drekka fjóra til fimm öl,“ segir
Viðar Þorberg Ingason, 39 ára við-
skiptafræðingur sem er við nám í
Kaupmannahöfn. Viðar býr á
Solvgade í Kaupmannahöfn sem er
ekki langt frá þeim stað þar sem líf-
verðirnir segjast hafa séð hann.
Misskilningur
„Ég var á vitíausum stað á vit-
lausum tfma eins og ég sagði við lög-
regluna," segir Viðar Þorberg um
meint athæfi sitt aðfaranótt
þriðjudagsins. Samkvæmt lög-
reglunni í Kaupmannahöfn átti
atvikið sér stað milli þrjú og
fjögur um nóttina.
„Lögreglan spurði mig
hvort ég hefði gert svona
áður og ég sagðist ekki
hafa gert það,“ segir Við-
ar Þorberg og neitar að
hann hafi fróað sér fyrir
framan lífverðina.
„Það skeði ekki
neitt, ég er búinn
að segja lögreglunni
það. Eg reyndar geng
ekki oft þessa götu en ég
var á leiðinni heim um-
rædda nótt,“ segir Viðar Þorberg.
500 danskar
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Kaupmannahöfn mun
Viðar Þorberg fá sekt fyrir athæfi sitt.
Hann þarf að greiða rúmar 500
danskar krónur fyrir uppátækið sem
eru um fimm þúsund krónur ís-
lenskar.
„Lögreglan vildi fá útskýringar
hjá mér á þessu," segir Viðar Þor-
berg um handtöku dönsku lögregl-
unnar.
„Það gerðist eitthvað á þessum
stað, lögreglan var kölluð til og ég
var á leiðinni heim. Það er það eina
sem ég veit," segir Viðar Þorberg.
Skammarlegt
Athafnamaðurinn Friðrik Weis-
happel býr í Danmörku og á þar
kaffihúsið Laundromat café.
Hann segir málið til skammar
fyrir fslendinga og að þeir sem
búa í Kaupmannahöfh hafi ekki
minnst á atvikið sín á milli.
„Þetta hefur ekki verið nefnt
einu orði í dag enda held ég að
fólk forðist það að ræða svona
mál, þetta er bara fáran-
, legt að öllu leyti og til
skammar," segir Friðrik,
„Þetta kemur ekkert vel
út fyrir íslendinga enda
atburðurinn ekki til
, þess gerður," segir
I Friðrik um fróun-
armál Viðars Þor-
bergs.
atli@dv.is
I Lífvörður Danadrottningar
Ufverðirnir, eins og þessi, urðu
fyrir sérstakri upplifun eins og
segir á vefsföu lögreglunnar i
Kaupmannahöfn.
n
ipfelítlilll
„Hann froaði sér fyrir framan lífverði
drottningarinnar og mun fá sekt fyrir það.
I Viðar Þorberg
I Ingason Segist
hafa verið búinn
að drekka fjóra
til fimm bjóra og
að hann hafi ver-
ið á röngum stað
á röngum tíma.
Ekki satt að Mótel Venus sé griðastaður giftra manna
Ástarhótelið selt og eigandinn feginn
„Ég er að fara að selja Mótel Ven-
us,“ segir Guðmundur Ólafsson,
bóndi og eigandi að hinum víðfræga
gististað Mótel Venus. Guðmundur
hefur ákveðið að selja mótelið eftir
að hafa rekið það í tíu ár.
Núna leigir hann reksturinn út til
tveggja athafnamanna. Guðmundur
segir að hann hafi ákveðið að selja
mótelið vegna þess að reksturinn
hafi verið orðinn lýjandi og honum
fannst kominn tími til þess að hætta.
Hann segir að þetta hafi nú samt
verið ósköp fínt á meðan á því stóð
og segir í framhjáhlaupi að hann sé
allavega ekki með neina reikninga á
eftir sér.
„í tíu ár hef ég aldrei orðið var við
að menn séu að koma með viðhöld-
in,“ segir Guðmundur um þær gróu-
sögur sem gengu að mótelið væri
griðastaður kvæntra manna með
viðhöldum sínum. Guðmundur seg-
ir að ástæðan fyrir þeim sögum hafi
aðallega verið nafnið og bætir við að
íslendingar séu bara of uppteknir af
bandarískum kvikmyndum. Guð-
mundur segir að hann hafi reyndar
aldrei spurt heldur.
„Hver myndi nenna að þvælast
með viðhöldin í klukkutíma?" spyr
„Það sem liggur á er að sjá til þess að sjónarmið jafnaðarmanna verði áfram í öndvegi,"
segir Stefán Jóhann Stefánsson, frambjóðandi íprófkjöri Samfylkingarinnar.„Það liggur
á að efla áfram Reykjavík sem gróskumikla og þróttmikla borg. Svo er náttúrulega alltaf
opið heima þar sem kosningaskrifstofan min er og einnig slminn."
Guðmundur og hlær að þessum líf-
seigu sögum. Guðmundur segir að
stærsti hluti reksturs hans hafi aðal-
lega verið árshátíðir hjá fyrirtækjum
og fleira í þeim dúr.
„Ég týndi tíu árum á þessu,“ seg-
ir Guðmundur aðspurður hvort
hann eigi eftir að sakna mótelsins og
augljóst er að hann verður hálffeg-
inn að losna við hið goðsagna-
kennda Mótel Venus.
vaiur@dv.is