Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Blaðsíða 24
K&SiÆSEfc 24 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 Lífið sjálft DV Rúnstykki með ostiogsultu Brynja Björk þáttastjórnandi „Yfirleitt vakna ég ofseint en fæ mér alltafeinn góðan kaffi- bolla á morgnana. Imorgun svafég oflengi. Vaknaði tíu mlnútur fyrir nlu. Ég náði samt að að mæta i vinnuna á réttum tima/'svarar Brynja Ijúfí fasi og heldur áfram:„Mér finnst gott að sofa." Ertu lengi að hafa þig til? „Nei alls ekki/'segir Brynja kímin á svip og svarar hiklaust þegar Lifsstíll spyr hana hvað hún kjósi að hafa á boðstóium þegarhún hafi nógan tíma til að njóta morgunstundarinnar: „Kaffið er nauðsyniegt á morg- unveröarborðinu, ferskur app- elsinusafí, melónur og gott rúnstykki úr bakaríinu með osti og sultu ofan á.“ Hvftbuksolíaog brauðteningar Við Islendingar erum fljótir að eignast nýjustu tækin Ieldhúsið. Ég tel að flest heimili eigi matvinnsluvél eða mixara (blender). Þetta eru frábær tæki tii sins brúks, en eru kannski ekki notuð mjög mikið og oft i takmarkaðan tlma og enda siðan i hillu Igeymsiu. Hvitlauksolía ætti að vera til á hverju heimili. Það er sára einfalt aðbúatil hvítlauksolíu. -1 stkferskur hvitlaukur - Eitt búnt fersk steinselja -1 matsk.salt -1 lltri olla Aðferð Hvltlaukur- inn er skrældurog setturlmixer (blender) ásamt steinseljunni, salti og ollunni og látið blandast I ca mlnútu. Setjið slðan hvltlauksolluna á flöskur eða I ilát með loki og látið vera i kæli- skáp. Hvitlauksolluna er gott að nota til dæmis þegar verið er að steikja fisk eða kjöt, i pottrétti og ekki síst út I sósur og súpur. Hvitlauksolía er nauðsynleg í fiskisúpur þar á meðal humarsúpur. Brauðteningar Ég held að á flestum heimilum tíðkist þaö að henda endum afbrauði. Hér er einföld aðferð til að búa til brauðten- inga. Skerið enda og afganga afbrauði I litla teninga, setjið hvítlauksollu á pönnu og brauðteninga útlog brúnið létt á pönnunni. Hvitlauksbrauðtening- ar eru einnig tilvaldir á salati og út I súpur. ................................................. \ Díanna Dúa Helgadóttir er sölustjóri hjá Forval. Hún fræðir Lífsstíl um augn- svæðið sem er viðkvæmara en margan grunar. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að hugsa vel og vandlega um augun og svæðið í kringum þau. „Þegar byrjað er á augnförðun, þegar búið er að setja gott augn- krem, mæli ég með Eye tonic frá Chanel sem kælir augun og lýsir upp dökka bauga," útskýrir Díanna Dúa sem þekkir vel til í förðunargeiranum. Hún segir það sérstaklega gott fyrir alla sem eru með þrútin augu, þegar hún fræð- ir Lífsstíl um það sem við ættum að huga að þegar kemur að augn- svæðinu: „Þá er tilvalið að nota góðan hyljara undir augun til að lýsa upp augnsvæðið. Gott að nota hyljarann á allt augnsvæðið til að farðinn haldist betur á," segir hún og sýnir nýja hyljarann frá Chanel sem gefur aukinn ljóma. „Mikil- vægt er að púðra vel allt augnlokið og setja vel af lausapúðri undir augun en þannig að auðvelt sé að bursta það af ef augnskugginn hrynur á andlitið eða kirinbeinin.. Augun förðuð „Þar næst er það augnmálingin sjálf. Þá mikilvægt að nota svokall- aðan grunnlit yfir allt augnsvæðið og láta hann deyja út að augabrún- um. Þar næst er notaður dekkri lit- ur yfir allt augnsvæðið og eru fjólu- blár og turcis aðal litirnir í dag. Þetta mundi ég láta duga sem dag- „Yngristúlkur eiga að nota augnkrem sem gefur raka en ekki með mikilli virkni.m förðun ásamt vatnsheldum blýanti inn í augun og mikinn maskara," segir hún og leggur sérstaka áherslu á að setja mikið af maskara og heldur áfram: „En athuga að skyggja og ýkja förðunina ef ætlað er út um kvöldið og til að full- komna verkið er settur eyeliner." Viðkvæmt augnsvæðið „Augnsvæðið er afar viðkvæmt enda er þetta svæðið sem missir fyrst raka og er það ástæðari fýrir því að rakalínur myndast og er því nauðsynlegt að huga vel að því," segir Díanna og tekur skýrt fram að augnfarðahreinsir skiptir máli. „Allar konur ættu að fjarlægja augnfarða með augnhreinsi en ekki með gamla góða vatninu," segir hún alvörugefin. „Allar konur eiga að byrja að nota augnkrem þegar þær byrja að nota maskara því þegar við þrífum hann af þá er aukið áreiti á augnsvæðið og meiri hætta á að fínar línur myndist fyrr mm, /^. n og bendi ég á að yngri stúlkur eiga þá að nota augnkrem sem gefur raka en ekki með mikilli virkni." elly@dv.is MinnistöfUtr Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is BETUSAN Ljósir vorlitir Yndis- legasti árs- tíminn er að detta inn, vorið í allri sinni mynd. Það myndast sérstök stemmning þegar vorvörur koma í verslanir og ljósir vorlitir lyfta manni upp í skammdeginu. Svarti liturinn sem verið hefur alls ráðandi í vetur er nú að víkja fyrir hvíta limum og tökum við honum fagnandi. Rómantík og kvenleiki eru áberandi í vortískunni þannig að ef konan á einhvern tíma að njóta sín þá er það núna. Mikið er um blúndur og heklaðar flíkur sem endurspeglar enn og aftur róman- tíkina í loftinu. Kjólar & litagleði í sumar Kjólamir eru áberandi í sumar og virðist sem allt virki, svo framar- lega sem það heitir kjóll. Það nýjasta í kjólum eru hinir svoköll- uðu „babydoll" kjólar þar sem rykk- ingin kemur frá brjósti. Doppótt og röndótt efni eru einnig áberandi og gaman og ffískandi að fá þessa stemmingu inn í vorið. Stuttbuxur Svo eru stuttbuxur mjög áber- andi hvort sem er við sokkabuxur og stígvél eða við leggingsbuxur og skó. Fellingar í buxum og pilsum eru farnar að sjást á ný og plísering- ar í pilsum og fylgihlutum sjást víða. Breiðu beltin hafa þegar litið dagsins ljós og virðast ekki vera á undanhaldi, síður en svo. Smóking tískan tengist skemmtilega inn í vortískuna og má sjá satín líningar á Rómantík og kvenleiki Kjólarnir verða áberandi ísumar buxum og jökkum auk þess sem smókingjakkar sjást með kven- legu sniði. Litirnir eru ljósi í vor og dempaðir litir bæði í grænu, gulu, ferskjulitu, bláu og brúnu auk þess sem fölbleikur, drapplitur og kremlitur eru áberandi með vorinu. Sterku litirnir eru samt skammt undan og koma svo sannarlega með hækkandi sól. Áður en lengra er haldið mæli ég með einni hvítri skyrtu, doppóttum fylgihlut og breiðu belti svona rétt til að koma okkur af stað inní spennandi tískuvor. Bless í bih, Eva Dögg Tískuráðgjafí Lífsstíls hhmhhhhhmhhhhhhhhhhhhhhhhhhhmhmmp^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.